Kántrí, listgjörningar og kvikmyndafestival

Stundar­skráin næstu vikurnar.

Papaball 

Hvar? Bryggjan, Grindavík
Hvenær? 10. júní
Miðaverð? 3.990 kr.

Veitinga­húsið Bryggjan í Grindavík er lands­mönnum orðið að góðu kunnugt. Í dag er þar 500 fermetra vetingasalur sem kallast Neta­gerðin. Nafnið dregur salurinn af því að húsið var upphaf­lega byggt undir netagerðar­starfsemi 1979 af bræðrunum Kristni og Aðalgeiri Jóhanns­sonum. Rekin hefur verið veitinga­starfsemi í húsinu frá 2009 og með tilkomu nýja Netagerðar­salarins, sem var opnaður 2019, varð til glæsileg aðstaða til tónleika­halds. Bryggjan hefur um árabil verið stór þáttur í sjómanna­dagskránni í Grindavík á Sjóaranum síkáta og er árið í ár þar engin undan­tekning. Föstudags­kvöldið 10. júní verður haldið Papaball á Bryggjunni. Þar er um að ræða hina sívinsælu hljómsveit Papa en Papar eru þekktir fyrir lög sem tengjast sjómennsku og Grind­víkingum og nágrönnum býðst hér einstakt tækifæri til þess að upplifa sann­kallaða sjómanna­balls­stemningu með Pöpunum í hinum glæsilega Netagerðarsal Bryggjunnar á hafnar­bakkanum við Grinda­víkurhöfn. „Við hlökkum mikið til að spila í þessum glæsilega sal fyrir Grind­víkinga,“ segir Páll Eyjólfsson, forsprakki Papanna.  

Barbara Hannigan

Barbara Hannigan með Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hvar? Harpa
Hvenær? 3. og 4. júní
Miðaverð? 3.900 til 9.500 kr.

Kanadíska sópran­söngkonan og hljóm­sveitar­stjórinn Barbara Hannigan kemur nú í fyrsta sinn til Íslands og er víst að tónleikar þessarar frábæru tónlistar­konu verða stór­viðburður í tónlistar­lífinu. Barbara Hannigan stjórnar og syngur með Sinfóníu­hljómsveit Íslands á tvennum tónleikum í Eldborg í Hörpu þann 3. og 4. júní, á opnunar­helgi Lista­hátíðar í Reykjavík.

Efnisskrá:
Charles Ives The Unanswered Question
Arnold Schönberg Verklärte Nacht (Uppljómuð nótt)
Alban Berg Svíta úr óperunni Lulu
George Gershwin Girl Crazy, svíta (úts. Bill Elliott)

Barbara Hannigan hefur vakið feikilega aðdáun um heim allan undan­farin ár, fyrir stórfeng­legan söng en ekki síður fyrir hæfileika sína sem hljóm­sveitar­stjóri. Hún hefur starfað með öllum helstu hljómsveitum heims og hefur frumflutt yfir 85 ný tónverk, meðal annars eftir György Ligeti og Hans Abrahamsen. Þá hefur hún sungið í helstu óperu­húsum heims, meðal annars hið krefjandi titil­hlutverk í Lulu eftir Alban Berg.


Dagrún Matth­í­as­dóttir

Formflæði

Hvar? Hof, Akureyri
Hvenær? Opnar 28. maí

Myndlistar­konan Dagrún Matthíasdóttir, sem er búsett á Akureyri og er starfandi lista­maður og mynd­mennta­kennari, fékk þann heiður að vera tilnefnd bæjar­listamaður Akureyrar 2021 og er sýningin Formflæði hluti af því starfs­tímabili.

Lista­konan vinnur í ólíka miðla listarinnar og er óhrædd við að fara nýjar leiðir, gera tilraunir með efni og hugmyndir og leyfa leik­gleðinni að flæða.

„Við gerð lista­verkanna vann ég með þemað form, flæði og einföldun og tókst á við bæði óreiðu­kennda málun og taktfasta samsetningu forma sem gefa stefið í sýningunni,“ segir Dagrún. „Málverkin eru hvorki háð merkingunni né frásögn heldur túlka þau sitt eigið stef, eru tilrauna­kennd og skipulögð í senn. Formin raðast saman eftir dyntum lista­mannsins og er leikur að samsetningu og endur­tekningu í frjálsu og litríku flæði þar sem hver og einn getur skapað sinn eigin spuna í túlkun málverk­anna. Í grafík­verkunum er það einfald­leikinn sem mótar verkin og eru það sömu formin og sjást í málverkunum. Útsöguð formin sem notuð voru til prentunar fá einnig að njóta sín á sýningunni í formi lágmynda.“


Skjald­borg

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda

Hvar? Skjaldborgarbíó og víðar á Patreks­firði

Hvenær? 3. til 6. júní

Miðaverð? Hátíðar­passi 10.000 kr. Ókeypis á alla dagskrá í Skjald­borgar­bíói.

Skjald­borg – hátíð íslenskra heimilda­mynda verður haldin um hvítasunnu­helgina á Patreks­firði dagana 3. til 6. júní. Þrettán myndir verða sýndar á hátíðinni auk þess sem verk í vinnslu verða kynnt. Dagskráin verður fjöl­breytt og verða Kvik­myndasafn Íslands og Hversdags­safnið á Ísafirði með sér dagskrár­liði, Ari Eldjárn skemmtir gestum og haldinn verður heima­myndadagur þar sem gestir eru hvattir til að koma með filmur og spólur úr geymslunni.

Heiðurs­gestur hátíðarinnar í ár er Magnus Gertten en hann hlaut Teddy verð­launin á Berlinale fyrir heimilda­myndina Nelly & Nadine sem verður jafnframt opnunar­mynd Skjald­borgar.

Hátíðar­passi veitir aðgang að ljúffengri sjávarrétta­veislu, hinu marg­rómaða plokkfisk­boði kven­félagsins Sifjar, laugardags­partíi, uppi­standi Ara Eldjárn, sveita­balli með Celebs, aðgang að sund­lauginni og dvöl á tjald­stæðinu meðan á hátíðinni stendur.


Ingunn Fjóla

Ekkert er víst nema að allt breytist

Hvar? Listasafn Íslands
Hvenær? 28. maí til 2. október 2022
Miðaverð: 2.000 kr. 

Sýninguna Ekkert er víst nema að allt breytist má skoða sem hugleiðingu og jafnvel óð lista­konunnar, Ingunnar Fjólu Ingþórs­dóttur, til þeirrar kerfis­hugsunar sem einkennt hefur verk hennar til þessa en þó í víðara samhengi. Samhliða þróun á eigin hugmynda­kerfi beinir Ingunn nú einnig sjónum sínum að þeim tæknilegu og hugmynda­fræðilegu kerfum sem stýra, leynt og ljóst, mann­fólkinu og heiminum í heild. Hvort sem um ræðir algóritma og kóða, eða litið er til pólitískra kerfa, fjármála­kerfa, eða persónulegt vafur um internetið er grand­skoðað, þá veltir verkið Ekkert er víst nema að allt breytist upp spurningum um hver sé við stjórnvölinn og hver áhrif og forráð einstaklingsins raun­verulega séu.

Á sýningunni gætir kunnuglegra stefja frá fyrri verkum sem þó hafa aldrei verið sameinuð áður. Þessi fjölþætta innsetning Ingunnar Fjólu stýrist af mismun­andi þáttum, annars vegar innbyggðu kerfi verksins og hins vegar aðkomu áhorf­andans og því óljóst hver aflvaki verksins er hverju sinni.

„Þetta er ný innsetning sem tekur yfir allt sýningar­rýmið. Í verkinu er ég að setja saman mörg mismun­andi kerfi, sem hvert fyrir sig stýrist af mismun­andi undir­liggjandi reglum. Það eru meðal annars þræðir á hreyfingu og ljós sem breytast stöðugt. Áhorf­andinn hefur áhrif á sum þessara kerfa og önnur ekki og því ekki alltaf ljóst hvað stýrir hverju. Það mætti segja að ég sé í vanga­veltum um lífið og tilveruna, hvað knýr okkur áfram, hvernig okkur er stýrt af utan­aðkomandi þáttum og hverju við stýrum sjálf,“ segir Ingunn Fjóla Ingþórs­dóttir.


Margrét Blöndal

Day – Liðamót /Ode to Join

Hvar? Listasafn Íslands
Hvenær? 28. maí til 2. október 2022
Miðaverð: 2.000 kr.

Sýningin Liðamót/Ode to Join samanstendur annars vegar af teikningum gerðum með olíu og litadufti og hins vegar þrívíðum verkum sem Margrét H. Blöndal mun vinna beint inn í rými sýningar­salarins. Heiti sýningarinnar, Liðamót, vísar í þá staðreynd að þar sem þrír eða fleiri liðir koma saman verður til hreyfing. Í verkum Margrétar mótast hreyfingin út frá skilrúmum sem sett verða upp í rýminu, stað­setningu verkanna og innra samhengi þeirra.

Enski hluti titilsins, Ode to Join, er hins vegar óður til tengingar þar sem hver skúlptúr eða teikning verður eins og ein eining í pólífónísku tónverki. Verk Margrétar eru handan orða og búa yfir fegurð og yfir­skilvitlegu aðdráttar­afli enda hefur innsetningum hennar verið líkt við tónaljóð.

 „Ég nálgast skúlptúra sem teikningar og teikningar sem skúlptúra.  Rænulaus sem árvökul viða ég að mér efni og kóreógrafera verkin inn í rýmið sem ýmist er tvívíður flötur (pappír)  eða sýningar­salurinn. Á þessari sýningu er vísað til marglaga hreyfinga – annars vegar þeirra  sem líða um á innri eða ytri sviðum tilverunnar –  og hins vegar  þess hreyfi­afls er myndast þegar ólíkum einingum lýstur saman,“ segir Margrét H. Blöndal.


Stefanía Svavars

Country Hjarta Hafnarfjarðar

Hvar? Bæjarbíó
Hvenær? 9, 10. og 11. júní kl. 20
Miðaverð? 5.990 kr. 

Country Hjarta Hafnar­fjarðar mun fara fram í Bæjarbíói, dagana 9., 10. og 11. júní. Hátíðin byggir á grunni tónlistar­hátíðarinnar Hjarta Hafnar­fjarðar sem haldin hefur verið um árabil í Bæjarbíói. Country Hjarta Hafnar­fjarðar fer fram með sama sniði þar sem gestir geta notið veitinga í tjöldum á útisvæði áður en haldið er inn í Bæjarbíó á tónleika kvöldsins. Í útitjaldinu þeytir Krummi Björgvins skífum og sér um að búa til réttu kántrí­stemninguna fyrir gesti frá kl. 21 til 23. Stefanía Svavars er á meðal þeirra sem koma fram fyrsta kvöldið og mun flytja lög frá stjörnum úr heimi sveita­tónlistarinnar.

„Ég elska gamaldags kántrí og sögurnar sem eru sagðar í lögunum. Nokkrar af mínum uppáhalds­söngkonum og laga­höfundum eru kántrí­söngkonur. Ég mun syngja meðal annars lög eftir Dolly Parton og Lorettu Lynn og hlakka mjög mikið til,“ segir Stefanía.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár