„Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum“

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri segir að það sé hlut­verk Seðla­banka Íslands að hugsa um almanna­hags­muni í landi þar sem sér­hags­muna­hópar hafa mikil völd. Hann segir að það megi aldrei ger­ast aftur að ,,mógúlar“ taki yfir stjórn fjár­mála­kerf­is­ins og lands­ins líkt og gerð­ist fyrir hrunið. Í við­tali við Stundina ræðir hann störf sín í Kaup­þingi, atlögur Samherja að starfs­mönnum bank­ans, Covid-krepp­una, sam­ein­ingu FME og Seðla­bank­ans og hlut­verk bank­ans í því að auka vel­ferð á Íslandi.

„Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum“

„Ég skil bara ekki hvern and­skot­ann þessi lög­reglu­stjóri þarf að rann­saka og af hverju þessu er ekki bara vísað frá. Ég ótt­ast það að mörgu leyti, í svona eft­ir­lits­stofnun eins og Seðla­bank­inn er, að við lendum í því að við verðum hund­elt per­sónu­lega eins og farið var á eftir þessu starfs­fólki,“ segir Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Hann vísar til þess að útgerð­ar­fé­lagið Samherji kærði fimm af starfs­mönnum Seðla­banka Íslands til lög­regl­unnar vorið 2019. Samherji lagði kæruna fram vegna rann­sóknar bank­ans á Seðla­banka­máli Samherja sem hófst með hús­leitum hjá félag­inu árið 2012, vegna meintra brota á lögum um gjald­eyr­is­mál.

Starfs­menn­irnir sem voru kærðir voru fyr­ir­renn­ari Ásgeirs í emb­ætti seðla­banka­stjóra, Már Guð­munds­son, Arnór Sig­hvats­son, Ingi­björg Guð­bjarts­dóttir, Sigríður Loga­dóttir og Rannveig Jún­í­us­dóttir. Kæran liggur enn þá, tveimur árum eftir að hún …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár