Vindmyllur við Lagarfljót yrðu í fjölfarinni flugleið fugla

Orkusalan áformar að reisa vind­myllur við Lagarfoss sem myndu njóta góðs af nálægð við Lagar­fossvirkjun og dreifi­kerfi hennar. Hins vegar er þetta svæði mikilvægt fuglum, m.a. hinum alfriðaða lómi.

Útsýnið
Útsýnið Ásýnd vind­myll­anna frá bænum Ekru, 1,6 kíló­metrum norðan við Lag­ar­foss. Mynd: Úr greinargerð Orkusölunnar

Fjölfarin flugleið fugla er við Lagar­fljót þar sem Orkusalan áformar að reisa vind­myllur. Þar er meðal annars að finna lóm sem er alfriðaður. Grunn­þekking á fuglalífi á Íslandi er minni en í t.d. Danmörku og öðrum nágranna­löndum. Því eiga viðmið frá skoskum yfir­völdum um rann­sóknir á fuglalífi sem stuðst er við í undir­búningi vind­orkuvera ekki að öllu leyti við hér á landi. 

Þetta er mat Kristins Hauks Skarp­héðinssonar, dýra­vist­fræðings hjá Náttúru­fræði­stofnun Íslands, sem sat nýverið forsamráðsfund vegna áforma Orku­sölunnar um að reisa tvær 160 metra háar vind­myllur við Lagar­fossvirkjun. Orkusalan, sem er alfarið í eigu opin­bera hluta­fé­lags­ins Rarik, rekur þá virkjun. Skipulags­stofnun ákvað í lok síðasta árs að virkjunar­hugmyndin þyrfti að fara í umhverfismat og er forsamráð, sem sveitar­félög, stofnanir og framkvæmda­aðilar koma m.a. að, hluti af því. 

Þurfa vatnsaflsins með

Bygging vindmylla við Lagar­fljóts­virkjun hefur verið á teikniborðinu frá árinu 2018. Vind­orkuver þrífast illa ein og sér enda framleiða þau aðeins orku þegar nægur vindur blæs sem er, ótrúlegt en satt, ekki alltaf raunin hér á landi. Þannig þurfa slík ver, verði þau reist á Íslandi, að spila með vatnsafls­virkjunum. 

Þennan punkt notar Orkusalan einmitt í rökstuðningi sínum fyrir byggingu vindmylla við Lagarfoss. Stutt sé í aðveitu­stöð svo að teng­ingar við dreifi­kerfið yrðu auð­veldar í fram­kvæmd. Jákvæð sam­legð­ar­á­hrif yrðu því með Lag­ar­foss­stöð og vind­myllunum. Mark­mið framkvæmdarinnar sé að öðl­ast reynslu og byggja upp þekk­ingu á rekstri vind­mylla.

Vind­myllurnar tvær yrðu 9,9 MW að afli, rétt undir þeim viðmiðum sem þarf til að virkjunar­framkvæmdir fari til meðferðar hjá verkefnis­stjórn ramma­áætlunar. Orku­stofnun vakti raunar athygli á þessu í umsögn sinni um greinar­gerð Orku­sölunnar vegna Lagar­foss­myllanna á síðasta ári og velti því upp hvort metnir hefðu verið kostir og gallar minni eða auk­innar fram­leiðslu­getu virkj­un­ar­kost­ar­ins. Taldi stofnunin nauð­syn­legt að Orkusalan rök­styddi betur hvernig og hvers vegna nið­ur­staðan hafi verið 9,9 MW.

Á forsamráðsfundinum sagði Snævarr Örn Georgsson, umhverfis­verk­fræðingur hjá Eflu sem vinnur að umhverfis­mati framkvæmdarinnar, að ætlunin væri ekki að fara yfir 9,9 MW heldur að hafa borð fyrir báru ef tækni­framfarir verða á leiðinni. 

Vindmyll­urnar tvær yrðu reistar á athafna­svæði Orku­söl­unnar við Lag­ar­foss­virkjun í um 2-300 metra fjar­lægð austan við Lag­ar­foss­veg. Framkvæmt yrði innan svæðis sem er skil­greint sem mik­il­vægt fugla­svæði og hefur verið til­nefnt á fram­kvæmda­á­ætlun nátt­úru­minja­skrár vegna vist­gerða á landi, fugla og sela. Þá er það einnig innan svæðis sem þegar er á nátt­úru­minja­skrá.

Blárnar einstöku

Víð­áttu­mikla blá, en flóar eru gjarnan nefndir blár á Aust­ur­landi, er að finna í grennd við Lag­ar­foss­virkj­un. Blárnar á þessum slóðum eru flokk­aðar sem tjarn­ar­star­ar­flóa­vist, vernd­ar­gildi þeirra er mjög hátt og er vist­gerðin á lista Bern­ar­samn­ings­ins yfir vist­gerðir sem þarfn­ast vernd­ar.

Nátt­úru­fræði­stofnun benti í þessu ljósi á í umsögn sinni við greinar­gerð Orku­sölunnar á síðasta ári að önnur vind­myllan myndi að lík­indum standa í vot­lendi og því raska syðsta hluta tjarn­ar­star­ar­blá­ar­inn­ar. „Þrátt fyrir að vind­myllu­stæðin tvö séu í grennd við Lag­ar­foss­virkjun og landi hafi verið raskað þar í grennd er lík­legt að stæðin muni raska heil­legum vist­kerfum með mjög hátt vernd­ar­gildi og umtals­verðu vot­lend­i.“

Í nið­ur­stöðu grein­ar­gerðar Orku­söl­unnar voru áhrif á fugla­líf metin óveru­leg og er þar sér­stak­lega horft til nið­ur­staðna mæl­inga við áformað vind­orkuver Lands­virkjunar, Búr­fellslund. Hins vegar minnti Nátt­úru­fræði­stofnun á að það svæði ein­kenn­ist af teg­unda­fæð og lágum þétt­leika varp­fugla. Úthérað sé aftur á móti á lág­lendi og ein­kenn­ist fugla­líf þar af mik­illi teg­unda­fjöl­breytni og háum varp­þétt­leika. Þar megi finna mik­inn fjölda vatna­fugla sem eru meðal þeirra fugla­hópa sem sér­stak­lega er hætt við áflugi. Má þar t.d. nefna lóma og grá­gæs­ir. „Þá er svæðið mik­il­vægt varp­svæði fyrir skúm, sem er á válista sem teg­und í bráðri hættu, sem og kjóa, sem einnig er á válista.“ 

Að auki er þétt­leiki vað­fugla á svæð­inu hár. „Það er því mat Nátt­úru­fræði­stofn­unar að ekki er hægt að yfir­færa nið­ur­stöður mæl­inga við Búr­fellslund yfir á Úthérað þar sem aðstæður eru gjör­ó­lík­ar.“

Við vatns­afliðVind­myll­urnar tvær eru áform­aðar rétt við Lag­ar­foss­virkjun sem Orku­salan rekur.

Um þetta var sérstak­lega fjallað á fyrr­nefndum forsamráðsfundi. Þar kom fram að Náttúru­stofa Austur­lands mun sjá um fugla­rannsóknir og að farið verði í tvær vettvangs­ferðir til að kanna meðal annars búsvæði fugla og umferð þeirra um svæðið í um 500 metra radíus frá fyrir­huguðum vind­myllum.

Tekist á um radarmælingar

Fulltrúi Skipulags­stofnun benti á að í álitum stofnunarinnar um áformuð vind­orkuver hafi verið sett skilyrði um tveggja ára sjónarhóls­rannsóknir til þess að fá samanburð milli ára. Kristinn hjá Náttúru­fræði­stofnun tók undir mikilvægi slíks saman­burðar. Stofnunin hefur áður sagt að fara ætti í radar­mælingar á svæðinu.

Snævarr hjá Eflu sagði Orku­söluna ekki telja þörf á radar­mælingum miðað við viðmið skosku ráðgjafa­stofnunarinnar Naturescot sem oft hefur verið horft til við undir­búning vind­orkuvera sem eru í pípunum á Íslandi. 

Kristinn sagði þá, líkt og fyrr segir, að skosku viðmiðin ættu ekki við hér á landi að öllu leyti.

Sveitar­stjórn Múlaþings gerði breytingar á aðal­skipulagi sveitar­félagsins vegna vindmyllu­áformanna við Lagar­fljóts­virkjun í lok árs 2021. Ásrún Mjöll Stef­ánsdóttir, sveitar­stjórnar­fulltrúi Vinstri grænna, sagði á fundi sveitar­stjórnar í fyrra að sú ákvörðun væri „sérstakt áhyggju­efni“. Myllurnar ætti að reisa nærri miðju Fljótsdals­héraðs, á blómlegu landbúnaðar­svæði og vettvangi vaxandi ferða­mennsku. Lýstu fulltrúar VG yfir „algjörri andstöðu“ við áformin.

Engar vindorkuvirkjanir fyrr en ríkið gerir upp hug sinn

Líkt og í fleiri sveitar­félögum hefur skipting arðs af virkjunum verið til umræðu í sveitar­stjórn Múlaþings. Á meðan vitlaust er gefið í þeim efnum, og arðinum ekki skipt með „sann­gjörnum hætti“ milli hagsmuna­aðila telur sveitar­stjórn Múlaþings ekki forsendur til að taka ákvarðanir um stór­fellda nýtingu vindorku. „Mikilvægt er að ríkið meti stöðu á fram­leiðslu á raforku á Íslandi, áætli þörf til frekari fram­leiðslu og ákveði með hvaða móti og hvar skuli afla þeirrar orku út frá ýmsum þáttum svo sem umhverfis­legum, samfélags­legum og efnahags­legum með ramma­áætlun eða öðru sambærilegu ferli,“ sagði í tillögu sem lögð var fyrir sveitar­stjórn og samþykkt samhljóða. „Sveitar­stjórn telur því að þær grunn­forsendur sem þurfi til mótunar stefnu fyrir sveitar­félagið liggi ekki fyrir og mun ekki samþykkja vind­orkuver án slíkrar stefnu­mótunar ríkisins.“

Loksins

Starfs­hópur um nýtingu vindorku, sem umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra skipaði um mitt síðasta ár, átti að skila tillögum að frumvarpi fyrir 1. febrúar.

Síðan eru liðnir 76 dagar. Og loks er komið að því að birta niður­stöðurnar. Reyndar aðeins að hluta. Það verður gert á morgun, miðvikudag, er Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra kynnir fyrsta áfanga vinnunnar: Greiningu og mat á viðfangs­efninu, líkt og það er orðað í tilkynningu.

 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár