Tvær af hverjum þremur einstæðum mæðrum í fjárhagslegum erfiðleikum

Vinnandi fólki sem á erfitt með að ná endum saman fjölgar mikið milli ára miðað við nýja könnun. Staða kvenna er mun verri en karla á öllum mæli­kvörðum og fjár­hags­staða inn­flytj­enda er mun verri en inn­fæddra Íslend­inga.

Tvær af hverjum þremur einstæðum mæðrum í fjárhagslegum erfiðleikum
Versn­andi staða Fjár­hags­leg staða vinn­andi fólks hefur versnað tölu­vert milli ára sam­kvæmt könnun Vörð­unnar. Mynd: Shutterstock

Tæplega helm­ingur vinn­andi fólks á erfitt með að ná endum saman í ár, borið saman við tæp­lega þriðj­ung á síð­asta ári. Fjár­hags­staða kvenna er verri en karla á öllum mæli­kvörðum, fjár­hags­staða inn­flytj­enda er verri en inn­fæddra Íslend­inga og hið sama má segja um fólk með erlendan bak­grunn. Verst standa ein­stæðar mæður en ríf­lega tveir þriðju þeirra eiga erfitt með að ná endum saman.

Þetta er meðal nið­ur­staðna umfangs­mik­illar spurn­inga­könn­unnar um stöðu launa­fólks á Íslandi sem gerð var meðal félaga í aðild­ar­fé­lögum ASÍ og BSRB. Í könn­un­inni, sem ríf­lega 14 þús­und manns svör­uðu, alls 8,5 pró­sent allra aðild­ar­fé­laga ASÍ og BSRB, var spurt um fjár­hags­stöðu fólks, stöðu þess á hús­næð­is­mark­aði, lík­am­lega og and­lega heilsu, kulnun og rétt­inda­brot á vinnu­mark­aði. Er þetta í þriðja sinn sem sam­bæri­leg rann­sókn er lögð fyrir af Vörðu-Rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins.

Tvöföldun á fjölda þeirra sem eiga mjög erfitt með að ná endum saman

45,7%
eiga erfitt með að ná endum saman

Könnunin sýnir að fjöldi þeirra sem eiga erfitt eða mjög erfitt með að ná endum saman tvö­fald­ast milli ára. Í sam­bæri­legri könnun á síð­asta ári svör­uðu 6,5 pró­sent þátt­tak­enda því til að þeir ættu erfitt með að ná endum saman en nú er hlut­fallið 12,1 pró­sent. Þeir sem áttu mjög erfitt með að ná endum saman í fyrra voru 3,2 pró­sent en eru nú 7,2 pró­sent. Þeim sem eiga nokkuð erfitt með að ná endum saman fjölgar líka, um 3,5 pró­sentu­stig, og er nú 26,4 pró­sent. Alls segj­ast því 45,7 pró­sent eiga erfitt með að ná endum saman.  

Þegar nið­ur­stöður könn­un­ar­innar eru greindar eftir kyni kemur í ljós að fleiri konur en karlar eiga erfitt með að ná endum saman en karlar. Alls svör­uðu tæp 46 pró­sent kvenna því til að þær ættu erfitt með það á móti tæpum 43 pró­sentum karla.

22%
ein­stæðra mæðra eiga mjög erfitt með að ná endum saman

Þá standa ein­stæðir for­eldrar verr en aðrir fjár­hags­lega. Alls sögðu ríf­lega 62 pró­sent ein­stæðra for­eldra að þau ættu erfitt með að ná endum saman. Verst allra standa ein­stæðar mæður en ríf­lega tvær þriðju þeirra eiga erfitt með að ná endum saman, 67,6 pró­sent, og þar af svör­uðu ríf­lega 22 pró­sent þeirra því til að þær ættu mjög erfitt með að ná endum saman. Rúmur helm­ingur ein­stæðra feðra átti erfitt með að ná endum saman og þar af sögðu rúm 14 pró­sent að það væri mjög erfitt.

Innflytjendur standa illa

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar eru þá einnig brotnar niður eftir upp­runa þátt­tak­enda. Þar kemur í ljós að inn­flytj­endur standa mun verr að vígi en inn­fæddir Íslend­ingar, og hið sama má segja um fólk með erlendan bak­grunn.

57%
inn­flytj­enda eiga erfitt með að ná endum saman

Af þeim sem eru inn­fæddir hér á landi segj­ast tæp 39 pró­sent eiga í fjár­hags­legum erf­ið­leikum, borið saman við 45 pró­sent þeirra sem eru með erlendan bak­grunn. Af inn­flytj­endum svara hins vegar 57 pró­sent hinu sama til. Lítill munur er milli kynja þegar horft er til inn­flytj­enda, rúm 57 pró­sent karla eiga erfitt fjár­hags­lega og tæp 57 pró­sent kvenna.

Í sam­heng­inu var fólk einnig spurt um getu sína til að mæta óvæntum fjár­hags­legum útgjöldum, upp á 80 þús­und krónur, án þess að þurfa að skuld­setja sig. Allt í allt svör­uðu rúm 38 pró­sent aðspurðra því til að þau gætu ekki mætt slíkum útgjöldum. Talsvert fleiri konur voru ekki í stakk búnar til þess en karlar, 43 pró­sent borið saman við 34 pró­sent, og þá sögð­ust allt í allt 59 pró­sent ein­stæðra for­eldra ekki geta mætt slíkum útgjöldum, þar af 64 pró­sent ein­stæðra mæðra.

Tíu prósent búa við efnislegan skort

Í könn­un­inni var spurt um efn­is­legan skort með því að biðja svar­endur að taka afstöðu til níu stað­hæf­inga. Meðal þeirra voru stað­hæf­ingar á borð við að heim­ilið hefði lent í van­skilum síð­asta árið, gæti ekki mætt óvæntum útgjöldum, hefði ekki efni á nægj­an­legri kynd­ingu auk ann­ars. Þeir telj­ast búa við skort þar sem þrír þættir eiga við um heim­ili og þar sem fleiri þættir eiga við er um veru­legan efn­is­legan skort að ræða.

Í ljós kom að í heild býr einn af hverjum tíu við efn­is­legan skort, þar af búa 5,7 pró­sent svar­enda við efn­is­legan skort og 4,2 pró­sent við veru­legan efn­is­legan skort. Á móti búa 54,6 pró­sent svar­enda við engan efn­is­legan skort. Staða ein­stæðra mæðra er verst en 13,7 pró­sent þeirra búa við efn­is­legan skort og 12,1 pró­sent þeirra búa við veru­legan efn­is­legan skort. Þá er staða inn­flytj­enda umtals­vert verri en inn­fæddra. Alls búa 15 pró­sent inn­flytj­enda við efn­is­legan skort borið saman við 7,6 pró­sent inn­fæddra.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár