683. spurningaþraut: Hvaðan gerir Samherji út?

Fyrri auka­spurning:

Hvar er þetta mannvirki er að ofan sést?

***

Aðal­spurningar:

1.  Í hvaða bæ er menningar­húsið Hof?

2.  Í hvaða stöðu settist Svein Harald Øygard árið 2009?

3.  Hver lék aðal­karlrulluna í bíómyndinni Titanic fyrir einhverjum árum síðan?

4.  Hvaða fyrirtæki stofnaði Bill Gates við annan mann árið 1975?

5.  Hver skrifaði bókina Da Vinci-lykillinn?

6.  Hvaða hljómsveit flutti lagið Let It Be fyrir alllöngu síðan?

7.  Samkvæmt heimasíðu útgerðar­fyrir­tækisins Samherja gerir það nú út átta skip frá Íslandi, flest frá Akureyri. Togararnir Björgúlfur og Björgvin eru þó skráðir og gerðir út frá ... hvaða stað?

8.  Álfur Birkir Bjarnason var fyrir fáeinum dögum kjörinn formaður í samtökum nokkrum. Hvaða samtök eru það?

9.  Hvaða evrópska nýlendu­veldi réði á sínum tíma því svæði sem nú heitir Indónesía?

10.  Indónesía samanstendur af fjölda eyja eins og allir vita. Þar af eru fimm risa­stórar, allar stærri en Ísland. Nefnið þrjár af þessum eyjum?

 

***

Seinni auka­spurning:

Hér er íþrótta­kona ein. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Akureyri.

2.  Hann varð Seðla­bankastjóri á Íslandi.

3.  Leonardo DiCaprio.

4.  Microsoft.

5.  Dan Brown.

6.  Bítlarnir.

7.  Dalvík.

8.  Samtökin 78.

9.  Hollands.

10.  Nýja Gínea, Borneó, Súmatra, Súlavesí og Java heita eyjarnar.

***

Svör við auka­spurningum:

Kirkjan á efri myndinni (Notre Dame) er í París.

Fótbolta­konan á neðri myndinni heitir Sveindís Jane.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár