Segir hug­mynda­fræði „ofsa­trú­ar­stýri­vaxta­manns­ins“ í Seðla­bank­an­um stór­furðu­lega

Þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, lá ekki á skoð­unum sínum í þingi í dag en hann sagði að hin blinda trú rík­is­stjórn­ar­innar á hug­mynda­fræði „ofsa­trú­ar­stýri­vaxta­manns­ins“ í Seðla­bank­anum væri stórfurðu­leg og alger­lega and­stæð heil­brigðum og eðli­legum efa­semdum – og því í eðli sínu stór­hættu­leg, hvort sem um væri að ræða trú­ar­brögð, stjórn­mála­stefnu eða hag­stjórn.

Segir hug­mynda­fræði „ofsa­trú­ar­stýri­vaxta­manns­ins“ í Seðla­bank­an­um stór­furðu­lega
Talar um „stýri­vaxta­of­beldi“ Guð­mundur Ingi segir að það sé ljóst að tekjur unga fólks­ins munu ekki standa undir stýri­vaxta­of­beldi lengi.

„Ofsatrú leiðir okkur í ógöngur,“ sagði Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokk­for­maður Flokks fólks­ins í lok ræðu sinnar undir liðnum störf  þings­ins á Alþingi í dag en hann fór hörðum orðum um rík­is­stjórn­ina og seðla­banka­stjóra í máli sínu. 

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sat undir svörum efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis í morgun en þar sagð­ist hann meðal ann­ars mestar áhyggjur hafa af ungu fólki sem er að reyna að koma undir sig fót­unum á leigu­mark­aði. 

Guð­mundur Ingi sagði í ræðu sinni að á einu ári hefði „ofsa­trú­ar­mað­ur­inn“ í Seðla­bank­anum aukið mán­að­ar­legar greiðslur á unga fólkið, sem er að stofna sitt fyrsta heim­ili, um 130 til 200.000 krónur á mán­uði. „Þetta er 1,5 til 3 millj­ónir á ári. Þetta er ekk­ert annað en gróft fjár­hags­legt ofbeldi. Með stans­lausum hækk­unum á stýri­vöxtum heldur þessi fjár­hags­lega hryðju­verka­starf­semi áfram gagn­vart ungu fólki sem getur á engan hátt varið sig. Fjár­hags­lega ofbeldið heldur áfram hjá hryðju­verka­banka­stjór­anum við Arnarhól sem hefur ofsa­trú á hækk­unum stýri­vaxta sem bitna ekki á honum eða hans fólki sem er á ofur­launum. 

Nei, þetta fjár­hags­lega ofbeldi bitnar bara á þeim verst settu sem í góðri trú trúðu honum þegar hann tal­aði um lág­vaxta­landið Ísland sem hann væri búinn að skapa til fram­tíðar. Það er ljóst að tekjur unga fólks­ins munu ekki standa undir þessu stýri­vaxta­of­beldi lengi. Það getur eng­inn staðið undir greiðslu­byrði sem hefur farið úr 30 til 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum yfir í 60 til 70 pró­sent af þeim eða meira,“ sagði hann. 

„Rík­is­stjórnin situr aðgerða­laus, horfir alvar­legum augum í gaupnir sér og trúir í blindni á trú­ar­brögð í hag­stjórn­inni og stórfurðu­lega hug­mynda­fræði seðla­banka­stjóra.“

Guð­mundur Ingi spurði hvar rík­is­stjórnin væri. „Hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra sögð­ust, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma, hafa fullt af ráðum til að vinna á verð­bólg­unni. Þau er enn að skoða málið, virða það fyrir sér, hugsa um það en gera svo ekk­ert og leyfa stýri­vaxta­ofsa­trú­ar­mann­inum í Seðla­bank­anum að fá lausan taum­inn í fjár­hags­legu stýri­vaxta­of­beldi gagn­vart heim­ilum. 

Rík­is­stjórnin situr aðgerða­laus, horfir alvar­legum augum í gaupnir sér og trúir í blindni á trú­ar­brögð í hag­stjórn­inni og stórfurðu­lega hug­mynda­fræði seðla­banka­stjóra og hans liðs sem sér til þess að stærra og stærra hlut­fall heim­ila á Íslandi nær ekki endum saman,“ sagði þing­mað­ur­inn. 

Forseti Alþingis gerði athugasemd við það að fjarstaddir menn væru uppnefndir

Guð­mundur Ingi telur að „þessi blinda trú“ rík­is­stjórn­ar­innar á hug­mynda­fræði „ofsa­trú­ar­stýri­vaxta­manns­ins“ í Seðla­bank­anum sé stórfurðu­leg og alger­lega and­stæð heil­brigðum og eðli­legum efa­semdum – og því í eðli sínu stór­hættu­leg, hvort sem um sé að ræða trú­ar­brögð, stjórn­mála­stefnu eða hag­stjórn. 

„Þegar þessir valda­miklu ein­stak­lingar mis­nota völd sín og reyna að troða ofan í almenn­ing sínum eina rétta sann­leika eiga auð­vitað að kvikna blikk­andi við­vör­un­ar­ljós; þegar gerðir þeirra skilja heim­ilin, unga fólkið og þá verst settu eftir í rjúk­andi rúst. Ofsatrú leiðir okkur í ógöngur,“ sagði hann eins og áður segir. 

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis þótti til­efni til að gera athuga­semd við það að fjar­staddir menn væru upp­nefndir ítrekað í ræðu­stól. 

„Jafnvel þó að hátt­virtum þing­mönnum geti verið heitt í hamsi og þó að þeir hafi athuga­semdir við emb­ætt­is­færslu ein­stakra manna þá er ekki í sam­ræmi við þing­sköp að upp­nefna fjar­stadda menn sem þar að auki eru ekki hér til að svara fyrir sig,“ sagði hann. 

Þurfum öll að taka höndum saman

Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir þing­maður Fram­sóknar lagði orð í belg í störfum þings­ins og ræddi verð­bólg­una. „Umræða um verð­bólgu hér á landi hefur verið áber­andi síð­ustu vikur. Verð­bólga hefur risið skjótt upp, stýri­vextir hækka og bank­arnir hækka vexti sína í kjöl­farið. Flestallir lands­menn hafa fundið fyrir áhrif­unum og ekki síst okkar við­kvæm­ustu hópar, ásamt ungu fólki sem margt hvert er að stíga sín fyrstu skref inn á hús­næð­is­markað með börn eða börn á leið­inni.“

Hún sagði að það væri aldrei skemmti­legt að horfa upp á vax­andi verð­bólgu, sér­stak­lega í ljósi þess hversu vel Íslend­ingum hefði gengið í efna­hags­málum und­an­farin ár þrátt fyrir oft á tíðum erf­iðar aðstæður. 

Þing­maður Fram­sóknarHafdís Hrönn segir að rík­is­stjórnin ætli sér alls ekki að draga lapp­irnar og sé vel með­vituð um að grípa þurfi við­kvæm­ustu hópana og koma í veg fyrir hremm­ingar.

„Margar ástæður eru fyrir stöð­unni í dag. Sumar hverjar ráðum við ekk­ert við. Hins vegar þýðir það ekki að við megum staldra við og vona það besta; allt sam­fé­lagið, ríkið og einka­að­ilar þarf að standa saman í því verk­efni að vinna bug á verð­bólg­unni,“ sagði hún. 

Þá nefndi hún að rík­is­stjórnin ætl­aði sér alls ekki að draga lapp­irnar og væri vel með­vituð um að grípa þyrfti við­kvæm­ustu hópana og koma í veg fyrir hremm­ingar.

„Á tímum hárrar verð­bólgu eykst mik­il­vægi þess að tann­hjólið gangi smurt og ef við vinnum öll saman þá getum við náð stór­kost­legum árangri.“

„Nú þegar hefur verið farið í aðgerðir eins og að hækka hús­næð­is­bætur, hækka bætur almanna­trygg­inga, hækka barna­bætur og fara í ýmsar aðgerðir til að bregð­ast við stöð­unni á hús­næð­is­mark­aði. Þetta er ekki tæm­andi taln­ing en allar þessar aðgerðir geta skipt sköpum fyrir ein­stak­linga sem sjá pen­inga sína hverfa í hærri vöxtum og hækk­andi verði á heim­il­is­vörum, mat­vælum og öðrum nauð­synjum. Það eru þó ekki ein­ungis stjórn­völd sem þurfa að grípa til aðgerða heldur þurfum við öll að taka höndum saman, við í sam­fé­lag­inu, bank­arnir og þeir einka­að­ilar sem hafa burði og veita fyrr­nefndar nauð­synjar á við mat­væli, að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð. Á tímum hárrar verð­bólgu eykst mik­il­vægi þess að tann­hjólið gangi smurt og ef við vinnum öll saman þá getum við náð stór­kost­legum árangri,“ sagði Hafdís Hrönn. 

Núverandi varðstjóri efnahagsmála alls ekki starfi sínu vaxinn

Fleiri fjöll­uðu um efna­hags­mál undir sama lið á þingi í dag en Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata hóf ræðu sína á því að rifja upp orð Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra fyrir síð­ustu kosn­ingar. „Það skiptir máli hverjir stjórna,“ var henni tamt að segja. 

„Það er margt til í þeim orðum hæst­virts ráð­herra enda er hún ekki byrj­andi í stjórn­málum eins og sá sem hér stendur. Þrátt fyrir það hef ég þó tals­verða reynslu af umbreyt­ingum og átökum og reynslan segir mér að á átaka- og krísu­tímum skiptir það virki­lega miklu máli hverjir stjórna. Þegar mikið er undir skiptir öllu máli hvernig ákvarð­anir eru teknar. Þessa dag­ana heyja stéttir hinna lægst laun­uðu harða bar­áttu fyrir bættum kjörum. 

Engan ætti að undra því það er einmitt lág­launa­fólk sem hefur orðið verst úti í vaxta- og verð­bólgu­hækk­unum síð­ustu mán­aða. Verka­fólk sem átti erfitt með að ná endum saman á tímum mik­ils hag­vaxtar sér nú enga leið í gegnum verð­bólgu­þok­una. Aðrar þjóðir hafa tæklað hækk­andi verð­lag með því að lækka skatta, tolla og álögur svo að verð­bólgan hafi minni áhrif á almenn­ing en hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra skeytir engu um slíkt,“ sagði hann.  

Þing­maður PíratarGísli Rafn segir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sé upp­tek­inn af því að leið­rétta halla rík­is­sjóðs, aðal­lega til að þókn­ast flokks­fólki sínu.

Sagði Gísli Rafn Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þannig vera upp­tek­inn við að stjórna land­inu af „sinni ein­stöku hag­stjórn­ar­list“ sem væri þó ein­ungis skýr og aðgengi­leg í hugum inn­múr­aðra Sjálf­stæð­is­manna. „Hann er upp­tek­inn af því að leið­rétta halla rík­is­sjóðs, aðal­lega til að þókn­ast flokks­fólki sínu, svo hann hellir olíu á verð­bólgu­eld­inn með því að hækka gjöld og álögur á fjöl­skyldur í land­inu. Í brúnni stendur hæst­virtur ráð­herra og tönnlast enda­laust á text­anum úr dæg­ur­lag­inu góða: Ekki benda á mig, ekki benda á varð­stjór­ann. Verð­bólgan er Pútín og COVID að kenna. Spyrjið frekar þá sem voru á vakt.“

Hann lauk máli sínu á því að segja að það skipti máli hverjir stjórna þegar krísur ganga í gegn og það væri aug­ljóst mál að núver­andi varð­stjóri efna­hags­mála væri alls ekki starfi sínu vax­inn.

Krónan helsta ástæða þess að Íslendingar borga meira fyrir nauðsynjar

Þing­maður Við­reisnar, Sigmar Guð­munds­son, sagði í sinni ræðu að engum dyld­ist þessa dag­ana að Íslands­metið í að kasta heitri kart­öflu á milli sín væri í stór­hættu. „Við þekkjum þetta vel. Verð­bólgan fer af stað og verður gjarnan hærri og þrá­látri hér en í nágranna­lönd­unum. Sem við­bragð við henni fáum við Íslend­ingar reglu­lega stýri­vaxta­hækk­anir sem enda gjarnan upp í rjá­fri með þeim afleið­ingum að heim­ilum og fyr­ir­tækjum blæðir hressi­lega. Höggið sem við fáum núna er sér­lega þungt. Hver ber ábyrgð? Það er heita kartaflan. 

Fjár­mála­ráð­herra og seðla­banka­stjóri hafa nú sam­ein­ast um að kenna nýgerðum kjara­samn­ingum um og kasta því kart­öfl­unni til aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Þeir voru reyndar báðir á því fyrir ára­mót að þessir samn­ingar væru innan þol­marka en þegar þörfin fyrir annan söku­dólg jókst breytt­ist það venju sam­kvæmt. Seðla­banka­stjóri og fjár­mála­ráð­herra eru líka sam­mála um að það þjóni engum til­gangi að leita að söku­dólgum og fletta gömlum blaða­greinum, sem er auð­vitað það sem menn segja þegar þeir vilja ekki kann­ast við ábyrgð sína. Svo eru þeir báðir sam­mála um að kenna hvor öðrum um,“ sagði hann.  

Þing­maður Við­reisnarSigmar segir að örmyntin íslenska krónan sé ein helsta ástæða þess að vaxta­kostn­aður íslenska rík­is­ins sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu er hærri en flestra Evr­ópu­landa og miklu hærri en í nágranna­lönd­unum.

Þá sagði Sigmar að seðla­banka­stjóri kastaði kart­öfl­unni til fjár­mála­ráð­herra og benti á lélega stjórn hans á rík­is­fjár­málum. „Fjár­mála­ráð­herra grípur jarð­eplið en kastar því strax til baka og bendir á að bank­inn hafi ekki spáð rétt fyrir um verð­bólg­una á van­meti kjara­samn­ing­ana. For­sæt­is­ráð­herra bætti um betur á dög­unum og sagði berum orðum að Seðla­bank­inn bæri höf­uð­á­byrgð.“

„Íslenska krónan er heita kartaflan.“

Honum finnst það vera rann­sókn­ar­efni að bæði seðla­banka­stjóri og fjár­mála­ráð­herra „séu svo upp­teknir við að benda hvor á annan, á sama tíma og ekki má leita að söku­dólgum, að þeir nái hvor­ugur að sjá hið raun­veru­lega vanda­mál“. 

„Sú firra að tæp­lega 400.000 manna þjóð haldi fast í pínuoggu­litla örmynt í ólgu­sjó alþjóða­við­skipta er hið raun­veru­lega alltum­lykj­andi vanda­mál. Kerf­is­vand­inn eini sanni. Einn minnsti gjald­mið­ill í heimi er helsta ástæða þess að Íslend­ingar borga meira fyrir nauð­synjar og miklu, miklu, miklu meira í vexti en nágranna­þjóð­irnar. Örmyntin er líka ein helsta ástæða þess að vaxta­kostn­aður íslenska rík­is­ins sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu er hærri en flestra Evr­ópu­landa og miklu hærri en í nágranna­lönd­unum. Leitin að söku­dólgi ætti að enda þar. Íslenska krónan er heita kartaflan,“ sagði hann að lokum í ræðu sinni. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Í evrulöndum var verðbólga víða svipuð og hér fyrir nokkrum mánuðum. Þar hefur verðbólgan hins vegar minnkað á sama tíma og vextir hafa lítið hækkað.
    Hér hefur verðbólgan hins vegar ekkert minnkað á sama tíma og vextir hafa hækkað upp úr öllu valdi.
    Vaxtahækkun veldur verðhækkunum vegna þess að hún veldur fyrirtækjum kostnaðarauka sem þau velta út í verðlagið. Verðhækkanir leiða til þess að laun þurfa að hækka til að kaupmáttur launa minnki ekki. Launahækkanir eru kostnaðarauki sem valda verðhækkunum osfrv osfrv.
    Þannig geta miklar vaxtahækkanir valdið langvarandi víxlverkun verðlags og launa.
    Hafa menn ekkert lært af reynslunni?
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Það virðist vera lenska að stjórnmálamenn ráðast á seðlabankastjórann. Þó er hann embættismaður sem tekur ákvarðanir sína í þeim þrönga ramma sem embætti hans og hagfræðilega menntun hans setja honum.
    Um þær ákvarðanir get ég ekki dæmt, hef engar forsendur til þess.
    Þó vildi ég frekar heyra gagnrýni úr röðum hagfræðinga og fræðimanna þar sem mark er takandi en einhverra stjórnmálamanna sem oftast en ekki hengja bakara fyrir smið.
    Hér með skora ég á Heimildina að gefa hagfræðingum orðið í þessari umræðu - ef einhver skuli treysta sér út á þann vettvang.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár