Sendir páfa bréf: „Hvernig getur það verið synd að elska þau sem maður elskar?“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra hefur í annað sinn sent bréf til páfans. „Þetta við­horf stríðir gegn allri heil­brigðri skyn­semi,“ skrifar hann.

Sendir páfa bréf: „Hvernig getur það verið synd að elska þau sem maður elskar?“
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son Er ráð­herra utan þings en sæk­ist eftir kjöri í kom­andi þing­kosn­ingum 25. sept­em­ber næst­kom­andi. Mynd: Pressphotos.biz

„Við óskum eftir því að vera við­ur­kennd af sam­fé­lag­inu sem við sjálf,“ skrifar Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna, í bréfi sínu til Frans páfa. Tilefni bréfs­ins er yfir­lýs­ing frá Vatík­an­inu, sem Frans páfi und­ir­rit­aði, að kaþ­ólskir prestar gætu aldrei stað­fest hjóna­bönd fólks af sama kyni.

„Ég hef skrifað Francis páfa bréf og skorað á hann að draga til baka umdeilda ákvörðun um að banna blessun sam­banda hjá sam­kynja pörum. Ég hvet hann til þess að taka af skarið gagn­vart íhalds­ömum öflum í kaþ­ólsku kirkj­unni og verja sjálf­sögð mann­rétt­indi hinsegin fólks,“ segir Guð­mundur Ingi í færslu um bréfið á Facebook-síðu sinni. 

Í bréf­inu vísar Guð­mundur Ingi til áhrifa­máttar Frans páfa, ábyrgðar hans og þess að kyn­hneigð sé ekki til­fallandi ákvörðun heldur eðl­is­lægur hluti sums fólks. „Finndu kjarkinn í gegnum bæn­irnar og stattu með okkur,“ segir Guð­mundur Ingi meðal ann­ars.

Bréfið til páfa„Þetta við­horf stríðir gegn allri heil­brigðri skyn­semi,“ segir í bréfi Guð­mundar Inga til páfa.

Á Facebook-síðu sinni hvetur Guð­mundir Ingi aðra til að láta rödd sína heyr­ast. „Þetta er í annað skipti sem ég sendi Francis páfa bréf. Núver­andi páfi hefur alltaf slegið mig sem góður og hjarta­hlýr maður og hann þarf hvatn­ingu okkar og stuðn­ing til góðra verka. Gleymum því aldrei að rödd okkar allra skiptir máli. Gefumst aldrei upp fyrir for­dómum og þekk­ing­ar­leysi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár