Þolinmæðin gegn hörðum aðgerðum þrotin

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir segir það stjórn­valda að taka ákvörðun um hvort þau séu til­búin að grípa til harða aðgerða til að kveða Covid-bylgj­una niður eða ekki. Víðir Reyn­is­son segir að almanna­varnir finni mjög skýrt að þol­in­mæðin gegn hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum sé þrotin hjá mjög mörgum.

Þolinmæðin gegn hörðum aðgerðum þrotin
Stjórn­valda að ákveða aðgerðir Þórólfur sagði að stjórn­völd yrði að taka ákvörðun um hvort þau grípi til harðra aðgerða til að kveða niður yfir­stand­andi Covid-19 bylgju eða ekki. Mynd: Heiða Helgadóttir

Útbreiðsla kór­ónu­veirunnar í sam­fé­lag­inu er orðin mikil og eftir því sem tím­inn líður verður erf­ið­ara að ná utan um bylgju far­ald­urs­ins og kveða hana niður. Það er stjórn­valda að taka ákvörðun um til hvort þau séu til­búin að grípa til harðra aðgerða til að svo megi verða.

Þetta sagði Þórólfur Guðnason á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins í dag. „Ég held að það sé fyllsta ástæða til að hafa áhyggjur af þess­ari þróun sem við erum að sjá og þá sér­stak­lega því álagi sem getur skap­ast á heil­brigð­is­kerfið okkar,“ sagði Þórólfur. Hann sagð­ist jafn­framt vera í stöð­ugum sam­skiptum við heil­brigð­is­ráð­herra, form­legum og óform­legum. „Ég held að það sé komið að því að stjórn­völd þurfa að huga vel að því til hvaða aðgera eigi að grípa. Það er ekki víst að ég á þessum tíma­punkti leggi til ein­hverja ákveðnar aðgerðir. Við erum búin að ganga í gegnum þetta margoft, með þeim aðgerðum sem við höfum gripið til, og við vitum hvað virkar og hvað ekki. Ég held að það sé núna stjórn­valda að taka ákvörðun um það, að gefnu áhættu­mati og útliti, hvort stjórn­völd eru til­búin til að grípa til harða aðgerða til að kveða bylgj­una hérna niður eða ekki.“

„Ég held að það sé núna stjórn­valda að taka ákvörðun um það, að gefnu áhættu­mati og útliti, hvort stjórn­völd eru til­búin til að grípa til harða aðgerða til að kveða bylgj­una hérna niður eða ekki“
Þórólfur Guðnason
sótt­varn­ar­læknir

Þórólfur lýsti því að honum þætti miður hvernig umræðan um Land­spít­ala, og þær áhyggjur sem stjórn­endur þar á bæ hefðu viðrað af álag­inu sem á spít­al­anum væri, hefði verið síð­ustu daga. Máls­met­andi fólk hefði þannig gert lítið úr þeim áhyggjum en eng­inn væri betur til þess fallin að meta stöð­una en spít­al­inn sjálfur. Spurður hvort hann hefði lýst þeirri skoðun sinni við stjórn­völd að styrkja þyrfti heil­brigð­is­kerfið svar­aði hann því til að það hefði hann margoft gert. Það yrði hins vegar ekki gert í einu hend­ingskasti. „Helsta ráðið til að vernda heil­brigðiskerifið og Land­spít­al­ann, ef fram fer sem horfir að inn­lögnum fer að fjölga og alvar­legum veik­indum, það er að reyna að minnka útbreiðsl­una í sam­fé­lag­inu. Það er sú leið sem við getum farið núna og gripið hrað­ast inn í.“

Hafa áhyggjur af afleiðingum helgarinnar

Hópa­mynd­anir helg­ar­innar áhyggju­efniVíðir segir að eftir eigi að koma í ljós hvaða áhrif hópa­mynd­anir um versl­un­ar­manna­helg­ina kunni að hafa.

Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn sagði að svo virt­ist sem versl­un­ar­manna­helgin hefði gengið stór­á­falla­laust fyrir sig. Engu að síður hefði verið mik­ill erill og mikið um hópa­mynd­anir og af því hefðu almanna­varnir áhyggjur, í ljósi þess hversu smit væru útbreidd í sam­fé­lag­inu. Það ætti eftir að koma í ljós hvort að sam­komur myndu hafa frek­ari áhrif á útbreiðslu veirunnar.  

Þórólfur benti á að Delta-afbrigði veirunna hefði því sem næst alveg tekið yfir hér á landi og ljóst væri að bólu­settir bæði smit­uð­ust og smit­uðu aðra. Útbreiðsla smits í land­inu væri mjög hröð og rað­grein­ingar sýndu að upp­runa flestra smit­anna mætti rekja til hópa­mynd­unar, til að mynda á skemmti­stöðum og hóp­ferðum Íslend­inga erlendis.

Í þess­ari bylgju kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins hafa um 24 þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús, af ríf­lega 1.470 smitum inn­an­lands frá því í byrjun júlí. Það sam­svarar um 1,6 pró­sentum en í fyrri bylgjum hefur hlut­fall þeirra sem hafa þurft á sjúkra­húsinn­lögn að halda verið á bil­inu 4 til 5 pró­sent. Um 70 pró­sent þeirra sem greinst hafa með veiruna frá 1. júlí hafa verið full­bólu­settir og af þeim hefur 1 pró­sent þurft að leggj­ast inn á sjúkra­hús. Hlutfall þeirra sem hafa veikst og þurft á sjúkra­húsinn­lögn að halda er hins vegar 2,4 pró­sent. Þórólfur sagði því ljóst að bólu­setn­ing veitti vörn gegn alvar­legum veik­indum en ekki væri vitað hversu góða vörn hún veitt til að mynda öldruðum og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

„Þol­in­mæðin fyrir þess­ari veiru og fyrir þessum aðgerðum og þessu stóra verk­efni okkar er þrotin hjá mjög mörgum“
Víðir Reyn­is­son
yfir­lög­reglu­þjónn

Um 30 þús­und manns eldri en 16 ára eru nú óbólu­settir og um 70 þús­und börn yngri en 16 ára. Stefnt er að því að bjóða börnum á aldr­inum 12 til 15 ára bólu­setn­ingu á næstu vikum og er unnið að útfærslu á því verk­efni.

Boltinn hjá stjórnvöldum

Þórólfur var spurður hvort hann væri hræddur um að smit í sam­fé­lag­inu væri orðið of útbreitt til að hægt yrði að ná því niður, nema með mjög hörðum við­brögðum sem lítil stemn­ing væri fyrir í sam­fé­lag­inu. „Vissu­lega er rétt að eftir því sem tím­inn líður og útbreiðslan verður meiri verður erf­ið­ara að ná utan um þessa bylgju. Því fyrr sem gripið verður til aðgerða því betri árangur næst,“ sagði Þórólfur og bætti því við að þolið í sam­fé­lag­inu gegn sótt­varn­ar­að­gerðum væri orðið minna en verið hefði. Því riði á að stjórn­völd tækju ákvörðun um hvernig halda skyldi áfram.

„Eins og Þórólfur nefndi þá finnum við það mjög skýrt að þol­in­mæðin fyrir þess­ari veiru og fyrir þessum aðgerðum og þessu stóra verk­efni okkar er þrotin hjá mjög mörgum. Maður skilur það alveg en því miður er það þannig að við þurfum að halda áfram og það er ekk­ert annað í stöð­unni. Við þurfum ekk­ert öll að vera sam­mála um allt en mark­miðin okkar þurfa að vera skýr, og það sem meira er að hags­munir okkar allra fara saman í því að við náum sem bestum tökum á þess­ari veiru, lifum með henni eins lengi og við þurfum því það er veiran sem er óvin­ur­innn en ekki við hvert annað. Það skiptir bara miklu máli að sýna mis­mun­undi skoð­unum hvers ann­ars skiln­ing, reyna að setja okkur í spor ann­arra og skilja hvað það er sem býr að baki. Fyrst og fremst þurfum við að vera almenni­legt fólk og vera góð hvert við annað,“ sagði Víðir.

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár