Greiddi 10 milljónir fyrir forsíðumfjöllun um Róbert Wessmann í ensku tímariti

Sam­heita­lyfja­fyr­ir­tækið Alvogen greiddi 10 millj­ónir íslenskra króna fyrir for­síð­um­fjöllun í breska tíma­rit­inu World Finance um Róbert Wessmann síðla árs 2017. Róbert fékk svo við­skipta­verð­laun frá net­miðli sem er í eigu sama útgáfu­fé­lags árið 2018. Alvogen svarar ekki spurn­ingum um kostun við­tals­ins.

Greiddi 10 milljónir fyrir forsíðumfjöllun um Róbert Wessmann í ensku tímariti
For­síðu­um­fjöllun og svo verð­laun Róbert Wessman fékk for­síðu­um­fjöllun um sig í ensku tima­riti og svo verð­laun sem besti lyfja­for­stjór­inn árið 2018 frá net­miðli í eigu sama útgáfu­fyr­ir­tækis. Alvogen greiddi 10 millj­ónir fyrir for­síðu­um­fjöll­un­ina. Róbert sést hér taka við verð­laun­unum.

Síðla árs 2017 var samið um það að greidd yrðu um 70 þús­und pund, nærri 10 millj­ónir íslenskra króna á gengi þess tíma, fyrir það að fjár­festir­inn Róbert Wessman yrði í for­síðu­við­tali við enska tíma­ritið World Finance. Þetta herma heim­ildir Stund­ar­innar. Tíma­ritið er gefið út af sam­nefndu útgáfu­fyr­ir­tæki sem er með aðsetur í London. Viðtalið var 10 blað­síður og var einnig samið um mark­aðs­setn­ingu á því í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum. Greið­andi kaup­verðs­ins á við­tal­inu var Alvogen, sam­heita­lyfja­fyr­ir­tækið sem Róbert stofn­aði og stýrir.

Róbert Wessman er for­stjóri og einn eig­andi Alvogen sem og líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Alvotech sem rekur lyfja­verk­smiðj­una á háskóla­svæð­inu í Vatns­mýr­inni. Stjórn­endur Alvotech reyna nú að fá líf­eyr­is­sjóð­ina til að fjár­festa í verk­smiðj­unni. Róbert Wessman er sjálfur stærsti hlut­haf­inn í Alvotech í gegnum fyr­ir­tæki í Lúx­em­borg sem heitir Alvotech Holding S.A. en Róbert á tæp 39 pró­sent í því. End­an­legt eign­ar­hald á fyr­ir­tækja­eignum Róberts í Alvogen og Alvotech er svo í sjóði í skatta­skjól­inu Jersey á Ermar­sundi.

Róbert og fyr­ir­tæki á hans vegum hafa stundað það í gegnum árin að greiða erlendum aðilum og fyr­ir­tækjum fyrir jákvæða umfjöllun um sig og er þetta hluti af mark­vissri ímynd­ar­sköpun hans og fyr­ir­tæk­is­ins. Alvogen og Alvotech nota þessar keyptu, jákvæðu umfjall­anir svo til að aug­lýsa og kynna fyr­ir­tækið á Íslandi og erlendis. 

Í Stund­inni í dag er fjallað um þennan þátt í ímynd­ar­sköpun Róberts Wessmann og við­skipti Róberts með lyfja­verk­smiðju Alvotech í Vatns­mýr­inni sem fyr­ir­tækið fékk að byggja á grund­velli samn­ings við Reykja­vík­ur­borg og Háskóla Íslands. 

70 þús­und bresk pundSamkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar greiddi Alvogen 70 þús­und bresk pund, tæpar 10 millj­ónir króna, fyerir umfjöll­un­ina um Róberts Wessman í World Finance.

Alvogen velur að svara ekki  

Í svari frá upp­lýs­inga­full­trúa Alvogen og Alvotech, Elísa­betu Hjalta­dóttur, er þeirri spurn­ingu ekki svarað hvort Alvogen hafi greitt um 70 þús­und bresk pund fyrir þessa umfjöllun til útgáfu­fé­lags­ins í London og er vísað til fyrri umfjöll­unar fjöl­miðla um við­skipta­verð­laun sem Róbert Wessman fékk um svipað leyti frá sama útgáfu­fyr­ir­tæki. „Vísað er til fyrri svara Halldórs Krist­manns­sonar sem hafði þessi mál með höndum,“ segir í svari Elísa­betar, en umræddur Halldór, sem séð hefur um upp­lýs­inga­mál fyrir Róbert Wessman og Alvogen í gegnum árin, var aldrei spurður spurn­inga um kostun umrædds við­tals eða upp­hæðir á bak við þessa kost­uðu umfjöllun.

Alvogen kýs því að svara ekki spurn­ing­unni um greiðslu vegna umfjöll­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár