669. spurningaþraut: Hvar er Eyjahafið? En Eyjahafið?

669. spurningaþraut: Hvar er Eyjahafið? En Eyjahafið?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði aug­lýs­ingaplakatið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Og í fram­haldi af því: Hvað kall­ast dans­inn sem kon­urnar stíga þarna?

2.  Sá dans er alveg sér­stak­lega tengdur alveg ákveðnum skemmti­stað sem heitir ... ?

3.  Eyja­hafið heitir inn­haf eitt og að því liggja tvö ríki. Hver eru þau?

4.  En svo er til annað Eyjahaf eða Mare Insul­arum, eins og það er raunar yfir­leitt kallað. Hvar er það?

5.  Smjör­líki, sykur, eitt egg, sítrónu­dropar, hveiti, lyfti­duft, mjólk og rús­ínur. Hræra saman smör­líki og sykri, bæta egg­inu útí og því næst öllu hinu. Setja inn í ofn við rúmar 150 gráður í klukku­stund og þá kemur út ... hvað?

6.  „Ég mun snúa aftur.“ Þetta er einn fræg­asti hers­höfð­ingi seinni heims­styrj­aldar sagður hafa látið sér um munn fara þegar hann var hrak­inn burt úr landi einu af óvinum. Hvaða landi?

7.  En hvað hét hers­höfð­ing­inn?

8.  „Ég mun snúa aftur,“ sagði líka fyr­ir­brigði eitt í frægri kvik­mynd frá 1984. Hvað hét kvik­myndin?

9.  En leik­ar­inn sem sagði þetta svo eft­ir­minni­lega?

10.  Securitate var nafnið á einni ill­ræmd­ustu „örygg­is­lög­reglu“ í komm­ún­ista­ríkjum Austur-Evrópu á dögum kalda stríðs­ins. Í hvaða ríki sá Securitate um per­sónunjósnir, hand­tökur, pynt­ingar og morð á stjórn­ar­and­stæð­ingum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á vest­ur­strönd þessa flóa eru tvær borgir og fyrir tæpri öld var staða ann­arrar þeirrar afar umdeild. Hvað heitir ríkið sem við sjáum nú þarna umlykja fló­ann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Cancan.

2.  Rauða myllan, Moulin Rouge.

3.  Grikk­land og Tyrkland.

4.  Á tungl­inu.

5.  Jólakaka.

6.  Fil­ipps­eyjum.

7.  MacArthur.

8.  Term­inator.

9.  Arnold Schwarzenegger.

10.  Rúmeníu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Höfundur plakats­ins var Toulouse-Lautrec.

Ríkið á neðri mynd­inni er Pólland. Borgin áminnsta heitir nú Gdansk en áður Danzig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár