Þriðjungur myndaði sér ranga skoðun vegna falsfrétta

Sjö af hverjum tíu þátt­tak­endum í nýlegri íslenskri rann­sókn töldu sig hafa rek­ist á fals­fréttir á tólf mán­aða tíma­bili. Elstu og yngstu ald­urs­hóp­arnir eiga erf­ið­ast með að greina fals­fréttir og upp­lýs­inga­óreiðu.

Þriðjungur myndaði sér ranga skoðun vegna falsfrétta
Mest á Facebook Flestir töldu sig hafa rek­ist á rangar upp­lýs­ingar sem dreift var á Facebook. Mynd: Shutterstock

Um þriðj­ungur þátt­tak­enda í íslenskri könnun um fals­fréttir við­ur­kenndu að þeir hefðu myndað sér ranga skoðun á opin­berri per­sónu vegna vill­andi upp­lýs­inga sem þeir höfðu séð í ýmsum miðlum. Í sömu könnun sögðu átta af hverjum tíu að þau hefðu rek­ist á upp­lýs­ingar á net­inu sem þau efuð­ust um að væru réttar og sjö af tíu höfðu séð eða fengið sendar fals­fréttir á síð­ustu tólf mán­uðum.

Þetta kemur fram í öðrum hluta skýrslu fjöl­miðla­nefndar um fals­fréttir og upp­lýs­inga­óreiðu. Í skýrsl­unni er vísað til könn­unar Maskínu sem fram fór í febr­úar og mars á þessu ári. Auk þess sem nefnt er hér að fram kemur fram að sjö af hverjum tíu sögðu að þau hefðu rek­ist á upp­ýs­inga­óreiðu eða fals­fréttir um kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn á net­inu. Í flestum til­fellum hafði fólk séð slíkt á Facebook, í 83 pró­sent til­fella og í 39 pró­sent til­fella á öðrum sam­fé­lags­miðlum. Þá hafði tæp­lega helm­ingur rek­ist á slíkar fals­fréttir á vef­svæðum sem ekki hafa rit­stjórnir og tæpur þriðj­ungur á YouTube. Ríflega 22 pró­sent höfðu rek­ist á á fals­fréttir í rit­stýrðum dag­blöðum.

Þegar horft er til ald­urs kemur í ljós að hlut­fall þeirra sem efuð­ust um sann­leiks­gildi upp­lýs­inga á net­inu kemur í ljós að hlut­fallið var hæst í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára, um 86 pró­sent. Lægst var hlut­fallið í hópi þeirra sem voru 60 ára og eldri, tæp 70 pró­sent. Þá var sá ald­urs­hópur einnig ólík­leg­astur til að hafa séð fals­fréttir en rúm 48 pró­sent töldu sig hafa séð slíkar á síð­ustu tólf mán­uðum. Meðaltal þeirra sem töldu sig hafa séð fal­fréttir í öðrum ald­urs­hópum var hins vegar 72 pró­sent.

Þá kemur í ljós að yfir helm­ingur, 55 pró­sent, höfðu kannað aðrar heim­il­i­dir sem þau treystu eftir að hafa rek­ist á frétt sem þau töldu að væri röng eða fals­frétt. Tæpur fjórð­ungur brást hins vegar ekki við með þeim hætti. Þá kemur í ljós að þeir sem elstir eru, 60 ára og eldri, og yngsti ald­urs­hóp­ur­inn, 15 til 17 ára áttu í mestum vand­ræðum með að greina fals­fréttir og upp­lýs­inga­óreiðu, og áttu jafn­framt erf­ið­ast með að bregð­ast við með því að leita sér ann­arra upp­lýs­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár