„Þetta er mikill heiður,“ segir Stiven Tobar Valencia, hornamaður úr Val, sem nýlega var valinn í karlalandsliðið í handbolta. „Þetta er stórt fyrir mig og alla í kringum mig og ég er mjög ánægður með hvernig þetta hefur allt komið út.“ Hann er 22 ára, útskrifast í vor í lífeindafræði frá Háskóla Íslands, vinnur í hlutastarfi hjá Alvotech og hefur undanfarin ár auk þess unnið sem plötusnúður og módel. „Ég skipulegg mig mjög vel og stundum þarf maður að velja og hafna. Þetta er eins og Rubik-kubbur. Þetta er kannski skrýtin blanda af súpu; handbolti, lífeindafræði og DJ.“ Og svo eru það módelstörfin.
Stefnir á atvinnumennsku
„Ég var alltaf bæði í handbolta og fótbolta. Félagar mínir voru í báðum íþróttum og ég fylgdi þeim. Við vorum sigursælli í handboltanum heldur en í fótboltanum þannig að maður færðist hægt og rólega yfir í handboltann; maður var valinn í yngra landsliðið og …
Athugasemdir (2)