Janú­ar­ráð­stefna Festu: Nýtt upp­haf

Streymið hefst klukkan 9 og er birt í sam­starfi við Festu.

Yfir­skrift Jan­ú­ar­ráð­stefnu Festu í ár er The Great Reset! eða Nýtt upp­haf! sem er jafn­framt heiti á átaki á vegum World Economic Forum, sem hefur það mark­mið að horfa til sjálf­bærra upp­bygg­ingar sam­fé­laga í kjöl­far kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins. Um er að ræða helstu ráð­stefnu hér á landi á sviði sjálf­bærni og sam­fé­lags­á­byrgðar. 

Á ráð­stefn­unni verða jafn­framt kynntar nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar Deloitte á við­horfi stjórn­enda 300 stærstu fyr­ir­tækja lands­ins um aðgerðir fyr­ir­tækja í lofts­lags­málum. Mark­miðið með könn­un­inni er að varpa ljósi á hvernig stjórn­endur takast á við lofts­lags­á­skor­un­ina. Enn­fremur geta nið­ur­stöð­urnar nýst í frek­ari stefnu­mörkun og umræður um lofts­lags­mál hér á landi.

Ráð­stefnan hefst klukkan 9:00 og stendur til 12. Streymið birt­ist á Stund­inni í sam­starfi við Festu.

Dagskrá

    • Festa 10 ára 
      Tóm­as N. Möller for­mað­ur Festu og Hrund Gunn­steins­dótt­ir fram­kvæmd­arstjóri Festu
    • Hvað felst í hinu Nýja upp­hafi – The Great Re­set 
      Nicole Schwab fram­kvæmd­astjóri Nature Based Soluti­ons @World Economic For­um
    • Hvert er þitt hlut­verk í Nýju upp­hafi?
      Halla Tóm­as­dótt­ir for­stjóri B Team
    • Leið­tog­ar úr ís­lensku at­vinnu­lífi taka stöð­una
    • AЭILDI 2021 kynnt til leiks
    • Hvaða Gráu nas­hyrn­ing­ar verða á vegi okk­ar á ár­inu? 
      Michele Wucker met­sölu­höf­und­ur og for­stjóri Gray Rhino & Comp­any
    • Mikl­ar umbreyt­ing­ar: Hröð­um fram­gangi heims­mark­mið­anna 
      John McArth­ur for­stjóri mið­stöðv­ar um sjálf­bæra þró­un hjá Brook­ings stofn­un­inni
    • Drauma­fjár­fest­ing 2035
      Sa­sja Beslik for­stjóri sjálf­bærra fjár­fest­inga hjá J. Safra Saras­in Bank
    • Leið­tog­ar úr ís­lensku at­vinnu­lífi taka stöð­una
    • Eru ís­lensk­ir stjórn­end­ur á grænni veg­ferð? – Græna veg­ferð­in, könn­un Deloitte með­al stjórn­enda um að­gerð­ir fyr­ir­tækja í lofts­lags­mál­um
      Rakel Eva Sæv­ars­dótt­ir verk­efna­stjóri Deloitte
    • Leið­tog­ar úr ís­lensku at­vinnu­lífi taka stöð­una
    • Hvernig gekk að inn­leiða hringrás­ar­hag­kerf­ið á ár­inu? – Fjög­ur fyr­ir­tæki settu sér hringrás­ar mark­mið í upp­hafi árs 2020 – hvernig gekk?
    • Sjálf­bær vel­ferð – hug­vekja
      Elísa­bet H. Brynj­ars­dótt­ir hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur og verk­efna­stjóri Frú Ragn­heið­ar

    Fund­ar­stjóri: Hrund Gunn­steins­dótt­ir

    Kjósa
    0
    Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

    Athugasemdir

    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

    Nýtt efni

    Mest lesið undanfarið ár