Sterkari, glaðari og hamingjusamari

Þórdís Vals­dóttir fór á hnef­anum í gegnum áföll lífs­ins. Hún var 14 ára þegar systir hennar lést vegna ofneyslu eit­ur­lyfja og hún var 15 ára þegar hún varð ófrísk og þurfti að fram­kalla fæð­ingu vegna fóst­ur­galla þegar hún var meira en hálfnuð með með­göng­una. Álagið varð mikið þegar hún eign­að­ist tvö börn í krefj­andi lög­fræði­námi og hún gekk á vegg og leyndi því hversu illa henni leið. Allt breytt­ist þegar hún fór að ganga og hlaupa.

Sterkari, glaðari og hamingjusamari
Nýtt líf Þórdís Vals­dóttir rak sig á vegg eftir upp­söfnuð áföll sem hún tók á hnef­anum með stolti. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég á erf­iða áfalla­sögu frá ung­lings­árum. Ég hef alltaf tekið allt á hnef­anum; það hefur svo­lítið ein­kennt mig,“ segir Þórdís Vals­dóttir, lög­fræð­ingur og útvarps­kona hjá Bylgj­unni. „Ég missti systur mína úr ofneyslu eit­ur­lyfja þegar ég var 14 ára og svo varð ég ófrísk ári síðar og missti fóstur þegar ég var meira en hálfnuð með með­göng­una. Þetta eru ung­lings­árin mín í hnot­skurn.“

Systir Þórdísar, Arna Hildur, var 25 ára þegar hún lést árið 2002. „Þá byrj­aði þetta mynstur sem ég hef alltaf verið svo­lítið föst í; að vera ofboðs­lega sterk. Og ég man að ég var ótrú­lega stolt af því á sínum tíma að hafa ekki þurft neina aðstoð – sál­fræði­að­stoð eða þung­lynd­is­lyf – eftir að hafa misst systur mína. Mér fannst það vera góður eig­in­leiki og margir sögðu að ég væri svo ofboðs­lega sterk. Þannig að þetta var orðin dyggð sem mér fannst gott að hafa. Auðvitað bregst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár