Partýblöðrur og helíumskortur

Yfir 10% af árlegri fram­leiðslu á hel­íum fer í að blása upp blöðrur.

Partýblöðrur og helíumskortur

Fyrir mörgum eru hel­íumblöðrur hluti af hefð­inni þegar haldið er upp á þjóð­há­tíð­ar­dag okkar Íslend­inga. Bærinn fyllist af börnum sem allir hafa sína blöðru sem svífur um götur borg­ar­innar og sumar sjást jafn­vel hátt upp í lofti eftir að þær komust undan eig­anda sínum. Þá hafa vin­sældir svo­kall­aða kynja­veislna auk­ist og þar að leið­andi blöðru­notkun.

Ástæðan fyrir því að þessar blöðrur eru umdeildar er ekki bara plastið sem þær eru gerðar úr, heldur er það loft­teg­undin hel­íum sem þær inni­halda. Það sem fæstir mögu­lega vita er að hel­íum er mjög tak­mörkuð auð­lind, það er bara til ákveðið magn af því hér á jörð­inni. Helíum er næst­léttasta frum­efnið en þrátt fyrir að vera eitt af algeng­ustu frum­efnum alheims­ins er hel­íum aðeins til í tak­mörk­uðum mæli hér á jörð­inni og það er eitt fárra frum­efna sem leka úr loft­hjúpi jarðar og út í geim þegar það er notað. Það er því ekki sjálf­bært. Yfir 10% af árlegri fram­leiðslu á hel­íum fer í að blása upp blöðrur.

Sjúkrahús geta ekki verið án helíum

Fyrir flestum er hel­íum senni­lega þekkt­ast fyrir að vera notað í blöðrur. En það er óvíst hversu margir átti sig á í raun hversu dýr­mæt og mik­il­væg loft­teg­undin er. Aðal­notkun hel­íums í heim­inum er í heil­brigð­is­geir­anum, til dæmis er hel­íum notað til kæl­ingar á seg­u­l­ómun­ar­tæki á sjúkra­húsum, við með­ferð á asma, skurð­lækn­ingar og margt fleira.  Þá er hel­íum einnig notað í fjölda af öðrum hlutum sem eru mik­il­vægir, eins og við fram­leiðslu á ljós­leið­ara, á rann­sókn­ar­stofum, í elds­neyti­stönkum geim­flauga, kæli­mið­ill við fram­leiðslu hálf­leið­ara og í kjarna­ofnum svo fátt eitt sé nefnt. 

Heimskortur veldur verðhækkunum

Á und­an­förnum árum hafa birgðir á þess­ari mik­il­vægu loft­teg­und farið tölu­vert minnk­andi með hverju árinu sem líður. Árið 2013 varð fyrsti mikli skort­ur­inn á hel­íum, skorti sem vís­inda­menn um allan heim voru búnir að vara við í mörg ár og hafði hann áhrif víða um heim. Það ár fjöll­uðu helstu fjöl­miðlar lands­ins um þennan skort hér á Íslandi og var það þá aðal­fréttin að ekki yrði hægt að fá hel­íumblöðrur þann þjóð­há­tíð­ar­dag eða í veisl­urnar. Ástandið var alvar­legt og þurfti að for­gangs­raða kaup­endum eftir mik­il­vægi. Hundruð vís­inda­manna þurftu að hætta rann­sóknum sínum vegna skorts­ins og gátu margir spít­alar ekki nálg­ast efnið. Þar sem fram­boðið dug­aði ekki til að sinna eft­ir­spurn­inni þá hækk­aði verðið umtals­vert. Á und­an­förnum 15 árum hefur verð á hel­íum hækkað um 500%, hækkun sem heil­brigð­is­stofn­anir og vís­inda­menn þurfa að borga. 

Óvíst hvenær hægt verði að skipta út helíum

Helíum er að stærstum hluta ekki sér­stak­lega fram­leitt heldur er það auka­af­urð sem kemur þegar er verið að ná í jarð­gas eða olíu úr jörð­inni. Afar fá svæði hafa hel­íum í vinn­an­legu magni og fer um 75% af vinnslu alls hel­íums­fram­leiðslu í heim­inum fram í Banda­ríkj­unum. Þá er mjög erfitt að nálg­ast hel­íum. Upp­sprettur eru mjög sjald­gæfar og finn­ast á ein­stökum svæðum í Banda­ríkj­unum, Kanada, Póllandi, Rúss­landi og Tansaníu. Suðumark hel­íums er nálægt alkuli eða -267 °C og er efnið í fljót­andi formi besta kæli­efni heims, og enn er ekki séð fram á hvernig skipta megi efn­inu út fyrir aðra kæli­m­iðla, tæknin er ein­fald­lega ekki til í dag og segja vís­inda­menn að langt sé í land að finna aðra tækni, á meðan þurfa þeir á hel­íum að halda.

Vilja banna helíumblöðrur

Vegna þessa hafa því vís­inda­menn um allan heim lagt fram þá kröfu að bann verði lagt við að nota þessa mik­il­vægu, og dýr­mætu loft­teg­und, við að fram­leiðsla blöðrur. Margar borgir, víðs­vegar um heim­inn, hafa hlustað á vís­inda­menn og lagt alfarið bann við hel­íu­blöðrum. Árið 2017 lagði Umhverfis- og fram­kvæmd­ar­ráð Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar fram að Hafn­ar­fjarð­ar­bær og stofn­anir hans hætti að nota blöðrur með hel­íum. Ekkert bann var þó sett á, heldur voru þetta ein­göngu vin­sam­leg til­mæli. 

Að sögn vís­inda­manna mun bann við hel­íumblöðrum ekki ein­göngu hjálpa við að minnka notkun á hel­íum um heim allan, heldur mun það bjarga hund­ruð þús­unda fugla og sjáv­ar­dýra árlega. Blöðr­urnar eru nefni­lega flest allar fram­leiddar úr latex­blöndu eða úr þunnri pólý­esterfilmu úr plasti.  Plastið í blöðr­unum ógnar dýrum þegar þau flækj­ast í því og kafna og svo vegna plast­agna sem dýrin borða. Flestar líf­verur sem taka inn í sig plast eiga í erf­ið­leikum með að losa sig við það.

Plastagnir finnast í fiskum og fuglum á Íslandi.

Plast­agnir eru að finn­ast í fiskum og fuglum við strendur lands­ins. Samkvæmt rann­sókn Anne de Vries, nema í haf- og strand­svæða­stjórnun við Háskóla­setur Vest­fjarða, kom í ljós að 20,5% af öllum veiddum þorski á Íslandi inni­hélt plast­agnir og 17,4% af öllum ufsa inni­hélt plast­agnir. Samkvæmt rann­sókn, sem Aðal­steinn Örn Snæ­þórs­son, líf­fræð­ingur hjá Nátt­úru­stofu Norð­aust­ur­lands, fram­kvæmdi, reynd­ist 70% fýla sem hann rann­sak­aði vera með plast í mag­anum. Þá hafa rann­sóknir á maga­inni­haldi hvala sem hafa rekið á land sýnt fram á gíf­ur­legt magn af plasti. Rann­sóknir á kræk­lingum við strendur Íslands sýna einnig að meira en helm­ingur þeirra inni­halda plast­agnir. Agnir sem enda svo á diskum lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár