Botnlaust tap af hvalveiðum sem óttast er að skaði ímynd landsins

Tólf hund­ruð millj­óna tap hefur verið af hval­veiðum einu íslensku útgerð­ar­innar sem stundar lang­reyða­veiðar á Íslandi. Veið­arnar eru nið­ur­greiddar með hagn­aði af eign útgerð­ar­innar í öðrum fyr­ir­tækjum. Erfitt er að flytja afurð­irnar út og hefur hrefnu­kjöt verið flutt inn til lands­ins síð­ustu ár til að gefa ferða­mönnum að smakka. Þar sem þeir sátu áður í hlíð­inni ofan hval­stöðv­ar­innar og fylgd­ust með er nú einna helst að finna aðgerð­ar­sinna sem vilja sýna heim­inum hvernig farið er með íslenska hvali.

Ómurinn af rokktón­list síð­ustu aldar og lyktin af hráum, nýslátr­uðum hval, stig­magn­ast eftir því sem komið er nær hval­stöð­inni í Hval­firði. Sjöunda lang­reyður ver­tíð­ar­innar liggur á stein­steyptu plan­inu við höfn­ina og gríð­ar­stórar vél­knúnar sagir sem eru bolt­aðar niður á planið, vinna á hræ­inu. Eins og reykur frá stórum vélum, leggur gufan upp þegar sagað er í gegnum þykk bein í hrygg hvals­ins. Ekkert hefur verið veitt í þrjú ár af lang­reyðum á Íslandi og er aug­ljós­lega stemm­ing í mann­skapnum sem stígur stundum dans­spor við hlið hval­hræs­ins. „Veiðin gengur ágæt­lega, bara verið dálítil bræla, en gengur bara ágæt­lega. Þú getur sagt það,“ segir Kristján Loftsson hval­veiði­maður.

Veið­arnar eru sem fyrr gagn­rýndar harð­lega og hefur for­ystu­fólk ferða­þjón­ust­unnar kallað eftir að veiðum verði hætt: hingað vilji túristar ekki koma meðan hvalir eru veiddir. Íslenskar hval­veiðar borga sig ekki og hafa ekki gert í minnst ára­tug, sam­kvæmt tölum úr árs­reikn­ingi eina fyr­ir­tæk­is­ins sem …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • WH
    Willard Helgason skrifaði
    Aðalsteinn hvaðan hefur þú þessar tölur, villtu ekki skira betur frá
    0
  • SH
    Sigmar Hjartarson skrifaði
    Það er ekkert sem mælir gegn því að veiða hvali. Stofn sem hefur verið rannsakaður árum saman og greinist traustur. Fjöldi dýra sem veiða má er langt innan þeirra marka sem varasöm geta talist.
    Einkennilegur heimur sem við lifum í, við sem þjóð höfum lifað að mestu í sátt við náttúruna allt í einu má ekki veiða hval, laxinn er hvalinn og píndur og svo sleppt. Þorskurinn og líklega önnur sjávardýr eru að verða heilög í augum sumra, landbúnaður óþarfur og illa með dýrin farið að mati þess meðvitaða hóps sem stýrir umræðunni frá degi til dags. Spaugilegast af öllu eru þó áhyggjur fólksinns af því að hvalveiðarnar skuli hugsanlega reknar með tapi.
    þegar tveir koma saman þá geta orðið deilur hvort hvalveiðar skaði ásýnd þjóðar veit í sjálfu sér ekki nokkur maður, svo er það líka þannig að allir hlutir geta skaðað málstað, hvað sem er. Hátt verðlag í landinu og stundum ótrúlega há verðlagning getur líka skaðað ásýnd þjóðar og bara svo miklu meira sem getur valdið skaða. Við verðum að lifa með því, í ljósi hvalveiða þá er ekki gott að sjá skaðann í landi troðfullu af túristum.
    Það er óskaplega auðvelt að vera gáfulegur í framan taka hval í fóstur og vera á móti öllu.
    1
  • LCV
    Lowana Compton Veal skrifaði
    Góð grein, en það var fyrirtæki í eigu Gunnar Bergmann Jónssonar, sonur Jóns Gunnarsonar dómsmálaráðherra, sem var að veiða hrefnur, og hann hætti því snemma í sumar 2018. Veit ekki hver veiddi eitt stykki hrefnu í fyrra, en mig grunar að þetta var „auka" við hina afurð sem fyrirtæki var að veiða.
    0
  • Það er verið að veiða úr stabílum stofni hvala, tiltölulega fá dýr og strangar reglur um veiðina. Þó nokkrir hafa atvinnu og allar afurðir seljast. Bambi er veiddur,svo og rjúpan fallega .Stofnarnir styrkir þar sem veiðar fara fram eins og hér.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár