Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu fer lækkandi

Vísitala leigu­verðs er nú 3,2 pró­sentum lægra en fyrir ári síðan. Lækkun milli jan­úar og febr­úar nemur 1,5 pró­sentum.

Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu fer lækkandi
Leigu­verð lækkar Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fer lækk­andi. Mynd: Shutterstock

Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur farið stig­lækk­andi síð­ustu tólf mán­uði og er vísi­tala leigu­verðs nú 3,2 pró­sentum lægra en fyrir ári síðan. Leita þarf aftur til júlí­mán­aðar árið 2019 til að finna lægri vísi­tölu, utan eins mán­aðar.

Þjóðskrá Íslands birtir vísi­tölu leigu­verðs, sem sýnir breyt­ingar á vegnu með­al­tali fer­metra­verðs leigu­hús­næðis, og var hún 197,5 stig í febr­úar síð­ast­liðnum. Það er lækkun um 1,5 pró­sent milli mán­aða og síð­ustu þrjá mán­uði hefur vísi­talan lækkað um 2 pró­sent. Vísi­talan mið­ast við grunn­punkt­inn 100 frá því í jan­úar 2011.  

Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hóf að lækka í mars 2020. Í jan­úar og febr­úar það ár var vísi­tala leigu­verðs 204 stig en tók dýfu í mars og mæld­ist þá 201,8 stig. Lækkunin hélt áfram og lægst fór vísi­talan í maí síð­ast­liðnum, niður í 195,3 stig. Leigu­verð fór svo aftur hækk­andi síð­ari hluta sein­asta árs og allt fram til des­em­ber mán­aðar síð­ast­lið­ins þegar hún mæld­ist 201,9 stig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár