Fyrir fréttafíkla en líka þau sem þola ekki fréttir

Þátta­stjórn­endur The Daily, frétta­hlað­varps New York Times, segja svo listi­lega vel frá að jafn­vel þau sem þola ekki fréttir leggja við hlustir.

Fyrir fréttafíkla en líka þau sem þola ekki fréttir
Þetta helst The Daily hóf göngu sína í febr­úar 2017 og nálg­ast þætt­irnir nú 1.800 tals­ins. Hlað­varpið er með þeim vin­sæl­ustu í heim­inum þó það nái ekki á topp­list­ann hér heima, en það mætti breyt­ast.

„Svona eiga fréttir að hljóma. Helstu fréttir hverju sinni, sagðar af besta fjöl­miðla­fólki í heimi.“ Þannig hljómar lýs­ingin á hlað­varp­inu The Daily frá New York Times. Kannski ekki auð­mjúk­asta lýs­ingin en það er mikið til í henni. The Daily er hlað­varp sem kafar dýpra ofan í það sem ber hæst á góma í frétta­málum heims­ins. Þætt­irnir koma út alla virka daga en dæmi eru um að þættir komi út um helgar þegar mikið liggur við. 

Þætt­irnir eru fram­leiddir og gefnir út af New York Times og eru í umsjón Michael Barbaro og Sabrinu Tavern­ise. The Daily hóf göngu sína í febr­úar 2017 og nálg­ast þætt­irnir nú 1.800 tals­ins. Hlað­varpið er með þeim vin­sæl­ustu í heim­inum þó það nái ekki á topp­list­ann hér heima, en það mætti breyt­ast.   

Hver þáttur er um 20-30 mín­útur að lengd, sem er mik­ill kostur. Þátta­stjórn­endum tekst á stuttum tíma að fara yfir mál, sum mjög flókin, og gera skilj­an­leg á ekki lengri tíma. Fyr­ir­komu­lagið er því hent­ugt bæði fyrir fróð­leiks­fúsa fréttafíkla en ekki síður þau sem forð­ast að fylgj­ast með frétta­tímum, ein­hverra hluta vegna, en vilja samt sem áður vita það helsta um heims­málin. 

Þættir sem hafa verið sóttir oft­ast og er sér­stak­lega vert að mæla með eru til að mynda þáttur um bak­ara í Colorado sem neit­aði að baka brúð­kaup­stertu fyrir sam­kynja par og umfjöllun um áhrif #MeToo í banda­ríska hernum. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaðvarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár