Landhelgisgæslunni sagt að selja TF-SIF

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur ákveðið að fela Land­helg­is­gæsl­unni að selja eft­ir­lits- og björg­un­ar­flug­vél­ina TF-SIF, í hag­ræð­ing­ar­skyni. For­stjóri Gæsl­unnar segir að með þessu sé stórt skarð höggvið í útgerð Land­helg­is­gæsl­unnar.

Landhelgisgæslunni sagt að selja TF-SIF
Sif Flug­vélin TF-SIF hefur verið í flota Gæsl­unnar frá árinu 2009.

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur lagt það fyrir Land­helg­is­gæsl­una að hætta rekstri eft­ir­lits­flug­vél­ar­innar TF-SIF og und­ir­búa sölu­ferli vél­ar­innar. 

Georg Kr. Lárusson for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar segir að í ákvörð­un­inni felist mikil aft­ur­för í við­bragðs- og eft­ir­lits­getu þjóð­ar­innar, en TF-SIF er eina flug­vélin sem Gæslan hefur til umráða.

Ákvörðun dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um að stefna skyldi að sölu flug­vél­ar­innar var kynnt Land­helg­is­gæsl­unni með bréfi sem barst fyrr í vik­unni, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá stofn­un­inni. 

Heim­ildin hefur óskað eftir svörum frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu um það hvort til standi að bæta upp fyrir þá við­bragðs­getu sem fer með vél­inni með ein­hverjum hætti, en engin svör hafa borist.

TF-SIF er af gerð­inni Dash 8 Q 300 og sér­hönnuð til eft­ir­lits-, leitar-, björg­unar- og sjúkra­flugs á Norður-Atl­ants­hafi. Hún kom í flota Land­helg­is­gæsl­unnar árið 2009 og var talin auka eft­ir­lits­getu Gæsl­unnar, með til­liti til meng­unar, fisk­veiða og haf­íss marg­falt, auk þess sem mögu­leikar til leitar- og björg­unar juk­ust gríð­ar­lega, sér­stak­lega á hafi úti en einnig á landi.

Í til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni segir að rekstur stofn­un­ar­innar hafi reynst erf­iður á und­an­förnum mán­uðum vegna olíu­verð­hækk­ana og meira umfangs sem skýrist m.a. vegna stærra og öfl­ugra varð­skips. Auk þess hafi afkoma af þátt­töku í verk­efnum á vegum Frontex, landamæra­stofn­unar Evrópu, verið verri en búist var við. 

„Fjár­veit­ingar til Land­helg­is­gæsl­unnar á fjár­lögum þessa árs voru auknar um 600 millj­ónir króna. Það reynd­ist ekki nóg vegna rekstr­ar­halla síð­asta árs nema gripið yrði til aðgerða sem kæmu niður á lög­bundnum hlut­verkum og við­bragðs­getu stofn­un­ar­innar,“ segir í til­kynn­ingu Land­helg­is­gæsl­unnar, en nú er ljóst að svarið við þessum rekstr­ar­vanda verður að selja TF-SIF.

GæslanGeorg Kr. Lárusson for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar.

„Þegar ljóst var að stofn­unin fengi ekki frek­ari fjár­fram­lög tók við sam­tal við dóms­mála­ráðu­neyti um hvaða leiðir væru færar til að koma fjár­hag Land­helg­is­gæsl­unnar á réttan kjöl. Enginn góður kostur var í stöð­unni og það eru okkur sár von­brigði að neyð­ast til að hætta rekstri eft­ir­lits­flug­vél­ar­innar en hún er sér­út­búin eft­ir­lits-, björg­unar- og sjúkra­flug­vél og mik­il­væg ein­ing í almanna­varna­keðju lands­ins,“ er haft eftir Georg Kr. Lárus­syni, for­stjóra  Land­helg­is­gæsl­unnar í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar.

Þar er einnig haft eftir honum að Land­helgigæslan hafi allt frá árinu 1955 gert út flug­vél til eft­ir­lits- og björg­un­ar­starfa og að það að selja vél­ina sé mikil aft­ur­för hvað við­bragðs- og eft­ir­lits­getu varðar.

„TF-SIF er ein af mik­il­væg­ustu ein­ing­unum í við­bragð­skeðju stofn­un­ar­innar og með þess­ari erf­iðu ákvörðun er stórt skarð höggvið í útgerð Land­helg­is­gæsl­unnar. Þá teljum við veru flug­vél­ar­innar hér á landi vera brýnt þjóðar­ör­ygg­is­mál, sér í lagi í ljósi breyttrar heims­myndar,“ er haft eftir Georg.

Einungis 38 prósent flugstunda við Ísland á árunum 2018-2020

Rík­is­end­ur­skoðun birti fyrir um ári síðan úttekt á rekstri Land­helg­is­gæsl­unnar, sem unnin var að beiðni Alþingis.

Á meðal þess sem þótti aðfinnslu­vert í rekstri stofn­un­innar var það hve mikið TF-SIF hefði verið notuð í leigu­verk­efnum erlendis, en dregið var saman að 62 pró­sent heild­ar­flug­stunda vél­ar­innar hefðu verið í leigu­verk­efnum á erlendri grundu á árunum 2018-2020.

„Leigu­tekjur vegna Frontex-verk­efna hafa komið til móts við kröfu sem gerð hefur verið um öflun rekstr­ar­tekna en jafn­framt verður að horfa til þess fórn­ar­kostn­aðar sem er fólg­inn í skertri getu stofn­un­ar­innar til að sinna lög­bundnum verk­efnum sín­um. Rík­is­end­ur­skoðun telur mik­il­vægt að TF-SIF verði fyrst og fremst notuð til eft­ir­lits og ann­arra verk­efna hér­lendis enda er meg­in­hlut­verk Land­helg­is­gæsl­unnar að sinna örygg­is­gæslu, björgun og lög­gæslu á haf­inu við Ísland. Til slíkra starfa var TF-SIF keypt og var það for­sendan með fjár­heim­ild Alþing­is. Útleiga vél­ar­innar í svo miklu mæli getur ekki gengið til lengri tíma,“ sagði í úttekt­inni frá Rík­is­end­ur­skoðun. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár