276. spurningaþraut: Ragna Kjartansdóttir og Ragnar Kjartansson; þrjár skáldsögur Halldórs Laxness og fleira

276. spurningaþraut: Ragna Kjartansdóttir og Ragnar Kjartansson; þrjár skáldsögur Halldórs Laxness og fleira

Þraut síðan í gær!

***

Auka­spurn­ingin fyrri:

Hver er konan sem hér er með Bono, söngv­ara U2, fyrir tutt­ugu árum? Geta má þess að hún hefur feng­ist við stjórn­mál um ævina.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað er minnsta ríki í heimi?

2.   Róm­verjar lögðu á sínum tíma undir sig England en náðu aldrei Skotlandi, þótt nokkuð væru þeir að þvæl­ast þar. Hvað köll­uðu Róm­verjar Skotland?

3.   Hvaða fót­boltalið karla hefur oft­ast unnið Meist­ara­deild Evrópu eða Evr­ópu­bik­ar­inn, eins og keppnin hét áður?

4.   Ragna Kjart­ans­dóttir heitir ung tón­list­ar­kona á Íslandi, sem gerði garð­inn frægan með hljóm­sveit­inni Subterra­nean en hasl­aði sér svo völl sem rapp­ari á eigin vegum fyrir um 20 árum. Svo hvarf hún úr sviðs­ljós­inu í mörg ár en birt­ist aftur fyrir fáeinum miss­erum. Hvað er lista­manns­nafn Rögnu?

5.   Ragnar Kjart­ans­son — sem er ekki skyldur Rögnu Kjart­ans­dóttur — hefur komið víða við í list­inni, í mynd­list, tón­list, hug­mynda­list o.fl. Á tíma­bili fyrir mörgum árum not­aði Ragnar lista­manna­nafn — aðal­lega í gamni þó — sem mörgum þótti hel­stil dóna­legt. Hvað kall­aði hann sig þá?

6.   Á fjórða ára­tugnum stimpl­aði Halldór Laxness sig heldur betur inn í íslenskar bók­menntir með þremur stórum og breiðum sam­tíma­sögum (eða svona því sem næst), en þær hétu — í staf­rófs­röð: Heims­ljós, Salka Valka, Sjálf­stætt fólk. En í hvaða röð komu þær út?

7.    Í hvaða landi er höf­uð­borgin Búkarest?

8.   Catherine Midd­leton heitir kona ein, sem gekk að eiga Vilhjálm Breta­prins fyrir tíu árum. Fyrir áhuga­fólk um kónga­fólk vakti athygli að ung­frú Midd­leton er ekki af aðal­sættum, heldur er hún dóttir mið­stétt­ar­hjóna sem ráku póst­verslun með ... ja, ekk­ert svo rosa­lega virðu­legan varn­ing. Hvað seldu Midd­leton-hjónin, og gera lík­lega enn?

9.   Hvaða ár renna stærstar um Reykja­vík?

10.   Hvaða lag söng Stefani Joanne Angelina Germa­notta síð­ast, svo að vakti almenna athygli?

***

Auka­spurn­ingin síð­ari:

Hvað heitir stúlkan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Vatíkanið.

2.   Kaledónía.

3.   Real Madrid.

4.   Cell7.

5.   Rassi Prump.

6.   Salka Valka — Sjálf­stætt fólk — Heims­ljós.

7.   Rúmeníu.

8.   Partí­vörur.

9.   Elliða­árnar.

10.   Banda­ríska þjóð­söng­inn við inn­setn­ing­ar­at­höfn nýs for­seta í Washington.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni er Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deild­ar­innar í banda­ríska þing­inu.

Nýlegri mynd af henni er hér til hægri (eða ein­hvers staðar, ef þið eruð að skoða þetta í síma).

Á neðri mynd­inni má hins vegar sjá Dóru land­könnuð.

***

Þrautin síðan í gær!!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
5
StjórnmálSamgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins

Óvissa um tekju­for­sendur sam­göngusátt­mál­ans

Óvissa virð­ist ríkja um marga lyk­il­þætti í fjár­mögnun sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir það áhyggju­efni að nið­ur­skurður á fjár­lögum muni auka lán­töku­þörf Betri sam­gangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráð­ast í fram­kvæmdir sem ekki hafi verið fjár­magn­aðar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár