,,Óttinn var allsráðandi á meðferðarheimilinu"

Brynja Skúla­dóttir var fjórtán ára þegar hún var vistuð á með­ferð­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti. Hún seg­ist hafa áttað sig á því fyrsta dag­inn að þar væri ekki verið að bjóða upp á með­ferð heldur nið­ur­brot. Það hafi verið ófrá­víkj­an­leg regla að brjóta stelp­urnar niður um leið og þær komu segir Brynja. Hún seg­ist hafa verið log­andi hrædd við for­stöðu­mann heim­il­is­ins enda hafi hann beitt hana mik­illi hörku strax fyrsta dag­inn.

,,Óttinn var allsráðandi á meðferðarheimilinu"
Brynja Skúla­dóttir Brynja var fjórtán ára þegar hún kom fyrst á með­ferð­ar­heim­ilið Varpholt. Hún seg­ist hafa áttað sig á því fyrsta dag­inn að þarna ætti ekki að bjóða uppá með­ferð heldur nið­ur­brot. Það hafi verið ófrá­víkj­an­leg regla að brjóta stelp­urnar niður um leið og þær komu. Hún seg­ist strax hafa orðið log­andi hrædd við for­stöðu­mann heim­il­is­ins enda hafi hann beitt hana mik­illi hörku fyrstu dag­ana. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég var ekki nei­kvæð í garð Varp­holts þegar mér var sagt að ég yrði send þangað. Líf mitt hafði verið mjög erfitt. Ég var fjórtán ára og hafði orðið fyrir kyn­ferð­is­legri mis­notkun og bróðir minn hafði dáið nokkrum árum fyrr í slysi, aðeins 17 ára gam­all. Öll fjöl­skyldan mín var því buguð af sorg vegna áfalla. Ég var reið og hrædd og vissi eig­in­lega ekki mitt rjúk­andi ráð, kunni ekki að díla við lífið. Þannig að þegar mér var sagt að ég færi á með­ferð­ar­heim­ili úti á landi var mér létt því ég hélt að ég væri að fá þá aðstoð sem ég þurfti á þessum tíma.“ 

Þetta segir Brynja Skúla­dóttir, sem er 36 ára hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingur. Hún kom fyrst í Varpholt árið 1998, þá fjórtán ára, og var þar í rúm tvö ár. „Ég átt­aði mig á því fyrsta dag­inn að þarna var ekki verið að bjóða upp á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár