Heimurinn þarf á smá gleði að halda

Glimmer, gleði og gaman ein­kennir hönnun Hildar Yeoman. Það er engin til­viljun, því hún vill kenna sig við eitt­hvað skemmti­legt. Vill frekar fá fólk til þess að upp­lifa gleði­stundir heldur en að fá það til að sökkva niður í hugs­anir um vanda­mál heims­ins. Enda þarf fólk kannski á því að halda núna.

Heimurinn þarf á smá gleði að halda

Hill­billy hitti Hildi Yeoman á litlu veit­inga­húsi niðri í bæ. Hildur kom rölt­andi úr búð­inni sinni sem stað­sett er á besta stað í mið­bænum góða, á Lauga­vegi 7. Það er gaman að vera Hildur, hugsar Hill­billy. Þjón­arnir og kokk­ur­inn þekkja hana vel og hún eyðir dög­unum með skemmti­legu fólki að búa til skemmti­leg föt. Hill­billy finnst áhuga­vert að vita hvernig hug­myndir verða til og hvernig ferlið er hjá skap­andi mann­eskju eins og Hildi.

Lífið sem fata­hönn­uður er aldrei eins á hverjum degi. Dagurinn byrjar á handa­hlaupum við að koma fjöl­skyld­unni út úr húsi. Hildur drekkur ekki morg­un­kaffi, en hún drekkur espressó mart­ini. Þó ekki á morgn­ana. 

Gleðisprengja

Fyrsta mál á dag­skrá er að sjálf­sögðu að panta mat og drykk. Síðan berst talið að búð­inni þar sem Hildur er með stúdíó í kjall­ar­anum þar sem öll feg­urðin er sköpuð. Nýlega frum­sýndi Hildur nýja línu, In Bloom, í Höf­uð­stöð­inni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár