Mynd: Bjarni Þór Pétursson

Neðansjávar á Hjalteyri

Sigurður Guð­jóns­son rann­sakar raf­magn, hljóð og véla­minjar í Verk­smiðj­unni á Hjalt­eyri.

Hjalt­eyri er örlítið þorp, mitt á milli Akur­eyrar og Dalvíkur, og telur um þessar mundir rétt rúm­lega 40 manns. En rétt fyrir síð­ari heims­styrj­öld, árið 1937, reisti Kveld­úlfur þar síld­ar­verk­smiðju sem sumar heim­ildir herma að hafi verið sú stærsta í ger­vallri Evrópu á sínum tíma. Á blóma­skeiði verk­smiðj­unnar voru íbúar Hjalt­eyrar þrefalt fleiri en í dag, en verk­smiðjan var ekki starf­rækt í nema tæp 30 ár og stóð auð að mestu í rúm 40 ár, fyrst og fremst óvenju­legur staður fyrir Eyfirð­inga til að stoppa á í sunnu­dags­bílt­úrnum.

En fyrir fimmtán árum tók hópur lista­fólks sig saman og kom á fót menn­ing­ar­mið­stöð i verk­smiðj­unni og nú nýlega opn­aði Sigurður Guð­jóns­son, full­trúi Íslands á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum í fyrra, nýja sýn­ingu í verk­smiðj­unni, en Sigurður er helst þekktur fyrir tíma­tengd verk, þar sem hann rann­sakar mann­gerðar vélar og tækni­m­injar á borð við þessar. Þessa sýn­ingu vinnur hann út frá miðju húss­ins, lóð­rétt …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Hallsson skrifaði
    Magnað verk, mæli með að öll skreppi á Hjalteyri í sumar til að njóta sýningarinnar.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár