494. spurningaþraut: Búkolla, Ciccone, Garden Party

494. spurningaþraut: Búkolla, Ciccone, Garden Party

Fyrri mynda­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sá þrí­tuga írska leikkonu sem býr nú að vísu í Banda­ríkj­unum en hefur gert garð­inn nokkuð frægan í ýmsum banda­rískum og breskum sjón­varps­s­er­íum, svo sem The Knick árið 2014. Nú síð­ast fór hún með hlut­verk skugga­legrar konu í Netflix-ser­í­unni Behind Her Eyes. Leik­konan heitir Eve, ég læt eft­ir­nafn hennar liggja milli hluta í bili en hér skal spurt: Hver er hinn víð­frægi pabbi hennar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg í Frakk­landi hafði páfa­stóll aðsetur í um 70 ár á fyrri öldum?

2.  Á hvaða öld skyldi það ann­ars hafa verið — var það á 8. öld (sjöhund­ruð-og-eitt­hvað), 10. öld (níu­hund­ruð-og-eitt­hvað), 12. öld (ell­efu­hund­ruð-og-eitt­hvað), 14. öld (þrett­án­hund­ruð-og-eitt­hvað) eða 16. öld (fimmt­án­hund­ruð-og-eitt­hvað)?

3.  Hver sagði: „Taktu hár úr hala mínum og legðu það á jörð­ina?“

4.  Og hvað gerð­ist þegar hárið var lagt á jörð­ina? Hér þarf að nefna þrennt!

5.  Hvaða bíla­teg­und hefur stökkvandi katt­ar­dýr að tákni?

6.  Kona ein hefur milli­nafnið Louise  og eft­ir­nafnið Cicconi. Hvað er skírn­ar­nafn hennar?

7.  Fjórar konur — Juanita Broaddrick, Leslie Millwee, Paula Jones og Kathleen Willey — ásök­uðu fyrir 20-30 árum frægan karl­mann um kyn­ferð­is­lega áreitni af ýmsu tagi, allt frá káfi til nauðg­unar. Þá voru þeir tímar að ekki var talin ástæða til að hlusta um of á kon­urnar. Hver var karl­inn?

8.  Rakel Mjöll Leifs­dóttir er þriðja íslenska tón­list­ar­konan til að kom­ast á list­ann yfir 20 vin­sæl­ustu plöt­urnar í Bret­landi. Hún náði þessum merka áfanga í júlí í fyrra, 2020, ásamt ásamt hressi­legri indie-hljóm­sveit sinni frá Brighton sem heitir ... ja, hvað heitir hljóm­sveitin?

9.  Hver var ann­ars fyrsta íslenska tón­list­ar­konan til að kom­ast á þennan fyrr­nefnda lista?

10.  Árið 1983 náði íslensk hljóm­sveit frá­bærum árangri á breska tón­list­ar­mark­aðnum með lagið Garden Party. Hver er hljóm­sveitin?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvað heitir fjallið fyrir miðri mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Avignon.

2.  Á 14. öld.

3.  Búkolla.

4.  Fyrst spratt fram fljót, síðan eldur og loks fjall. Ekki er nauð­syn­legt að nefna þetta í réttri röð.

5.  Jaguar.

6.  Madonna.

7.  Bill Clinton.

8.  Dream Wife.

9.  Björk Guð­munds­dóttir.

10.  Mezzoforte.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Pabbi hennar Eve Hewson heitir Paul Hewson en er kunn­astur undir gælu­nafn­inu Bono, hann er söngv­ari U2.

Fjallið á neðri mynd­inni heitir Baula.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
4
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár