557. spurningaþraut: Hver blundar á öxl Páls Óskars?

Fyrri auka­spurning:

Hver er tónlistar­maðurinn sem blundar þarna á öxl Páls Óskars í myndbandi frá upphafi ársins?

***

Aðal­spurningar:

1.  Ýmsir fæddust og víða um heim þann 20. apríl 1889. En hver skyldi vera lang­þekktastur þeirra?

2.  Í hvaða landi er höfuð­borgin Djakarta? 

3.  Hvaða samtök stóðu fyrir því að sökkva íslenskum hval­veiðibátum árið 1986?

4.  Marcia Fudge, Jennifer Granholm, Deb Haaland, Gina Raimondo og Janet Yellen — hvað eiga þessar fimm konur sameiginlegt um þessar mundir? 

5.  Lenya Rún Taha Karim er ein þeirra þingmanna sem virtust hafa náð kjöri eftir kosningarnar í september en voru svo skildir eftir í lausu lofti eftir endur­talningu í norðvestur­kjördæmi. Fyrir hvaða flokk var hún í framboði?

6.  Lenya Rún er fædd á Íslandi og hefur búið hér alla tíð. Foreldrar hennar eru hinsvegar af hvaða þjóðerni?

7.  Kannski eru til fleiri en ein Krossá á Íslandi. En um hvaða þekkta svæði rennur þá sú stærsta þeirra?

8.  Hvaða ár lentu menn fyrst á tunglinu?

9.  Hvaða ríki tilheyrir Balí?

10.  Hver var forsætis­ráðherra á undan Katrínu Jakobs­dóttur?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er stjórn­mála­maðurinn sem er þarna í heimsókn hjá Elísabetu Breta­drottningu fyrir nokkrum áratugum?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Hitler.

2.  Indónesíu.

3.  Sea Shepherd.

4.  Þetta eru þær konur sem sitja í ríkis­stjórn Bidens Bandaríkja­forseta.

5.  Pírata.

6.  Þau eru kúrdísk.

7.  Þórsmörk.

8.  1969.

9.  Indónesíu.

10.  Bjarni Benediktsson.

***

Svör við auka­spurningum:

Tónlistar­maðurinn heitir Birnir.

Hér má sjá mynd­bandið sem um ræðir.

Stjórn­mála­maðurinn hét Nicola Ceausescu einræðis­herra Rúmeníu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár