Gas- og jarð­gerð­ar­stöð Sorpu á Álfsnesi. Mynd: Davíð Þór

Sorgarsaga Sorpu

Sex millj­arða króna gas- og jar­gerð­ar­stöð Sorpu átti að vera bylt­ing í umhverf­is­málum á Íslandi þegar hún var kynnt fyrir fjöl­miðlum og almenn­ingi. Yfir­lýs­ingar stjórn­enda Sorpu um hvaða árangri stöðin myndi skila hefur ekki ræst og er það orðið aug­ljóst að margar þeirra eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­anum.

Stór dagur fyrir umhverf­is­mál rann upp þann 17. ágúst 2018, en þá var fyrsta skóflustungan tekin að 6 millj­arða króna gas- og jarð­gerð­ar­stöð Sorpu. For­svars­menn Sorpu birt­ust í öllum helstu fjöl­miðlum lands­ins þar sem þeir lýstu því yfir að með til­komu stöðv­ar­innar yrði allt að 95 pró­sent af öllum heim­il­is­úr­gangi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu end­urunn­inn. Draumur manna var að stöðin myndi gera Ísland að fyr­ir­mynd­ar­ríki þegar kæmi að umhverf­is­málum og að erlend ríki myndu horfa til okkar öfund­ar­augum, enda hefði engum öðrum í heim­inum tek­ist það sem for­svars­menn Sorpu og póli­tískt skip­aðir stjórn­ar­með­limir voru að kynna fyrir íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. En draum­ur­inn breytt­ist fljótt í martröð. 

Staðan nú er sú að lítið sem ekk­ert af þeirri 6 millj­arða króna fjár­fest­ingu sem lagt var í virkar í raun og veru eins og lofað var. Þótt stöðin hafi átt að ná 95 pró­sent end­ur­vinnslu­hlut­falli þá er ekk­ert end­ur­unnið, þar sem moltan stenst ekki kröfur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Endurvinnsla á Íslandi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár