Kvíðinn varð að kveikju

Þrátt fyrir að það séu ekki mörg dýr sem ætla að éta okkur úti á götu nú í dag árið 2022 þá virð­ist sem við mann­eskj­urnar séum kvíðn­ari og stress­aðri en nokkurn tíma fyrr. Útskrift­ar­sýn­ing Patryks Wilks úr meist­ara­námi Lista­há­skól­ans fjall­aði um kvíða og ótta og hann ræðir sýn­ing­una við Hill­billy, meðal ann­ars út frá ástandi heims­sam­fé­lags­ins.

Kvíðinn varð að kveikju

Patryk Wilk er ungur pólskur lista­maður með stóra drauma. Hann stundar sem stendur meist­ara­nám í Lista­há­skóla Íslands og hélt nýlega einka­sýn­ingu sína, sem er liður í útskrift­ar­ferl­inu. Hill­billy spurði Patryk af hverju hann valdi að koma til Íslands til að leggja stund á meist­ara­nám. „Ég skoð­aði marga skóla, skoð­aði bestu skóla Evrópu. Lista­há­skóli Íslands og masters­prógram­mið þar heill­aði mig mest, sér­stak­lega í ljósi þess að margir frægir mynd­list­ar­menn lærðu þar.“ Patryk nefnir þá Ólaf Elíasson og Ragnar Kjart­ans­son og bætir við að honum þyki Ísland fal­legt land og hér kann fólk raun­veru­lega að meta mynd­list, „… og það er mynd­list úti um allt! Náttúran hefur verið mér mik­ill inn­blástur og ég finn að fólkið hérna ber virð­ingu fyrir nátt­úr­unni og umhverf­inu, fólkið hér er almennt fram­sækið í hugsun,“ segir Patryk.

Alþjóðlegt nám

Patryk stund­aði sitt BA-nám í Akademia Sztuki w Szczecinie í Póllandi. „Hér í Lista­há­skól­anum er hugað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár