Sjálfstæðisflokkurinn tapaði fylgi í 20 sveitarfélögum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missti fylgi í 20 sveit­ar­fé­lögum í nýaf­stöðnum kosn­ingum. Þar af missti flokk­ur­inn fylgi í þremur þeim fjöl­menn­ustu og sjö af tíu fjöl­menn­ustu sveit­ar­fé­lög­unum.

Sjálfstæðisflokkurinn tapaði fylgi í 20 sveitarfélögum
Stærst en töp­uðu þó Útkoma Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík undir for­ystu Hildar Björns­dóttur er sú slakasta í sög­unni. Þar, eins og víða ann­ars staðar, gæti lands­málapóli­tík haft áhrif. Salan á Íslands­banka og gagn­rýnin sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, og ekki síst Bjarni Bene­dikts­son for­maður, hafa setið undir eftir hana hefur að lík­indum smit­ast yfir og haft áhrif í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum.

Liðnar sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar voru Sjálf­stæð­is­flokknum ekki hag­felldar heilt á litið. Staða flokks­ins veikt­ist í sjö af tíu stærstu sveit­ar­fé­lögum lands­ins, þar af í þremur þeim stærstu, og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu missti flokk­ur­inn fimm sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa. Sér­fræð­ingar sem Stundin ræddi við telja lík­legt kjós­endur flokks­ins hafi í meira mæli nú leitað yfir til Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hafi rekið öfl­uga kosn­inga­bar­áttu og náð eyrum fólks. Þá hafi lands­málapóli­tík smitað yfir í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar og lík­legt sé að andróður gegn Sjálf­stæð­is­flokknum eftir sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka hafi haft ein­hverjar afleið­ingar fyrir flokk­inn.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði fylgi í 20 sveit­ar­fé­lögum í kosn­ing­unum um liðna helgi, miðað við kosn­ing­arnar fyrir fjórum árum. Alls búa 80 pró­sent lands­manna í sveit­ar­fé­lög­unum 20 þar sem flokk­ur­inn missti fylgi, mis­mikið þó. Þá tap­aði flokk­ur­inn sveit­ar­stjórn­ar­full­trúum í 14 sveit­ar­fé­lögum. Flokk­ur­inn bætti aftur á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Þetta eru bara yndislegar fréttir! Það að X-D er á niðurleið þýðir betra þjóðfélag, alla vega mikil von!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2022

Það besta og versta á kjörtímabilinu
FréttirSveitarstjórnarkosningar 2022

Það besta og versta á kjör­tíma­bil­inu

Borg­ar­full­trúar hafa mis­mun­andi sýn á það sem upp úr stóð á líð­andi kjör­tíma­bili, bæði gott og slæmt. Skoðanir á því hvernig tókst til í vel­ferð­ar­málum eru þannig skiptar en ekki endi­lega eftir því hvort fólk sat í meiri- eða minni­hluta. Borg­ar­full­trúar í meiri­hluta telja sig ekki hafa staðið sig nægi­lega vel þegar kemur að mál­efnum fatl­aðs fólks. Frá­far­andi borg­ar­full­trúi brýnir næstu borg­ar­stjórn til að und­ir­búa borg­ina undir fram­tíð­ina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár