Ráðherrar opna veskið á lokasprettinum

Á síð­ustu vikum í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga hafa ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar veitt veru­lega fjár­muni til aðgreindra verk­efna, komið umdeildum málum í ferli og lofað aðgerðum sem leggj­ast mis­vel í fólk. Á sama tíma er þing ekki að störfum og þing­menn hafa lítil færi á að sýna fram­kvæmd­ar­vald­inu virkt aðhald.

Ráðherrar opna veskið á lokasprettinum
Afkasta­mikil á loka­metr­unum Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa ekki verið verk­lausir síð­ustu vik­urnar fyrir kosn­ingar. Mynd: Stjórnarráðið

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafa und­an­farnar vikur gripið til fjöl­margra aðgerða sem fela í sér stuðn­ing við mál, sem sum hver eru ekki óum­deild, en hafa í för með sér fjár­út­lát fyrir rík­is­sjóð, oft og tíðum veru­leg. Þessar aðgerðir ráð­herr­anna hafa sumar hverjar farið öfugt ofan í fólk, bæði í stjórn­ar­and­stöðu en eins í stjórn­ar­flokk­unum.

Þannig hefur und­an­farna daga geisað deila milli þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vil­hjálms Árna­sonar, og Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Tilefnið er fjöldi frið­lýs­inga sem ráð­herr­ann hefur ráð­ist í und­an­farnar vikur. Hefur Vil­hjálmur lýst því að Guð­mundur Ingi fari um með „frið­lýs­ing­ar­sprot­ann í skjóli nætur“ en frá því að þing­fundum var frestað í júní hefur ráð­herr­ann und­ir­ritað frið­lýs­ingar á tíu svæðum, þar af sex síð­ast­lið­inn mánuð. Sam­flokks­maður Vil­hjálms, Jón Gunn­ars­son, lýsti því þá 10. sept­em­ber að ef ekki væri fyrir að svo stutt væri til kosn­inga sem raun ber vitni hefði hann látið af stuðn­ingi sínum við rík­is­stjórn­ina vegna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár