Mynd: Shutterstock

„Ég er föst á heimilinu“

Kona sem beitt er fjár­hags­legu, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi af eig­in­manni sínum er föst með honum á sam­eig­in­legu heim­ili þeirra. Þar sem þau eiga íbúð á hún ekki rétt á fjár­hags­legum stuðn­ingi til að flýja út af heim­il­inu. Maðurinn neitar að skrifa undir skiln­að­ar­papp­íra og neitar að selja íbúð­ina. Hann skammar hana ef hún kaupir sér peysu án þess að fá leyfi.

„Maðurinn minn, verð­andi fyrr­ver­andi mað­ur­inn minn, er spilafík­ill. Hann eyddi eig­in­lega öllu spari­fénu okkar í það en á sama tíma, ef ég eyddi pen­ingum í sjálfa mig, til dæmis ef mig vant­aði buxur og keypti mér buxur, þá var ég skömmuð fyrir að vera að sóa pen­ingum. Hann skammt­aði mér pen­ing á meðan hann var að fela að hann væri að eyða öllum þessum pen­ingum.“ 

Þetta segir kona sem er beitt fjár­hags­legu, and­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi af hálfu eig­in­manns síns. Hún er búin að sækja um skilnað en hann neitar að skrifa undir skiln­að­ar­papp­írana.

„Ef hann segir nei þá segir kerfið nei“

Það tók hana ár að manna sig upp í að biðja um skilnað. Þá er hún föst á sam­eig­in­legu heim­ili þeirra ásamt börnum vegna þess að hann vill ekki selja íbúð­ina þeirra en hefur heldur ekki efni á að kaupa hana …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárhagslegt ofbeldi

Loksins frjáls úr helvíti
ViðtalFjárhagslegt ofbeldi

Loksins frjáls úr hel­víti

Kona sem er að losna úr ára­tuga hjóna­bandi átt­aði sig ekki á því fyrr en fyrir þremur árum að hún væri beitt and­legu ofbeldi af eig­in­manni sínum, og enn síðar að ofbeldið væri einnig bæði kyn­ferð­is­legt og fjár­hags­legt. Hún segir hann iðu­lega koma með nýjar afsak­anir fyrir því að skrifa ekki fjár­skipta­samn­ing og draga þannig að klára skiln­að­inn. Hún seg­ist stundum hafa óskað þess að hann myndi lenda í bílslysi og deyja. Aðeins þannig yrði hún frjáls.
Fjárhagslegt ofbeldi rígheldur konum í ofbeldissamböndum
FréttirFjárhagslegt ofbeldi

Fjár­hags­legt ofbeldi ríg­heldur konum í ofbeld­is­sam­böndum

Fjár­hags­legt ofbeldi er notað til að stjórna mann­eskju gegnum fjár­mál. Þetta er sú teg­und ofbeldis sem lengst heldur konum föstum í ofbeld­is­sam­böndum þar sem þær eru fjár­hags­lega háðar ger­and­anum. Konur jafn­vel taka á sig fjár­hags­legar skuld­bind­ingar til að minnka spennustigið á heim­il­inu og hætt­una á að verða fyrir ann­ars konar ofbeldi. Tæpur helm­ingur þeirra sem leit­uðu til Bjark­ar­hlíðar á síð­asta ári nefndu fjár­hags­legt ofbeldi sem eina af ástæðum komu sinnar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár