Mynd: Heiða Helgadóttir

Auglýsingahlé

Olís bens­ín­stöð­inni í bíla­kjall­ara Hamra­borgar Kópavogs var lokað um ára­mótin en við fáum þó enn að njóta fag­urgula rým­is­ins í nýjum bún­ingi. Sýn­ing­ar­rýmið Y hefur opnað dyr sínar fyrir gestum og gang­andi þar sem sam­tíma­mynd­list fær að njóta sín.

Y er rekið af mynd­list­ar­mann­inum Sigurði Atla Sig­urðs­syni og Olgu Lilju Ólafs­dóttur, sem er með Bsc í rekstr­ar­verk­fræði og meistara­gráðu í fjár­málum. Þau hafa bæði reynslu af þessu starfi en þau kynnt­ust við að setja upp Jóla­sýn­ing­una í Ásmund­ar­sal. Starf­semi Y er styrkt af Olís sem lána rýmið end­ur­gjalds­laust til ára­móta, ásamt því að hljóta styrki frá Kópa­vogsbæ og Borg Brugghús.

Myndlistarmaður og starfsmaður á plani

Gamla bens­ín­stöðin er fal­lega hannað rými með sér­stakan stíl. Hún er kjörin fyrir lista­sýn­ingar þar sem stórir gluggar eru á þremur hliðum svo jafn­vel er hægt að njóta listar allan sól­ar­hring­inn, í næt­ur­göngut­úrnum eða snögg­lega á leið í búð­ina.

Opn­un­ar­tímar eru hins vegar tveir eft­ir­mið­dagar í viku, mið­viku­daga og laug­ar­daga frá 14.00 til 18.00 og eftir sam­komu­lagi. En spurn­ingin sem liggur á allra vörum, eða nösum, er enn bens­ín­lykt? „Dælurnar eru nátt­úr­lega í blússandi biss­ness. Þegar ég var að vinna þarna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár