Risið er dauða­gildra Í einu af þremur ris­her­bergjum á Holts­götu 7 er gluggi sem ekki opn­ast. Ef upp kæmi eldur væri íbúi þess her­bergis læstur inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég neyði engan til að leigja hjá mér“

Á Holts­götu 7 leigja hátt í 30 manns her­bergi í hús­næði sem búið er að stúka niður í fjölda lít­illa her­bergja. Eld­vörnum er illa eða ekk­ert sinnt. Fyr­ir­tækið sem leigir út her­bergin sætir engu opin­beru eft­ir­liti þar sem húsið er skráð sem íbúð­ar­hús­næði. Margir við­mæl­endur Stund­ar­innar sjá mikil lík­indi með aðstæðum þar og þeim á Bræðra­borg­ar­stíg 1, þar sem þrennt lést í elds­voða.

Við Holts­götu 7 í Vesturbæ Reykja­víkur stendur stórt hvítt hús með rauðu þaki. Það má muna sinn fíf­ill feg­urri, eins og ryð­taumar og brotnar tröpp­urnar bera með sér. Húsið byggði Snæbjörn Jónsson bók­sali af tals­verðum efnum og miklum mynd­ar­skap fyrir tæpri öld. Húsið er enda stórt, tæpir 350 fer­metrar og sam­anstendur af tveimur íbúðum, kjall­ara og risi, sam­kvæmt teikn­ingum. Þó er varla hægt að tala um að í dag séu í hús­inu það sem í dag­legu tali kall­ast íbúðir. 

Í hús­inu eru leigu­her­bergi sem eru heim­ili hátt í þrjá­tíu íbúa. Íbúarnir er flestir útlend­ingar sem komið hafa til Íslands til að vinna og hefja nýtt líf. Þeir búa við aðstæður sem fáir Íslend­ingar myndu sætta sig við. Aðeins einn reyk­skynj­ari er í hús­inu, stað­settur í ris­inu þar sem eru þrjú her­bergi. Í einu af þessum þremur her­bergjum er gluggi sem ekki er hægt að opna og þar eru heldur ekki …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Greyið, lepur dauðann úr skel....
    1
  • Þórunn Geirsdóttir skrifaði
    Dóttir mín og vinkona hennar bjuggu í kjallaranum þegar hún flutti að heiman 18 ára. Myglusveppur var í íbúðinni sem var pinkulítil. Hann sagði þeim upp leigunni til þess að geta skipt þessari pínulitlu holu í tvær einingar. Þegar þær sóttust eftir að fá trygginguna tilbaka þverneitaði maðurinn að borga þeim tilbaka. Þegar við foreldrarnir ætluðum að skerast í leikinn fengum við hótanir.
    0
  • Jón Kristjánsson skrifaði
    Djöfuls óþokki og viðbjóður!!!....okurleiga fyrir ömulegt og hættulegt húsnæði!! Af hverju er ekki tekið á þessu??!!
    3
  • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
    Ég get ekki skilið að það sé ekki hægt að stórsekta þennan leigusala og banna honum að leigja út herbergi þar sem litlar sem engar brunavarnir eru. Og að hólfa niður hús, þarf ekki leyfi ef maður er leigusali?? Skil ekki þetta dugleysi hjá borginni og slökkviliðinu.
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    „Ég neyði engan til
    að leigja hjá mér“
    Engin nauðung á neinu. Í fljótu bragði virðist maðurinn góðmenni.
    1
  • Stefán Örvar Sigmundsson skrifaði
    Þessi Alexander hljómar eins og algjört skítseiði.
    4
    • Gauti Bergmann Víðisson skrifaði
      Hvað heitir hann meira en bara Alexander? Sé það ekki nema ég borgi fyrir eitthvað sem ég lít á af og til.
      0
    • Birna Bjarnadottir skrifaði
      alexander hugi leifsson
      0
  • Siggi Rey skrifaði
    Svo verður fár mikið ef eiotthvað skelfilegt kemur upp á.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigumarkaði
ViðtalNeyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigu­mark­aði

Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Samtaka leigj­enda, upp­lifir sig fastan á leigu­mark­aði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrj­aði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tek­ist það. Baráttan, höfn­unin og upp­lifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og langvar­andi áhrif á and­lega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í bar­átt­una ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.
Missti leiguíbúðina við brunann
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­í­búð­ina við brun­ann

Sögu Nazari dreymir um að eign­ast íbúð en er að eigin sögn föst á óör­uggum leigu­mark­aði þar sem leigu­verð sé óbæri­lega hátt og lífs­gæði leigj­enda mun lak­ari en flestra íbúða­eig­enda, aðeins ungt fólk sem eigi efn­aða for­eldra geti keypt íbúð. Saga er nú í end­ur­hæf­ingu, meðal ann­ars vegna áfalls sem hún varð fyrir í sept­em­ber í fyrra en þá kvikn­aði í íbúð sem hún leigði.
Ráðherra segir leigumarkaðinn „óstöðugan og óáreiðanlegan“
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ráðherra segir leigu­mark­að­inn „óstöðugan og óáreið­an­legan“

Nokkrir ráð­herrar og þing­menn segja leigu­mark­að­inn á Íslandi óör­uggan. „Mis­kunn­ar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. For­sæt­is­ráð­herra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglu­lega meðan hún var leigj­andi og mat­væla­ráð­herra segir leigu­mark­að­inn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyld­unnar.
Ástandið á leigumarkaði getur grafið undan geðheilsu leigjenda
FréttirNeyð á leigumarkaði

Ástandið á leigu­mark­aði getur grafið undan geð­heilsu leigj­enda

Elín Ebba Ásmunds­dóttir, sem hefur starfað að geð­heil­brigðs­málum í fjöru­tíu ár, segir að leigu­mark­að­ur­inn grafi undan geð­heilsu fólks. Kvíði leigj­enda yfir því að ná ekki endum saman og að þurfa jafn­vel að flytja gegn vilja sínum sé mjög skað­legur. Það sé umhugs­un­ar­efni að sumt fólk græði á óförum ann­arra og að yfir­völd leyfi það.
Kvartaði undan myglu og missti íbúðina
FréttirNeyð á leigumarkaði

Kvartaði undan myglu og missti íbúð­ina

Bryndís Ósk Odd­geirs­dóttir neyð­ist til að flytja með fjöl­skyldu sína úr íbúð sem hún hefur leigt frá því síð­ast­liðið haust. Hún segir leigusal­ann hafa rift samn­ingi við þau í kjöl­far þess að hún kvart­aði undan myglu í íbúð­inni. Hún telur að lítil við­brögð við fyr­ir­spurnum hennar um leigu­í­búðir helgist af því að mað­ur­inn hennar er af erlendum upp­runa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár