„Það er ekki ég sem er að senda fólk til helvítis hér, það er ríkisstjórn Íslands sem er að því“

Davíð Þór Jónsson, prestur í Laug­ar­nes­kirkju, sagði í við­tali í morgun að hann hefði notað orðið „fas­ista­stjórn VG“ um rík­is­stjórn­ina vegna þess að sú póli­tík sem stjórnin ástund­aði væri fasísk. Hann sagði einnig að orða­lag hans um að það væri „sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og veg­tyllur“ hefði verið orða­til­tæki og sér­stakt ólæsi á tungu­málið þyrfti til að leggja þann skiln­ing í þau orð að með þeim óskaði hann fólki hel­vít­is­vistar.

„Það er ekki ég sem er að senda fólk til helvítis hér, það er ríkisstjórn Íslands sem er að því“
Tján­ing­ar­frelsi eða atvinnu­ör­yggi Davíð Þór segir óþægi­legt að sitja undir því að ótrú­lega margir, þar með taldir stjórn­mála­menn, telji hann ekki hafa rétt á því að starfa sem prestur vegna skoð­ana sinna. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég get alveg sagt þér nákvæm­lega hvar hel­víti er. Líf kvenna í stríðs­hrjáðum hér­uðum í Sómalíu er hel­víti. Að alast upp sem flótta­barn á götum úti í Grikk­landi er hel­víti. Og það er ekki ég sem er að senda fólk til hel­vítis hér, það er rík­is­stjórn Íslands sem er að því. Og ég hef lögvar­inn rétt til að láta í ljós skoðun mína á því.“

Þetta sagði Davíð Þór Jónsson, prestur í Laug­ar­nes­kirkju, í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun. Davíð Þór var þar til við­tals vegna þess úlfa­þyts sem skap­ast hefur eftir að hann birti færslu á Facebook-síðu sinni síð­ast­lið­inni þriðju­dag, þar sem hann kall­aði rík­is­stjórn­ina „fas­ista­stjórn“ vegna þess að til stendur að flytja um þrjú hund­ruð flótta­menn úr landi til Grikk­lands í óboð­legar aðstæður, þar á meðal börn. Gagnrýni Davíðs beind­ist einkum að Vinstri grænum og skrif­aði hann: „Þinglið og ráð­herrar VG eru ekki lengur bara með­sek um glæpi þess­arar rík­is­stjórnar gegn mannúð og góðu sið­ferði, þau eru enfald­lega sek eins og syndin. Það er sér­stakur staður í hel­víti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og veg­tyllur.“

Líf Magneu­dóttir, borg­ar­full­trúi Vinstri grænna,  lýsti því í færslu á Facebook í gær að hún væri mjög „trig­geruð“ vegna Davíðs Þórs. „Ég þekki svona ofbeld­is­menn, hef elskað þá og búið með þeim og skilið við þá. Megi þeir finna frið í sál­inni.“ Líf hefur nú eytt þeirri færslu út en engu að síður hafði Davíð Þór séð hana, í gær­kvöldi, Hann var spurður í Morg­un­út­varp­inu hvort hann væri ofbeld­is­maður.

„Mér finnst áhyggju­efni að þing­flokks­for­maður flokks sem í orði kveðnu er að skera upp herör gegn hat­urs­orð­ræðu skuli ekki skilja hug­takið“

 „Mér þykir mjög leið­in­legt ef ég hef með gagn­rýni minni sært til­finn­ingar Lífar Magneu­dóttur. Ennþá leið­in­legra finnst mér, ef það er það sem hún er að reyna að segja, að hún skuli líta á mig sem ofbeld­is­mann. Leið­in­leg­ast af öllu finnst mér þó að það fyrsta sem heyr­ist frá henni, sem einum af leið­togum Vinstri grænna, um þá ákvörðun flokks­systk­ina hennar að senda, eða alla vega gera ekk­ert til að koma í veg fyrir það þótt það væri þeim í lófa lagið, hátt í þrjú hund­ruð manns út í aðstæður sem ekki eru nokk­uri mann­eskju bjóð­andi. Það fyrsta sem heyr­ist frá henni um það mál er hvað rausið í ein­hverjum reiðum kalli úti í bæ særi hennar til­finn­ingar. Allt í einu er málið farið að snú­ast um hana og hennar til­finn­ingar og hún er orðin fórn­ar­lambið í sínum eigin haus en ekki þessar tæp­lega þrjú hund­ruð mann­eskjur sem að flokks­systk­ini hennar eru með í hönd­unum hvað varðar líf og limi þeirra og fram­tíð og fram­tíð­ar­horfur,“ svar­aði Davíð Þór.

Þjóðkirkjan hafi ekkert vald yfir skoðunum og tjáningu Davíðs Þórs

Davíð Þór sagði enn fremur að þessi skrif Lífar séu svo sem í takt við annað og vísar þar til yfir­lýs­inga Orra Páls Jóhann­es­sonar, þing­flokks­for­manns Vinstri grænna, sem lýsti því að gagn­rýni Davíðs Þór ali á hat­urs­orð­ræðu í sam­fé­lag­inu. Það væri grafal­var­legt að þjóð­kirkjan tæki þátt í slíku. „Hat­urs­orð­ræða er mjög skýrt skil­greint hug­tak, þú getur ekki bara notað það um allt sem þér finnst dóna­legt eða ósmekk­legt eða særir til­finn­ingar þínar,“ sagði Davíð Þór og benti á að hat­urs­orð­ræða væri skipu­lagður áróður gegn minni­hluta­hópum og gæti aldrei beinst gegn vald­höfum. Sama sé hvort gagn­rýni á vald­hafa væri ósmekk­leg, harka­leg eða ósann­gjörn, slíkt væri ekki hat­urs­orð­ræða. „Mér finnst áhyggju­efni að þing­flokks­for­maður flokks sem í orði kveðnu er að skera upp herör gegn hat­urs­orð­ræðu skuli ekki skilja hug­takið,“ sagði Davíð Þór enn fremur. Hann sagði einnig það væri óboð­legt að spyrða saman hans per­sónu­legu skoð­anir og tján­ingu við þjóð­kirkj­una, rétt eins og Orri Páll. „Þjóð­kirkjan er ekk­ert að blanda sér í það hvaða skoð­anir ég hef á inn­flytj­enda­málum eða hvað ég segi á minni per­sónu­legu heima­síðu á Facebook, ekki frekar en þjóð­kirkjan sé að blanda sér í það hvort ég kaupi létt­mjólk eða nýmjólk.“

„Ó, jú! Fyr­ir­gefðu, það er til orð yfir þá póli­tík, það orð er fas­ismi“

Stjórn­endur Morg­un­út­varps­ins bentu í fram­hald­inu á að fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Vinstri grænna, Anna Lísa Björns­dóttir, hefði á Twitter lýst því, í sam­hengi við umræður um skrif Davíðs Þórs, að hat­urs­orð­ræða væri „afmennsk­andi orð­ræða“ og sagði meðal ann­ars að það að kalla fólk fas­ista væri afmennsk­andi. Rétt er, í þessu sam­hengi, að benda á að það að kalla fólk fas­ista getur ekki verið afmennsk­andi þar eð fas­ismi er hug­mynda­stefna sem aðeins fólk getur fylgt.

„Ég vildi óska að það væru til eitt­hvað orð yfir þá póli­tík að ákveð­inn hópur fólks eigi ekki að njóta borg­ara­legra rétt­inda vegna upp­runa síns eða þjóð­ernis, og jafn­vel að það megi flytja nauð­ung­ar­flutn­ingum í óboð­legar aðstæður þar sem mann­rétt­indi þeirra eru virt að vettugi. Ó, jú! Fyr­ir­gefðu, það er til orð yfir þá póli­tík, það orð er fas­ismi,“ sagði Davíð Þór í hæðn­is­legum tón og bætti við: „Ég vildi líka óska að að það væri til orð yfir þá póli­tík að fólki sé stillt upp við vegg og það látið gera upp á milli þess hvort það vilji búa við tján­ing­ar­felsi eða atvinnu­ör­yggi. Eða það sem kallað er berufsver­bot, það að fólki sé meinað að starfa við það sem það hefur menntun, hæfi­leika og getu til. Af hverju skyldi orðið yfir þetta vera þýskt, alþjóð­lega heitið yfir þessa aðferð­ar­fræði? Það er vegna þess að þess­ari aðferð­ar­fræði var beitt mis­kunn­ar­laust í Þýska­landi af stjórn­völdum þar á dögum síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar, og í aðdrag­anda hennar. Þannig að það er til orð yfir þetta líka, og það orð er fas­ismi. Þannig að ég nota þetta orð ekki bara sem blóts­yrði af því mér líkar illa við ein­hvern, ég nota það vegna þess að þetta er hug­tak sem lýsir ákveð­inni teg­und af póli­tík og ákveðnu við­horfi til réttar stjórn­valda til vald­beit­ingar.“

Hljóp á sig með orðalaginu

Davíð lýsti því að hel­víti í túlkun Jesú væri and­staðan við guðs­ríki, en því sem næst hvergi sæust þess merki í bibl­í­unni að hel­víti væri staður þar sem hinir dauðu væru sendir þeim til hegn­ingar. Spurður hvað hann hefði sjálfur átt við þegar hann sagði að í hel­víti væri sér­stakur staður fyrir þá sem sem seldu sál sína fyrir völd og veg­tyllur. Davíð vís­aði til þess að orð­færið væri alþekkt, þannig hefðu Martin Luther King, John F. Kennedy og Madel­eine Albright öll við­haft þau áður. „Ég á við að sá sem að gerir svona lagað á ekk­ert gott skilið, sá sem gerir svona lagað kallar yfir sig glötun. Þetta er orð­bragð, þetta er orða­til­tæki. Það er frá­leitt að ætla að þetta sé hótun um hel­vít­is­vist, ég held að það þurfi alveg sér­stakt ólæsi til að skilja þau orð þannig,“ sagði Davíð Þór og sagði alls ekki að um neina bölvun hefði verið að ræða.

Spurður hvort að hann hefði hlaupið á sig með færsl­unni svar­aði Davíð Þór því ját­andi. „Já, ég gerði það og ég er alveg reiðu­bú­inn að gang­ast við því. En mér finnst við­brögðin við honum ekki vera í neinu sam­ræmi við alvar­leika þeirrar yfir­sjónar. Mér var mis­boðið, ég snöggreidd­ist og ég setti þennan status niður og eftir á að hyggja sé ég að ég hefði átt að anda með nef­inu og telja upp í tíu.“

Spurður hvort hann hefði raun­veru­legar óhyggjur af því að atvinnu­ör­yggi hans sem prests væri ógnað vegna þess að hann hefði lýst þessum skoð­unum sínum, en eins og kunn­ugt er hefur Agnes Sig­urð­ar­dóttir biskup veitt Davíð Þór til­tal vegna máls­ins. Davíð Þór sagði að til­tal sem slíkt væri grafal­var­legt mál en mál­inu væri lokið af hálfu bisk­ups og hann treysti því að svo væri. „En ég heyri ótrú­lega marga, og meira að segja stjórn­mála­menn, tala þannig að ég eigi, vegna þess að skoð­anir mínar eru þeim ekki þókn­an­legar, ekki að hafa rétt til að gegna því starfi sem ég gegni og hef menntað mig til. Lái mér hver sem vill að finn­ast það svo­lítið óþægi­legt.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Einkavæða ætti Ríkiskirkjuna. Það er óþolandi að skattpeningar borgaranna fari í þessa starfssemi.
    1
  • Siggi Rey skrifaði
    Flottur sem og faglegur Sr. Davíð! Áfram þú. Mér finnst einnig að Biskupinn hafi farið fram með offorsi sem honum er ekki sæmandi og er síst til að fjölga fólki í þjóðkirjunni og ekki er ástandið þar til að hrópa húrra fyrir.
    0
  • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
    Innilega sammála Sr. Davíð. Það er orðið alvarlegt ef ekki má gagnrýna stjórnvöld án þess að það sé persónugert. Það er lika alvarlegt ef orðið “hatursumræða” er gert merkingarlaust í pólitískum tilgangi.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár