Frumkvöðull í endurnýtingu heldur ótrauður áfram í jaðarsamfélaginu við Reykjavík

Í meira en hálfa öld hefur Valdi safnað föllnum hjól­koppum, gert við þá og sellt þá til end­ur­nýt­ingar. Hann heldur ótrauður áfram, þrátt fyrir kreppu í brans­anum og þótt hann hafi ekki fengið neina Covid-styrki. Valdi og bróðir hans lýsa líf­inu í „jað­ar­sam­fé­lag­inu“ við mörk Reykja­víkur, sem nú er að ganga í end­ur­nýjun líf­daga.

Frumkvöðull í endurnýtingu heldur ótrauður áfram í jaðarsamfélaginu við Reykjavík
Valdi koppa­sali Hjól­kopp­arnir nærri Rauð­hól­unum eru komnir á útsölu. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Það er haust­kalt úti og þótt sólin blekki í fjar­lægum fjöll­unum játa laufin sig sigruð, fjúk­andi fallin um Heiðmörk og nágrenni. Þor­valdur Sigurður Norðdahl stendur hins vegar úti og veifar veg­far­endum sem kynnu að hafa rekið augun í aug­lýs­inga­skiltið hans við þjóð­veg­inn: Hjól­koppar til sölu – Útsala.

Þótt lítið sé rætt um það vinnur Valdi þjóð­þrifa­verk og er frum­kvöð­ull í hringrás­ar­hag­kerf­inu. Þegar hjól­koppar falla af og rúlla út í nátt­úr­una sem aðskota­hlutir, finnur Valdi þá og þrí­fur og reynir að veita þeim fram­halds­líf. Fyrstu kopp­ana fékk hann hjá frænku sinni og seldi þá manni nokkrum, Hjálmari, árið 1964 eða '65. „Þá start­aði hann mér í gang,“ segir Valdi.

Skiltið við Suð­ur­lands­vegMargir hafa tekið eftir skilt­inu á leið úr borg­inni, skömmu eftir Rauðhóla, þar sem boðnir eru hjól­koppar á útsölu.

Nú eru það helst starfs­menn Vega­gerð­ar­innar sem veita Valda aðföng. „Vega­gerð­ar­kallar finna svo mikið af koppum þegar þeir gera við stikur og annað. Það verður að þrífa þetta upp, það má ekki henda þessu.“

Áratugum saman hefur Valdi aug­lýst hjól­koppa til sölu á leið­inni suður út úr Reykja­vík, skammt frá Rauð­hólum og Heiðmörk, þar sem hann hefur alltaf búið og býr nú með bræðrum sínum tveimur á bónda­bænum Hólmi. Afi þeirra bræðra byggði þennan bæ og þar var faðir þeirra fæddur og upp­al­inn og þar bjó hann alla sína tíð. Fjöl­skyldan vann þar land­bún­að­ar­störf með handafli, án drátt­ar­vélar, en með tím­anum hefur borgin nálg­ast.

Bróðir Valda, Karl, lýsir þessu þegar hringt er með land­lín­unni á bæinn. „Það var gott fyrir okkur börnin upp­eld­is­lega að læra að vinna frá átta eða níu ára aldri, raka hey. Sjálf­sagt að leyfa börnum að snatt­ast og læra vinnu­brögð.“ Hann segir að þetta hafi verið merki­legur tími, börn­unum hafi sjaldan leiðst enda hafi frelsið verið meira en almennt tíðkast í dag. „Við vorum úti að ráfa um nágrennið og skoða ýmis­legt. Við fundum kannski ónýta bíla og gátum hirt úr þeim dót. Valdi bróðir hefur haft áhuga á bílum síðan hann var bara barn og sá dross­íur í fyrsta sinn.“

Hann minn­ist þess þegar frænka þeirra gaf Valda fyrsta hjól­kopp­inn. „Það var maður sem vildi kaupa hann.“ Ekki var aftur snúið.

Þeir búa nú þrír saman og Valdi heldur starf­inu ótrauður áfram þrátt fyrir kreppu í hjól­koppa­sölu.

Salan minnkað

Við lag­er­innValdi fín­pússar hjól­kopp­ana og geymir þá hér á lag­ernum þar til kaup­endur koma.

Hér áður fyrr fór Valdi hjólandi eftir þjóð­veg­inum og skimaði eftir koppum. Best var upp­skeran á mótum malar og mal­biks. Hann fór jafn­vel alla leið til Kefla­víkur til að finna koppa, sem hann rétti svo, púss­aði og fægði, til að koma þeim aftur í umferð.

Síðustu ára­tugi hefur reglu­lega verið fjallað um fallandi hjól­koppa­sölu. „Dræm hjól­koppa­sala hjá Valda“, sagði í Morg­un­blað­inu 2001. Árið 2005 kom Valdi í við­tal við Frétta­blaðið og hafði þá selt hjól­koppa í 40 ár. „Það gengur illa,“ sagði hann þá um söl­una. 

Árið 1988 var þó aðra sögu að segja. Góðæri hafði verið í hjól­koppa­brans­anum. „Ég er ekk­ert ríkur. En ætli ég sé nokkuð fátæk­ari en blaða­menn!“ sagði hann það árið.

Löngu síðar bætti hann við orð­inu „útsala“ á aug­lýs­inga­skiltið sitt við Suð­ur­lands­veg. Salan er þó ekki alveg stopp. „Seldi á föstu­dag­inn einn,“ segir Valdi. En þessi braut­ryðj­andi í end­ur­nýt­ingu og bar­áttu­maður gegn sóun er ósáttur við Covid-aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar.

„Þeir mok­uðu millj­örðum í Flug­leiðir. Þeir mok­uðu engu í mig.“

„Þeir mok­uðu millj­örðum í Flug­leiðir. Þeir mok­uðu engu í mig. Ég fékk ekk­ert, það var lokað, stór­tap­aði, tugum þús­unda,“ segir hann.

„Ég stór­tap­aði, ég fékk ekk­ert út úr þessu; þetta er bara hobbí.  Maður er far­inn að tína flöskur líka. Það er mik­ill sóða­skapur af þeim, hef­urðu ekki séð flöskur liggj­andi um allar götur?“ spyr hann vondaufur. „ Ég fæ engan skiln­ing á þessu, ekki hjá ráða­mönnum þjóð­ar­innar.“

Boruðu sjálf fyrir vatni 

Fjöl­skyldan í Hólmi fékk ekki alltaf stuðn­ing eins og aðrir eiga vísan. 

Um ára­bil var veg­ur­inn sunnan Hólmsár not­aður sem vetr­ar­vegur fyrir Suð­ur­lands­veg, sem var snjó­þungur í brekkunni norðan árinnar. Eftir að nýr Suð­ur­lands­vegur var lagður upp úr 1970 hefur brúin á Hólms­vegi þjónað bæði heils­árs­byggð og sum­ar­húsa­byggð sunnan Hólmsár. Brúin var í svo slæmu ástandi að hún var nán­ast að hruni komin þegar þriðji bróð­ir­inn lét loka brúnni. Búið var að gera borg­inni við­vart en hún aðhafð­ist ekk­ert. „Borgin hefur ekk­ert verið að sinna okkur of mikið,“ áréttar Karl og tekur annað dæmi af snjó­mokstri. „Stundum er ófært í tvo til þrjá daga.“

„Við erum svona jað­ar­sam­fé­lag.“
Karl Nordahl í Hólmi

Svæðinu hefur verið ýtt lengra út á jað­ar­inn á síð­ustu árum. Nú gengur strætó ekki lengur þangað. „Við erum svona jað­ar­sam­fé­lag,“ segir Karl. Vandræði voru með raf­magnið og þá kom í ljós að spennu­stöðin var ekki rétt við Norð­linga­holt líkt og bræð­urnir héldu heldur inni í Mos­fells­dal. Reyndar var raf­magni ekki komið á fyrr en eftir stríð, en þegar fjöl­skyldan reyndi að sækja um það voru skila­boðin þau: „Þið þurfið ekk­ert raf­magn,“ rifjar Karl upp en eftir nokk­urra ára bar­áttu þótti yfir­völdum kom­inn tími til að tengja árið 1947.

Fjöl­skyldan bor­aði líka sjálf eftir vatni úr Hólmsá fyrir þrjá­tíu árum síðan. „Samkvæmt öllum stöðlum ættum við að vera löngu dauð en við þrif­umst ágæt­lega á þessu vatni.“ Stundum var vatnið gruggugt en það var engu að síður notað í bæði mat og bað. „Það var allt í lagi. Okkur varð ekk­ert mjög meint af því.“

„Nú er búið að bjóða okkur ljós­leið­ara á 350 þús­und krónur. Við sögðum bara nei takk. Við verðum með gömlu síma­lín­urnar á meðan þeim er haldið við og net­sam­bandið er alveg sæmi­legt.“

Trúir á heiðarlegt fólk

Karl er tví­bura­bróðir Valda en segir að sam­bandið sé meira eins og hefð­bundið sam­band bræðra. 

Bræð­urnir hófu ekki skóla­göngu fyrr en þeir voru orðnir átta ára gamlir, því það þótti langt að fara og móðir þeirra vildu ekki að þeir væru einir á ferð svo ungir. Fram að því kenndi hún þeim heima að lesa og skrifa. Skólinn var í Árbænum og þar voru þeir saman í bekk, þar til Valdi skipti um skóla eftir ell­efu ára bekk og fór í Höfða­skóla. Karl segir að þeir hafi þurft að þola smá stríðni í skól­anum, „kannski af því að við vorum úr sveit, eitt­hvað öðru­vísi.  Börn þurfa ekki alltaf að fá neina ástæðu,“ en skóla­stjór­inn í Árbæ tók málið föstum tökum og þar með var því lokið. 

Á sunnu­dögum var börn­unum boðið í sunnu­daga­skóla og í eitt skiptið var því haldið fram að Jesús heyrði allt sem þau segðu. Er hann uppi á þaki? spurði eitt barnið úr hópnum, en Karl segir að boð­skap­ur­inn hafi ekki haft mikil áhrif á hann. „Ég trúi bara á heið­ar­legt fólk.“ Svo ein­falt er það. 

Stræt­is­vagn gekk alveg upp að Lækj­ar­botnum og þegar mest lét voru stræt­is­vagna­ferðir á tveggja tíma fresti frá hálf átta á morgn­ana til ell­efu á kvöldin. Þar bjó fólk í gömlum sum­ar­bú­stöðum sem borgin leigði út til þeirra sem voru í hús­næð­is­vanda. Sumir bjuggu þar allt árið um kring, aðrir aðeins yfir sum­ar­tím­ann. Sumir héldu hæsni, ein­staka voru með kindur en flestir þeirra sem voru að vinna sóttu flestir í borg­ina. Þannig kynnt­ust krakk­arnir öðrum börnum.  

Fjölgað í byggðinni

Und­an­farið hefur fólk verið að snúa aftur í sum­ar­bú­staða­byggð­ina, kaupa upp gamla bústaði og gera þá upp. Á síð­ustu tíu til tutt­ugu árum hefur fjölgað aftur í byggð­inni, þótt það hafi ekki beint mynd­ast sam­fé­lag þar sem fólk þekk­ist og umgengst nágranna á næstu bæjum. „Það er ekki mik­ill sam­gangur á milli húsa,“ útskýrir Karl, „maður rétt kann­ast við nágranna í næstu húsum en þeir eru nú samt í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð.“

Sjálfur hefur Karl gert upp æsku­heim­ilið og varði heil­miklum tíma í það eftir að hann sneri aftur að norðan svo nú er húsið í ágætu standi. „Það er oft þannig að fólk kaupir sín æsku­heim­ili aftur. Það er ein­hver róm­an­tík yfir því. Umhverfið er líka frá­bært, það er stutt í Heiðmörk og frið­sælt allt í kring.“

Þótt þeir búi saman bræð­urnir þá verja þeir ekki endi­lega miklum tíma saman, en stundum horfir Karl á sjón­varpið með Valda, sem er sér­stak­lega spenntur fyrir veð­ur­frétt­unum. „Hann er ekki alltaf sáttur við veð­ur­fræð­ing­inn ef það er slæm spá,“ segir Karl. „Mér finnst alveg ágætt að vera með bræðrum mínum en ég get líka verið út af fyrir mig.“

Alls eru systk­inin sex. Ein systir þeirra, búsett í Noregi til rúm­lega þriggja ára­tuga, er í litlu sam­bandi og kom ekki í jarð­ar­för móður þeirra.

Sér­fræð­ingur í hjól­koppumValda þykir vænt um hjól­kopp­ana og honum sárnar að láta þá liggja ónýtta.

Heldur hringrásarhagkerfinu gangandi

Valdi gefst ekki upp þótt á móti blási.

„Heldurðu að við­talið veki mikla athygli?“ spyr hann.

Við segj­umst halda það. „Margir pæla í þessu af því þeir sjá skiltið: Útsala á hjól­koppum.“

En þótt margir hafi séð aug­lýsta hjól­koppa á útsölu, á leið sinni í fríið eða annað, er ekki víst að allir hafi leitt hug­ann að því að öll þessi ár hefur Valdi haldið gang­andi því sem stjórn­mála­menn dags­ins í dag boða með við­höfn, kallandi það hringrás­ar­hag­kerfi, svo­lítið eins og sömu hjólin á nýfægðum koppum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár