Frjósemi í Fjallabyggð

Aðal­heiður S. Eysteins­dóttir, mynd­list­ar­maður segir að hugur sinn sé hlað­inn lista­verkum sem enn hafi ekki litið dags­ins ljós en hún ætli að hleypa þeim út fljót­lega.
Aðal­heiður hefur í hverjum mán­uði í tíu ár staðið fyrir ýmis konar menn­ing­ar­við­burðum í Alþýðu­hús­inu á Siglu­firði. Einn þeirra er lista­há­tíðin Frjó sem hefst 15. júlí og sama dag kemur út bók um Alþýðu­húsið. Aðal­heiður segir að listin sé mik­il­væg í öllum sam­fé­lögum, hún sam­eini fólk og gefi færi á nýrri hugsun. ,,Fólk flykk­ist að þeim bæj­ar­fé­lögum þar sem menn­ing­ar­lífið blómstrar“.

Frjósemi í Fjallabyggð

Aðal­heiður S. Eysteins­dóttir mynd­list­ar­maður stóð frammi fyrir því árið 2011 að Freyju­lundur, húsið hennar í Eyja­firði, var orðið of lítið. Fjöl­skyldan hafði þá búið og starfað þar síðan árið 2004. „Allt var orðið hlaðið, svo varla var hægt að vinna stór verk í rým­inu,“ segir Aðal­heiður sem er meðal ann­ars þekkt fyrir stórar manna­styttur úr við, sem þurfa sitt pláss.

Blái flyg­ill­inn Lista­verk Aðal­heiðar á sýn­ing­unni Píanó í Lista­safni Íslands árið 2014

Þegar rýmið fór að minnka í kringum fjöl­skyld­una fór hugur hennar á fullt og ýmsir mögu­leikar voru kann­aðir. „Ég hefði getað byggt við Freyju­lund, leigt mér geymslu eða leitað að öðru húsi - sem varð úr,“ segir Aðal­heiður sem fann þá Alþýðu­húsið, gam­alt félags­heim­ili Sigl­firð­inga. Þess má geta að Freyju­lundur er líka gam­alt sam­komu­hús, félags­heim­ili Arn­ar­nes­hrepps og stendur miðja vegu milli Akur­eyrar og Dalvíkur. „Ég er sem sé að sanka að mér félags­heim­ilum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár