Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstrana um starfs­hætti Samherja í Namibíu, hefur staðið frá árs­lokum 2019. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tækið hafi komið sér undan því að greiða skatta í stórum stíl; svo nemur hund­ruðum millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Máritíus sem stofnað var fyrir milli­göngu íslensks lög­manns og félag á Marshall-eyjum, sem for­stjóri Samherja þvertók fyrir að til­heyrði Samherja, eru í skot­línu skatts­ins.

Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
Skipulag Félagið Samherji, undir for­ystu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, not­aði aflands­fé­lag á eynni Máritíus til að taka við pen­ingum frá namibískum armi sam­steypunnar. Skatta­yf­ir­völd telja að þær tekjur hafi átt að telja fram á Íslandi. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Aflands­fé­lög á Marshall-eyjum og eynni Máritíus í Ind­lands­hafi hafa, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, orðið til þess að Samherji greiddi mun lægri skatta hér á landi en ann­ars hefði verið, sam­kvæmt rann­sóknum skatta­yf­ir­valda á skatt­skilum útgerð­ar­innar. Um veru­legar fjár­hæðir er að ræða; upp­hæðir sem hlaupa á hund­ruðum millj­óna króna.

Annars vegar snýst málið um heim­il­is­festi félags­ins Mermaria Invest á Máritíus, sem Samherji stofn­aði fyrir milli­göngu Bern­hards Boga­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns í des­em­ber 2014. Í tölvu­póst­sam­skiptum sem fjallað var um í nóv­em­ber 2019, sást aðdrag­andi að stofnun félags­ins, hvers til­gangur var frá upp­hafi sá að koma pen­ingum úr starf­semi Samherja í Namibíu til skúffu­fé­laga Samherja á Kýpur, án þess að greiða af þeim skatta. 

„Sam­komu­lag myndi verða við Máritíus þess efnis að fyr­ir­tæki í Namibíu myndi greiða sér­leyf­is­gjöld til umbjóð­anda míns. Hins vegar þarf að senda greiðsl­urnar svo frá Máritíus og til …
Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÖI
    Örn Ingólfsson skrifaði
    Þetta eru tugir milljarða sem að hafa ekki komið fram og ekki getur Skattransóknastjóri náð í gögn því feluleikurinn er ennþá í gangi í gegnum Íslensku bankana sem eru sumir komnir kannski með meirihluta í eignarhaldi og kannski þvo peninga í gegnum ÍSLAND?
    Þess vegna vantar erlenda eftirlitsaðila frá Seðlabanka Evrópu til að taka út glundroðann í Íslensku Fjármagnskerfi sem er í rúst út af veikingu krónunnar sem orsakast ekki út af ferðalögum og bruðli Íslendinga heldur fjármagnsflutningi Íslenskra fjármagnseigenda sem flest allir eru með sitt gulltryggt í EVRUM samanber stærstu fyrirtækin borga sínum yfirmönnum í Evrum, en fólkið á gólfinu fær greitt í KRÓNUM!
    Þess vegna ætti Skattrannsóknarstjóri að athuga greiðslur allra og krefja skatts af ógreiddum tekjuhagnaði á gjaldmiðlinum okkar KRÓNUNNI í skortsölu því það er ekki Seðlabankinn bara sem ræður í gjaldmiðlissölu heldur þeir sem geta dælt inn Evrum, Dollurum ofl til að halda gengi krónunnar niðri, því þá græða þeir eins og þegar að ríkisstjórnir gerðu að fella gengi krónunnar marg oft til að bjarga SJÁVARÚTVEGINUM sem varð ti þess að almenningur fékk skellinn en milljónerar og í dag milljarðarmæringar græða á tá og fingri! Og frábært að gjaldþrota fyrirtæki í dag eigi fullt af eignum og miklar skuldir niðurfelldar af banka! Það er gott að vera í góðra vina hópi sem ræður! En í gögnum þá vantar ótaldar eignir víða, samanber í Namibíu, sem eru kannski flokkaðar sem skrifstofur? Tala nú ekki um Flórída þar eru til bankareikningar undir konunöfnum! En munið eitt að Skæruliðadeild Samherja er komin með ýmsa vafasama hakkara, því fjármagnið vantar ekki til að reyna að klekkja á þeim sem tala illa um þá og Morgunblaðið!
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Kannski væri rétt að beina fyrirspurn til Kýpverskra yfirvalda hvar málið sé statt hjá þeim því ekki er að sjá annað en bæði Namibíumenn og Kýpverjar geta krafist kyrrsetningar á eigum kýpverskskráðu félaganna á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga varðandi peningarþvætti. Því þessi orð lögmannsins eru bara beinar og skýrar leiðbeiningar um peningarþvætti. Farið nú að spyrja erlendu sérfræðingana því ljóst er að allir íslensku sjálfskipuðu snillingarnir hafa greinilega aðra sýn á mútum og peningarþvætti en erlendir sérfræðingar og alþjóðasamningar kveða á um. Svo væri fróðlegt að vita hvort íslenskum yfirvöldum hafi borist krafa um slíka kyrrsetningu.... en neitað.
    1
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Það er afar ergilegt að sjá muninn á því hvernig Samherji er meðhöndlaður eða meðlimir Sigurrósar. Ef að það væru ein lög í landinu þá væru líka frystir reikningar hjá Samherja bílar og húsnæði væru haldlögð. En Sigurrósarmenn eru greinilega ekki taldir jafn réttháir og verðskulda því bara almenna meðferð, meðan hinir eru meðhöndlaðir með delux lögbókinni. Hvernig ætli maður færi ríkisstjórn,dómstóla og lögreglu inn á efnahagsreikning? Bara smá pæling.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórnvalda áberandi“
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórn­valda áber­andi“

Í lok októ­ber fór fram umræða á Alþingi um rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namib­íu­mál­inu og orð­spori Íslands þar sem stór orð féllu. Frum­mæl­and­inn, Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, taldi að fá þyrfti svör við því hvort dráttur á rann­sókn máls­ins á Íslandi væri eðli­legur, hvort yfir­völd á Íslandi tækju málið alvar­lega og hvort rann­sókn­ar­stofn­anir á Íslandi væru nægi­lega vel fjár­magn­aðar.
Kaupa fólk utan fjölskyldunnar út í milljarða viðskiptum
ÚttektSamherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjöl­skyld­unnar út í millj­arða við­skiptum

Sam­herj­a­fjöl­skyldan hefur á und­an­förnum mán­uðum keypt eign­ar­hluti minni hlut­hafa í útgerð­inni og á að heita má tíunda hvern fisk í land­helg­inni. Börn Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar fara nú nær ein með eign­ar­hluti í félag­inu fyrir utan litla hluti þeirra tveggja. Millj­arða við­skipti hafa svo átt sér stað á milli fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­anna í flóknu neti útgerð­ar­innar.
Samherji sagður hafa boðið milljarða króna til að ljúka málum í Namibíu
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Samherji sagður hafa boðið millj­arða króna til að ljúka málum í Namibíu

Samherji hefur boðið að gefa eftir yfir 2 millj­arða króna sem hald­lagðar voru í Namibíu, sem skaða­bætur til namibíska rík­is­ins í skiptum fyrir mála­lyktir. Namibísk yfir­völd tóku heldur fálega í til­boðið sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Lögmaður Wikborg Rein, sem starfar fyrir Samherja, stað­festir við­ræður en segir til­boðið ein­göngu hluta af einka­rétt­ar­legri deilu Samherja við yfir­völd, því sé ekki um að ræða við­ur­kenn­ingu á sekt í saka­máli.
Rannsókn Samherjamálsins lokið í Namibíu og réttarhöld hefjast brátt
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins lokið í Namibíu og rétt­ar­höld hefj­ast brátt

Werner Menges, blaða­maður The Namibian í Namibíu, segir að yfir­völd í Namibíu hafi lokið rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins. Tekist er á um meint van­hæfi dóm­ar­ans í mál­inu, Kobus Muller, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um málið. Hann segir afar ólík­legt að réttað verði yfir starfs­mönnum Samherja eða fyr­ir­tækjum útgerð­ar­innar í Namibíu þar sem Ísland fram­selji ekki Íslend­inga til Namibíu.
Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Bandaríkjunum
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Banda­ríkj­unum

Sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman, sem fjallað hefur um fjölda mútu­mála sænskra fyr­ir­tækja erlendis, segir að illa hafi gengið að sækja stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna til saka í Svíþjóð fyrir brotin. Alvar­leg­ustu afleið­ing­arnar hafi verið þegar banda­rísk yfir­völd tóku málin til rann­sóknar og sekt­uðu félögin um svim­andi upp­hæðir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár