Kristjón Kormákur játar innbrot á ritstjórnarskrifstofu Mannlífs

Rit­stjór­inn Kristjón Kormákur Guð­jóns­son hefur við­ur­kennt inn­brot á rit­stjórn­ar­skrif­stofu Mannlífs. Hann steig fram í við­tali við Reyni Trausta­son, rit­stjóra Mannlífs, í hlað­varps­þætti sem birtur var í kvöld. Segist hafa fengið millj­óna greiðslur frá Róberti Wessman fyrir ráð­gjöf og fleira.

Kristjón Kormákur játar innbrot á ritstjórnarskrifstofu Mannlífs
Úr við­tal­inu Reynir Trausta­son ræddi við Kristjón Kormák í hlað­varps­þætt­inum Mann­lífið sem birtur var á vef Mannlífs í kvöld. Mynd: Mannlíf

Kristjón Kormákur Guð­jóns­son, rit­stjóri fjöl­mið­ils­ins 24.is, hefur við­ur­kennt inn­brot á rit­stjórn­ar­skrif­stofu Mannlífs 21. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hann ætlar að gefa skýrslu um málið hjá lög­regl­unni. Kristjón seg­ist hafa verið á launum hjá Róberti Wessman fyrir ýmis við­vik en inn­brotið hafi hins vegar ekki verið með hans vilja eða vit­und.

„Hann bað aldrei um það, hann fékk aldrei skjal úr þess­ari tölvu,“ full­yrti Kristjón sem seg­ist þó hafa talað við auð­mann­inn í síma morg­un­inn eftir inn­brotið þar sem hann hafi sagt honum frá inn­brot­inu og að hann hefði tölvu Reynis Trausta­sonar undir höndum. 

Í inn­brot­inu var vefur Mannlífs eyði­lagður og færslum, bæði birtum og þær sem voru í vinnslu, eytt. Hann steig fram og ját­aði verkn­að­inn í við­tali við Reyni Trausta­son, rit­stjóra Mannlífs, í hlað­varps­þætti hans á fjöl­miðl­inum í kvöld. Þátt­ur­inn var birtur rúm­lega 22.10 og er rúm­lega klukku­tíma að lengd.

„Ég fann þessa til­finn­ingu, það er ekki rétt að gera þetta,“ lýsti Kristjón Kormákur í við­tal­inu um það sem fór í gegnum huga hans þar sem hann stóð fyrir utan rit­stjórn­ar­skrif­stofur Mannlífs í aðdrag­anda inn­brots­ins. Hann hafi þó farið inn á skrif­stof­una, tekið þar turn­tölvu og far­tölvu Reynis. 

Kristjón lýsti því einnig í við­tal­inu að auð­mað­ur­inn Róbert Wessman hafi fjár­magnað rekstur frétta­vefs­ins 24.is með fjár­fram­lögum. Hann segir að Róbert hafi ekki viljað eiga hlut í miðl­inum en til­bú­inn að greiða honum tugi millj­óna til að byggja hann upp. 

Fann til með Róberti

Kristjón hafi svo upp­lifað Reyni og Mannlíf sem óvini Róberts og að hann hafi viljað sann sig gagn­vart vel­gjörð­ar­manni sínum. „Ég fann til með honum,“ sagði Kristjón um Róbert. 

VinurKristjón sagð­ist hafa farið að horfa á Róbert sem vin. Sam­skipti þeirra hafi verið mikil.

Greiðsl­urnar hafi meðal ann­ars verið fyrir ráð­gjöf til handa Róberti. „Það kemur í ljós að þekk­ing mín er mikil,“ sagði Kristjón sem lýsti því sem svo að verk­efni utan fjöl­mið­ils­ins hafi verið marg­vís­leg. Sam­skipti þeirra hafi verið mikil og náin. „Ég var far­inn að telja hann til vina minna [...] Við vorum kannski að tala saman klukkan tíu á kvöldin,“ sagði Kristjón og bætti því við að hann hafi verið hálf­gerður sálu­sorg­ari Róberts og þurft að „peppa“ hann.

Það var þó ekki að beiðni Róberts sem inn­brotið var framið, að sögn Krist­jóns. „Ég get sagt það, hann bað aldrei um að þetta væri gert,“ sagði hann en lýsti í beinu fram­haldi miklu valda­ó­jafn­vægi í sam­skiptum sínum við auð­mann­inn. Morg­un­inn eftir inn­brotið hafi hann þó talað við fólk í kringum Róbert og svo hann sjálfan skömmu síðar. 

Ætlaði að eyða vefnum

Kristjón lýsir því í við­tal­inu við Reyni að mark­mið inn­brots­ins hafi verið að eyða vef Mannlífs og losa sig við keppi­naut. Undir niðri hafi þó kraumað von um að í tölvu Reynis myndu leyn­ast gögn. „Ég var bara kom­inn í örvænt­ingu,“ sagði hann. Kristjón sagð­ist hafa vitað það allan tíman að hann ætti ekki að fram­kvæma inn­brotið en hafi þó látið til skara skríða.

„Ég get sagt það, hann bað aldrei um að þetta væri gert.“
Kristjón Kormákur
um Róbert Wessman og inn­brotið

Það tókst þó ekki, því vef­ur­inn var að mestu kom­inn aftur í loftið fljót­lega eftir inn­brotið. 

Á end­anum hafði hann svo sam­band við Reyni til að játa verkn­að­inn, sem lýsti því sjálfur að sím­talið hafi glatt. „Ég var alveg ótrú­lega glaður ein­hvern­vegin. þá var myrkrið farið,“ sagði Reynir við Kristjón í við­tal­inu. „Ég lít ekki á þig sem stóra ger­and­ann í þessu máli.“ 

Viðtalið er rúmur klukku­tími að lengd og má sjá í spil­ar­anum hér að ofan eða á vef Mannlífs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár