Ráðuneytið segir Bjarna hafa samþykkt tilboðsgjafa óséða

Upp­lýs­ingar um til­boð eða til­boðs­gjafa voru aldrei bornar undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Lög gera ráð fyrir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra taki ákvörðun um hvort til­boð skuli sam­þykkt eða þeim hafnað og und­ir­ritar samn­inga fyrir hönd rík­is­ins um sölu eign­ar­hlut­ar­ins.

Ráðuneytið segir Bjarna hafa samþykkt tilboðsgjafa óséða
Sam­þykkti list­ann óséð­ann Samkvæmt lögum á fjár­mála­ráð­herra að fá rök­studdu mati á þeim sem gera til­boð í hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem hann á síðan að sam­þykkja. Þetta ferli fór fram án þess að nokkurn tím­ann væri nefnt hverjir þeir væru sem væru að kaupa bank­ann. Mynd: RÚV

„Árétta skal að upp­lýs­ingar um til­boð eða til­boðs­gjafa voru aldrei bornar undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið,“ segir í yfir­lýs­ingu efna­hags- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins sem birt var á vef þess síð­degis í dag. Tilefnið eru fyr­ir­spurnir fjöl­miðla, meðal ann­ars Stund­ar­innar, um fyr­ir­komu­lag sölu á 22,5 pró­senta hlutar rík­is­ins í Íslands­banka í lok­uðu útboði. 

Lög um sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum segir að þegar til­boð í eign­ar­hlut liggi fyrir skuli Banka­sýsla rík­is­ins skila ráð­herra rök­studdu mati á þeim. „Ráðherra tekur ákvörðun um hvort til­boð skuli sam­þykkt eða þeim hafnað og und­ir­ritar samn­inga fyrir hönd rík­is­ins um sölu eign­ar­hlut­ar­ins,“ eins og segir í lög­unum. Samkvæmt nú birtum sam­skiptum Banka­sýsl­unnar og ráðu­neyt­is­ins sam­þykkti Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, söl­una í heilu lagi. 

Sex línu samþykkt

„Fallist er á til­lögu Banka­sýsl­unnar og er stofn­un­inni veitt umboð til að ljúka sölu­með­ferð í sam­ræmi við hana,“ sagði í lok sex línu bréfs ráð­herr­ans til Banka­sýsl­unnar þar sem salan var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    hann þurfti ekki að kíkja á listann hann samdi hann sjálfur
    1
  • Magnus Helgi Sigurðsson skrifaði
    Þá er þarna um klárt lögbrot að ræða og ráðherra ber að segja af sér
    3
  • Teitur Olsen skrifaði
    Hver trúir þessu að valdamesti maðurinn láti slíka sölu frá sér óseða ég er góður í póker og þekki lygara hægri vinstri eg hefði sett aleiguna undir að hann er að ljúga eitt enn að ljúga að okkur til þess eins að hagnast um nokkrar millur lákúrulegt.
    2
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    ALLIR ættu að lesa bókina "Hinir ósnertanlegu" !!!!

    http://herdubreid.is/hinir-osnertanlegu/

    "130 milljarðar voru afskrifaðir hjá fjölskyldufyrirtækjum Bjarna Benediktssonar"

    "Benedikt Sveinsson tók yfir á annað hundrað milljónir af einkaskuldum sonar síns, meðal annars vegna veðmála"

    "Í miðju Hruni var Bjarni ennþá að færa stórfé úr landi til að borga fyrir fasteignabrask á Flórida"

    Síðar var Bjarni Ben gerður að fjármálaráðherra í þrígang !!!
    3
  • Omar Sigurjónsson skrifaði
    Það er ekki fræðilegur möguleiki að Bjarni hafi ekki vitað af föður sínum à listanum.
    7
  • Magnus Helgi Sigurðsson skrifaði
    Algjörlega óboðleg vinnubrögð sem anga af spillingu 🤭
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár