Reiknistofan reynir að ráða starfsmenn Init

Starfs­menn hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Init hafa sér­þekk­ingu á rekstri hug­bún­að­ar­kerf­is­ins Jóakims sem líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem eiga kerfið, freista þess nú að við­halda með því að ráða starfs­fólkið. Samningi við Init var sagt upp vegna samn­ings­brota og nú stytt­ist í að eign­ar­halds­fé­lag líf­eyr­is­sjóð­anna þurfi að yfir­taka rekst­ur­inn.

Reiknistofan reynir að ráða starfsmenn Init

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem standa að baki Reikni­stofu líf­eyr­is­sjóð­anna freista þess nú að ráða núver­andi starfs­fólk hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Init. Samningi líf­eyr­is­sjóð­anna við Init um rekstur tölvu­kerf­is­ins Jóakims var sagt upp í lok maí­mán­aðar en sam­kvæmt samn­ingnum er Init skuld­bundið til að reka kerfið áfram og vinna að yfir­færslu þess til nýs rekstr­ar­að­ila. Það tíma­bil fer að líða undir lok og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar hafa starfs­menn Inits sýnt því lít­inn áhuga að hefja störf fyrir Reikni­stofu líf­eyr­is­sjóð­ina. 

Almar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Reikni­stof­unnar, stað­festi í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar nýverið að til stæði að félagið myndi sjálft ann­ast rekst­ur­inn eftir yfir­færsl­una frá Init. Ákvörðun um útvistun í fram­tíð­inni hefur þó, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar, ekki verið úti­lokuð. 

Krefst sérþekkingar

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár