Mannlegu afleiðingarnar af einni stöðuveitingu ráðherra

Mál Hrafn­hildar Ástu Þor­valds­dóttur hjá Mennta­sjóði náms­manna hefur haft fjöl­þættar afleið­ingar á síð­ustu 10 árum. Áminning sem hún var með vegna sam­skipta­vanda­mála í ráðu­neyti var aft­ur­kölluð og Illugi Gunn­ars­son skip­aði hana þvert á mat stjórnar LÍN. Síðan þá hafa komið upp tvö ein­elt­is­mál í Mennta­sjóði náms­manna og ráðu­neytið rann­sakar nú stofn­un­ina vegna þessa.

Mannlegu afleiðingarnar af einni stöðuveitingu ráðherra
10 ára saga Tæp ár eru liðin frá því að Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dóttir var skipuð sem fram­kvæmda­stjóri LÍN. Afleið­ing­arnar af þess­ari stöðu­veit­ingu Illuga Gunn­ars­sonar eru tals­verðar. og hafa meðal ann­ars tveir starfs­menn stofn­un­ar­innar vænt hana um ein­elti sem hefur verið stað­fest að hluta í skýrslum. Mynd: Heimildin

Þrjú ein­elt­is­mál hafa komið upp inni í stofn­unum þar sem núver­andi fram­kvæmda­stjóri Mennta­sjóðs náms­manna, Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dóttir, hefur starfað. Í öllum mál­unum hafa verið unnar skýrslur af sál­fræð­ingum sem kom­ast hafa að þeirri nið­ur­stöðu að um ein­elti, ein­elt­istil­burði eða sam­skipta­vanda af hennar hendi gagn­vart und­ir­mönnum hafi verið að ræða. Um er að ræða sögu sem nær meira en tíu ár aftur í tím­ann, eða allt aftur til þess þegar Hrafn­hildur Ásta var skrif­stofu­stjóri í umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Fyrsta málið er frá þeim tíma og seinni málin tvö eru úr Mennta­sjóði náms­manna. 

„Auðvitað eru ekki allir vinnu­staðir svona en and­rúms­loftið á vinnu­staðnum var orðið gegn­sýrt af þessu.“
Karl­maður á fimm­tugs­aldri sem nýverið hætti hjá Mennta­sjóðnum

Davíð, Illugi og Hrafnhildur Ásta

Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dóttir kom ekki átaka­laust til starfa hjá Lána­sjóði íslenskra náms­manna (LÍN), fyr­ir­renn­ara Mennta­sjóðs náms­manna, árið 2013. Hún hafði …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Politiskar raðningar i oberar stöður a Islandi eru Viðbjoður og leggja þarf það af
    Folki sem er vanhæft er troðið i Stöður vegna þess að það er i Floknum sem fer með malaflokkin. Kvar er lyðræðið a þessu Skeri þar sem Spiling er Landlæg. BURT MEÐ RIKISTJOTNINA.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Rannsókn á einelti í Menntasjóði

FréttirRannsókn á einelti í Menntasjóði

Ásdís Halla sagði sig frá ein­elt­is­máli vegna tengsla við Lands­rétt

Ráðu­neyt­is­stjór­inn í háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu ákvað að taka ekki fyrir ein­elt­is­mál sem verið hefur til skoð­unar vegna þess að eig­in­maður hennar starfar með systur fram­kvæmda­stjóra Mennta­sjóðs náms­manna sem málið snýst um. Málið hefur verið til skoð­unar í ráðu­neyt­inu í meira en ár og snýst um meint ein­elti gegn starfs­manni Mennta­sjóðs sem látið hefur af störfum.
SkýringRannsókn á einelti í Menntasjóði

Ráðu­neytið hefur lokið rann­sókn á ein­elt­is­máli í Mennta­sjóði náms­manna

Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur síð­ast­liðið ár haft til rann­sóknar meint ein­elti hjá rík­is­stofn­un­inni Mennta­sjóði náms­manna. Ráðu­neyt­is­stjór­inn hefur fengið málið inn á sitt borð og mun taka ákvörðun um næstu skref. Rann­sóknin bein­ist að fram­kvæmda­stjóra sjóðs­ins, Hrafn­hildi Ástu Þor­valds­dóttur, og sam­skiptum hennar við starfs­mann á fimm­tugs­aldri sem svo lét af störfum.
FréttirRannsókn á einelti í Menntasjóði

Rannsókn á ein­elti: Fram­kvæmda­stjór­inn var skipuð í tvö auka ár

Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Mennta­sjóðs náms­manna, mun að minnsta kosti sitja 12 ár í starf­inu. Hún var end­ur­skipuð árið 2018 og svo aftur árið 2020 þegar ný lög um Mennta­sjóð náms­manna tóku gildi. Háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið rann­sakar nú ásak­anir um ein­elti hennar í garð starfs­manns.
FréttirRannsókn á einelti í Menntasjóði

Hrafn­hildur hafnar nið­ur­stöðu sál­fræð­inga um ein­elti

Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Mennta­sjóðs náms­manna, hafnar því að hún hafi beitt starfs­mann ein­elti. Sál­fræði­fyr­ir­tæki sem rann­sak­aði málið komst að þess­ari nið­ur­stöðu og rann­sakar ráðu­neyti háskóla­mála það nú áfram. Fram­kvæmda­stjór­inn segir að hún muni ekki tjá sig frekar um efn­is­at­riði máls­ins meðan það er í ferli.
FréttirRannsókn á einelti í Menntasjóði

Rann­sakar stjórn­un­ar­hætti Hrafn­hildar í Mennta­sjóði

Ásakanir um meint ein­elti í Mennta­sjóði náms­manna eru nú til rann­sóknar. Rann­sóknin bein­ist að stjórn­ar­háttum Hrafn­hildar Ástu Þor­valds­dóttur, fram­kvæmda­stjóra stofn­un­ar­innar, og hefur ráðu­neytið leitað til utan­að­kom­andi ráð­gjafa. Sam­bæri­legt mál kom upp þegar Hrafn­hildur Ásta var skrif­stofu­stjóri í umhverf­is­ráðu­neyt­inu árið 2013 og hlaut hún fyrir áminn­ingu sem var aft­ur­kölluð skömmu áður en hún var ráðin fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins.

Mest lesið undanfarið ár