Allir til í alla í borginni - nema Píratar

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, var eini odd­vit­inn í kapp­ræðum Stund­ar­innar sem úti­lok­aði sam­starf við ein­hvern flokk­anna sem bjóða fram. Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks, sagði Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra ráða í meiri­hluta­sam­starf­inu.

Hik kom á odd­vita meiri­hlut­ans í Reykja­vík þegar þeir voru spurðir að því hver yrði borg­ar­stjóri ef flokk­arnir fjórir héldu meiri­hluta sínum. „Þessar kosn­ingar snú­ast ekki um borg­ar­stjór­ann,“ sagði Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, sem sagð­ist þó að sjálf­sögðu vilja vera borg­ar­stjóri. 

Það gátu Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, og Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, líka hugsað sér að vera, þó sú síð­ar­nefnda hafi sagt ótíma­bært að ræða verka­skipt­ingu. „Við getum heldur ekk­ert svarað því fyrr en það kemur upp úr kjör­köss­unum,“ sagði hún en bætti svo við: „Ég myndi glöð vera borg­ar­stjóri fyrir alla Reyk­vík­inga.“

Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti Sam­fylk­ingar og núver­andi borg­ar­stjóri, hló og sagð­ist aug­ljós­lega ekki getað hugsað sér að vera borg­ar­stjóri, en bætti svo fljótt við –þá öllu alvar­legri – að stærð flokka myndi hafa áhrif á það hver innan meiri­hlut­ans fengi borg­ar­stjóra­stól­inn. 

„Þessar kosn­ingar snú­ast ekki um borg­ar­stjór­ann“
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu