499. spurningaþraut: Hvaða Harry Potter-bók hefur (ekki enn) verið skrifuð?

Fyrri auka­spurning:

Hvern má sjá á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Kína, Indland, Banda­ríkin, Indónesía, Brasilía, Nígería, Bangladesj, Rússland og Mexíkó. Þetta eru tíu fjölmennustu ríki heimsins. Nema þau eru aðeins níu, því það vantar eitt. Hvaða fjölmenna ríki vantar í þessa upptalningu?

2.  Og fyrst huganum er vikið að mann­fjölda: Hvað er fjölmennasta ríkið í Eyjaálfu?

3.  En það næst­fjölmennasta í þeirri álfu?

4.  Hér eru nöfn á fimm Harry Potter-bókum: 1) Harry Potter og visku­steinninn, 2) Harry Potter og fanginn frá Azkaban, 3) Harry Potter og leyndarmál gula skuggans, 4) Harry Potter og eldbikarinn, 5) Harry Potter og dauða­djásnin. Ein af þessum bókum er þó tilbúningur minn. Hver þeirra er það?

5.  Hvaða Íslend­ingur var um tíma stjórn­andi stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem nefndist UN Women í Afganistan?

6.  Hvað heitir höfuðborg Afganistans?

7.  Hvar eru Gríms­staðir?

8.  Hver gaf út á Bretlandi ritgerðina Sérherbergi árið 1929?

9.  Við hvað er kennt þríhyrnings­laga hafsvæði þar sem sagt er að óvenju mörg skip og flugvélar hafi horfið?

10.  Í hvaða landi fellur Mekong-fljót til sjávar?

***

Seinni auka­spurning:

Hvar var sú kirkja sem sést á myndinni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Pakistan (er í fimmta sæti).

2.  Ástralía.

3.  Papúa-Nýja Gínea.

4.  Harry Potter og leyndarmál gula skuggans hefur ekki enn verið skrifuð!

5.  Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir.

6.  Kabúl.

7.  Á Fjöllum.

8.  Virginia Woolf.

9.  Bermúda.

10.  Víetnam.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Björk Guðmunds­dóttir.

Þessi ljósmynd prýddi albúmið á plötunni Debut á sínum tíma.

Kirkjan á neðri myndinni stóð hins vegar í Skálholti.

***

Svo er hér að neðan hlekkur á fyrri þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár