Martröð í paradís fyrir fötluð börn

Í Reykja­dal eru reknar sum­ar­búðir fyrir fötluð börn, þar sem „ekk­ert er ómögu­legt og ævin­týrin látin ger­ast“. Níu ára stelpa, sem var þar síð­asta sumar, lýsti um tíma áhuga á að fara aftur, en for­eldrar hennar voru hik­andi. Það sat í þeim hvernig meint kyn­ferð­is­brot starfs­manns gagn­vart stúlkunni var með­höndlað síð­asta sumar, ekki síst hvernig lög­reglu­rann­sókn var spillt. Og nú, þegar nær dregur sumri, vill hún ekki lengur fara.

Martröð í paradís fyrir fötluð börn

Sum­ar­búð­irnar í Reykja­dal eru reknar af Styrkt­ar­fé­lagi lamaðra og fatl­aðra. Árlega sækja um 250 ein­stak­lingar á aldr­inum 8 til 21 árs þangað og almennt hefur vel verið látið af starf­sem­inni. Í lýs­ingu á sum­ar­búð­unum segir: „Gleði, jákvæðni og ævin­týri lýsa starf­sem­inni í Reykja­dal vel. Þar er haft að leið­ar­ljósi að ekk­ert sé ómögu­legt og ævin­týrin látin ger­ast.“ Áhersla sé lögð á að hver og einn njóti sín á eigin for­sendum, börnin geti eign­ast vini og séu fremst á meðal jafn­ingja. Fyrir börn sem standi ekki endi­lega mjög sterk fyrir félags­lega í sínu nærum­hverfi sé þetta eins og para­dís. Þannig hafði dóttir þeirra Einars Arnar Jóns­sonar og Höllu Ingi­bjargar Leon­hards­dóttur líka upp­lifað það. Þar til kom að brott­far­ar­degi. 

Hvað ef, bara þau hefðu farið fyrr

For­eldrar hennar áttu að sækja hana klukkan fjögur. Faðir hennar lýsir því hvað gerð­ist áður en til þess kom: „Hún var til­búin um tvöleytið, …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Vá þetta er hræðilegt og ég samhryggist þolenda og aðstandendum. Það ætti að loka Reykjadal þar til verkferlar eru komnir í lag. Ég sem foreldri fatlaðs drengs sem fór þarna mánuð eftir atvikið og vissi ekkert um þetta ber umhyggju fyrir ykkur og þessum stað. Takk fyrir að ryðja brautina en sárt afhverju þið þurftuð þess.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár