Eigendur Ásmundarsals vissu af einkasamtali lögregluþjónana á undan nefndinni

Sigur­björn Þorkelsson, einn eigandi Ásmundarsals, vissi af einka­samtali lögreglu­mannana tveggja áður en nefndin vissi af þeim. Sigur­björn vill ekki láta uppi hver gaf honum þær upplýsingar.

Vissi af einkasamtali lögreglumanna
Vissi af einka­sam­tali lög­reglu­manna Sig­ur­björn Þor­kels­son, vissi af einka­sam­tali þeirra lög­reglu­þjóna sem voru á vett­vangi í Ásmund­ar­sal á þor­láks­messu á undan nefnd­inni sem fjall­aði um málið.

Sigur­björn Þorkelsson, annar eigandi Ásmundarsals, staðfesti við Stundina að hann hafi vitað af einka­samtali á milli tveggja lögreglu­þjóna á vettvangi í Ásmundarsal á Þorláks­messu áður en nefnd um eftirlit með starfs­háttum lögreglu hafði sömu vitneskju. Samtalið kom fram á búkmyndavél lögreglunnar af vettvangi.

Lögmaður Sigurbjörns og konu hans, Heiðu Magnúsdóttur, hins eiganda Ásmundarsals, lét nefndina vita af samtali lögreglu­mannana. Þetta stað­festir lögmaður nefndarinnar. „Nefndin hefði ekki haft vitneskju um ummælin ef henni hefði ekki borist sú kvörtun,“ segir í svari nefndarinnar við fyrir­spurn blaða­manns. 

„Hvernig yrði frétta­til­kynn­ing­in [...] 40 manna einka­sam­kvæmi og þjóð­þekkt­ir ein­stak­ling­ar [...] er það of mikið eða?“ Þá svar­aði hinn lög­reglu­þjónn­inn: „Ekki fyr­ir mig, ég myndi lesa það.“ Og einnig: „Ég þekkti tvær stelp­ur þarna uppi og þær eru báðar sjálf­stæðis [...] svona [...] frama­potarar eða þú veist.“
Einka­sam­tal lög­reglu­þjóna

Lögmaður og lögregla þau einu með aðgang …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár