810. spurningaþraut: Fimm af hinu og þessu og öllu mögulegu

810. spurningaþraut: Fimm af hinu og þessu og öllu mögulegu

Þema­þraut. Hér er spurt um fimm af öllu mögu­legu! Athugið að þar sem það á við þarf ekki að nefna hlut­ina (eða fólkið) í réttri röð.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver var höf­undur bók­ar­innar sem hér sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða fimm menn gegndu emb­ætti for­seta Íslands á undan Guðna Th. Jóhann­essyni?

2.  Suð­ur­skauts­land­inu er ekki skipt niður í búta eftir ríkjum, en sjö lönd gera þó form­lega kröfu til hluta af þessu ísi lagða landi. Nefnið að minnsta kosti fimm þeirra. Þið fáið mör­gæsa­stig ef þið nefnið öll sjö rétt!

3.  Árið 1995 fékk Steinunn Sig­urð­ar­dóttir íslensku bók­mennta­verð­launin fyrir skáld­sög­una Hjarta­stað. Síðan þá hafa 18 karlar fengið verð­launin í flokki bók­mennta (einn þrisvar) en sex konur. Nefnið fimm kvenn­anna. Þið fáið lár­við­ar­stig ef þið nefnið allar sex rétt.

4.  Sé keyrt úr Reykja­vík og austur eftir þjóð­vegi 1 þá er keyrt um fimm þétt­býl­is­staði áður en komið er að Kirkju­bæj­ar­klaustri á Síðu. Hvað heita þeir? (Athugið að spurt er um þétt­býl­is­staði, ekki sveit­ar­fé­lög.)

5.  Hver eru fimm stærstu lönd heims­ins?

6.  Hverjar eru fimm fyrstu reiki­stjörnur sól­kerf­is­ins (þ.e.a.s næstar Sólu) ef Jörðin er EKKI tekin með?

7.  Jósef Stalín dó 1953 og eftir svo­lítið milli­bils­á­stand varð ljóst hver arf­taki hans yrði. Frá og með Stalín réðu fimm menn ríkjum í Sov­ét­ríkj­unum þar til þau hrundu 1991. Og þessir fimm voru ... ?

8.  Hverjir eru þeir fimm for­sæt­is­ráð­herrar sem sátu í emb­ætti á Íslandi áður en Katrín Jak­obs­dóttir tók við 2017?

9.  Ein frá Banda­ríkj­unum — hverjir eru fimm síð­ustu Banda­ríkja­for­set­arnir sem sátu í emb­ætti á undan Joe Biden?

10.  Og önnur banda­rísk: Hver eru fimm fyrstu ríki Banda­ríkj­anna í staf­rófs­röð — á banda­ríska vísu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða kvin­tett er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sveinn Björns­son, Ásgeir Ásgeirs­son, Kristján Eldjárn, Vigdís Finn­boga­dóttir, Ólafur Ragnar Grímsson.

2.  Ástralía, Nýja-Sjáland, Tjíle, Argent­ína, Bretland, Frakk­land og Noregur.

3.  Auður Jóns­dóttir, Gerður Kristný, Guðrún Eva, Auður Ava, Kristín Eiríks­dóttir, Elísabet Jök­uls­dóttir. Aðeins þarf að hafa fimm réttar, sem sé, og það skemmir ekki þó eitt nafn (af sex) sé vit­laust, aðeins ef hin fimm eru rétt.

4.  Hvera­gerði, Selfoss, Hella, Hvols­völlur, Vík í Mýrdal.

5.  Rússland, Kanada, Kína, Banda­ríkin, Brasilía. 

6.  Merkúr, Venus, Mars, Júpíter, Satúrnus.

7.  Krústjof, Brésnéf, Andropov, Térnenko, Gorbatév.

8.  Í öfugri röð: Bjarni Bene­dikts­son, Sigurður Ingi, Sig­mundur Davíð, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, Geir Haarde.

9.  Í öfugri röð: Trump, Obama, Bush yngri, Clinton, Bush eldri.

10.  Alabama, Alaska, Arizona, Arkansas, California.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Höfundur Fimm á Smygl­ara­hæð — eins og bókin heitir á íslensku — var Enid Blyton.

Kvin­tett­inn á neðri mynd­inni nefndi sig Beach Boys.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár