1055. spurningaþraut: „Það mælti mín móðir ...“

1055. spurningaþraut: „Það mælti mín móðir ...“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða mjög vel metni banda­ríski stjórn­mála­maður er þetta? Athugið að myndin er alls ekki öll þar sem hún er séð!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hverjir eiga og reka Landa­kots­kirkju í Reykja­vík?

2.  Fimm stjörnu hótel var fyrir ekki mjög löngu tekið í notkun við höfn­ina í Reykja­vík. Hvað heitir það?

3.  Árið 1692 fóru fram fræg rétt­ar­höld í bænum Salem í Massachusetts. Rétt­ar­höldin spruttu af fram­burði nokk­urra ungra stúlkna um ... hvað?

4.  Allir vita hvað er fámenn­asta ríkið í Evrópu. En hvað er næst fámenn­ast?

5.  Ísland er neð­ar­lega á list­anum yfir fjöl­menn ríki í Evrópu, nánar til­tekið í 46. sæti af 51 sjálf­stæðu ríki. En hvaða tvö ríki eru ann­ars vegar fyrir OFAN og hins vegar fyrir NEÐAN Ísland á þessum lista? Aðeins þarf að hafa annað ríkið rétt til að fá stig, en það verður þá að vera á réttum stað — fyrir ofan okkur eða neðan! Ef þið hafið bæði rétt fáiði sér­stakt Evr­ópu­stig!

6.  Hver hermdi þetta hér upp á móður sína: „Þat mælti mín móðir, / at mér skyldi kaupa / fley ok fagrar árar, / fara á brott með vík­ingum, / standa upp í stafni, / stýra dýrum knerri, / halda svá til hafnar ...“

7.  En hvernig var síð­asta lína vís­unnar? Hvað sagði mamma að skáldið ætti að gera þegar komið væri til hafnar?

8.  Stofnun um þýð­ingar og tungu­mál er rekin á Íslandi í nafni hvaða fyrr­ver­andi for­seta?

9.  Blað eitt á Bret­landi hóf göngu sína árið 1785 undir nafn­inu The Daily Uni­ver­sal Register en skipti þrem árum síðar um nafn. Þá var tekið upp það nafn sem síðan hefur verið notað í 235 ár. Hvaða nafn er það?

10.  Annað frægt breskt blað hóf göngu sína í Manchester 1821. Blaðið not­að­ist við Manchester sem hluta af heiti sínu allar götur til 1959 þegar borg­ar­nafnið var loks lagt af. Hvað heitir þetta blað síðan?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Fyrir nokkrum miss­erum kom leið­togi stjórn­ar­and­stöðu í Evr­ópu­ríki einu í heim­sókn til Íslands og hitti meðal ann­ars Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Í hvaða ríki er hún stjórn­ar­and­stöðu­leið­togi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum

1.  Kaþ­ólikkar.

2.  Edition.

3.  Galdra.

4.  San Marinó.

5.  Malta er fyrir ofan okkur á list­anum, Andorra fyrir neðan.

6.  Egill Skalla­gríms­son.

7.  „... höggva mann og annan.“

8.  Vigdísar Finn­boga­dóttur.

9.  The Times.

10.  The Guardian. Blaðið hét The Manchester Guardian upp­haf­lega.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna, George Washington, eftir að dug­legir fótó­sjopp­arar hafa breytt honum í nútíma­stjórn­mála­mann.

Washington 2022, Washington 1789

Á seinni mynd­inni er Svi­atl­ana Tsikhanouskaya, leið­togi and­spyrn­unnar í Belarús.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Nú er í tízku að telja ýmis Asíu-lönd til Evrópu (jafnvel Tyrkland). Í Evrópu eru ekki 51 sjálfstætt ríki.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár