Lukka hvers manns að lenda í starfi sem hann hefur gaman að Bogi segir að hann sé ekki far­inn að leiða hug­ann að starfs­lokum þó hann verði sjö­tugur á næsta ári. Það sé eitt­hvað svo langt í burtu ennþá. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig

Bogi Ágústs­son hefur birst lands­mönnum á skjánum í yfir fjóra ára­tugi og flutt Íslend­ingum fréttir í blíðu og stríðu. Hann segir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mikið til batn­aðar á þessum árum en því miður halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Íslandi. Af öllum þeim atburðum sem hann hefur sagt fréttir af lögð­ust snjó­flóðin fyrir vestan árið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flateyri.

„Þegar stórir atburðir ger­ast, þá setur þú sjálfan þig til hliðar og ræðst í verk­efnið og tekst á við það. Ég held að lang­flestir frétta­menn fari ekki í lost og geri ekki neitt. Þeir setji bara augn­blöðkur á sig til að úti­loka allt annað en verk­efnið sem þeir eru að fást við, horfa ekki á atburð­ina sem þátt­tak­endur heldur sem skoð­endur, sem standa fyrir utan atburð­ina og reyna að gera þeim skil. Þetta eru við­brögðin þegar voveif­legir atburðir hafa dunið yfir, eins og snjó­flóðin fyrir vestan. Þó að ég færi ekki sjálfur vestur, ég var þá frétta­stjóri, þá úti­lok­uðum við í raun­inni þá skelf­ingu sem var að ger­ast frá vinn­unni, við reyndum að vinna þau störf eins og þurfti. Ég játa það hins vegar að eitt það allra, allra erf­ið­asta verk­efni sem ég hef þurft að takast á við í sjón­varpi í beinni útsend­ingu var að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í snjó­flóð­inu á Flateyri. Ég man það enn þann dag í dag.“

Boga Ágústs­son þekkja vænt­an­lega flestallir Íslend­ingar sem komnir eru til vits og ára, og jafn­vel einnig þeir sem yngri eru. Hann hefur enda verið gestur í stofum lands­manna allt frá árinu 1977 þegar hann hóf fyrst störf hjá Rík­is­út­varp­inu, á erlendri deild frétta­stofu sjón­varps. Á þeim rúmu fjöru­tíu árum sem síðan eru liðin hefur Bogi flutt Íslend­ingum fréttir af heims­sögu­legum við­burðum, stundum á staðnum sjálfur, fréttir af ham­förum og mann­skaða, kreppum og afla­bresti, en líka af gleði­legum atburðum, góðum árangri Íslend­inga og björtum dögum.

„Það er ekki frétt þegar að 90 þús­und far­þega­flug­vélar taka á loft og lenda á hverjum degi“

Og vissu­lega eru jákvæðu og gleði­legu frétt­irnar orðnar margar þótt Bogi segi að hinar, sem erf­ið­ari hafi verið og skelfi­legri, sitji kannski meira eftir í minn­inu. „Fréttir í eðli sínu eru þegar hlut­irnir ganga ekki sinn vana­gang. Það er ekki frétt þegar að 90 þús­und far­þega­flug­vélar taka á loft og lenda á hverjum degi, en þegar að flug leggst af eða flug­vél hlekk­ist á, þá er það frétt. Það er til dæmis engin frétt að það sé sett upp leik­rit í leik­húsi en það er frétt ef leik­húsið brennur, að vísu væri frétt núna á Covid-tímum ef það væri sett upp leik­rit í leik­húsi.“

Bogi segir það hins vegar kol­rangt, sem sumir halda fram og gagn­rýna fjöl­miðla fyrir, að fréttir séu að yfir­gnæf­andi hluta nei­kvæðar. Það sýni van­skiln­ing á fjöl­miðlum og frétta­mennsku að halda slíku fram. „Ef þú tekur bara upp blað, hlustar á útvarps­frétta­tíma eða horfir á sjón­varps­fréttir, þá sérðu að stór hluti frétt­anna er alls ekki nei­kvæður. Það er verið að segja frá jákvæðum atburðum sem eru að ger­ast, það er verið að segja frá því að það sé verið að opna sund­laug ein­hvers staðar úti á landi eða að Kvenna­kór Suð­ur­lands sé að fara um og syngja á hverri ein­breiðri brú á svæð­inu. Það er flutt mjög mikið af jákvæðum fréttum og raunar er reglan að það sé sagt frá því ef nýtt íslenskt leik­verk er sett upp til að mynda.“

Var tíu sumur á sjó

Bogi rekur lang­feðra­tal sitt til Vest­ur­bæjar Reykja­víkur, einn for­faðir hans var fæddur í byrjun nítj­ándu aldar í Þerney og síðan hefur sú ætt búið mann fram af manni í Vest­ur­bænum. Þar býr hann sjálfur í dag eftir útlegð á Sel­tjarn­ar­nesi um skeið, eins og hann orðar það sjálfur. Þekkt er að Bogi er mik­ill KR-ingur, þannig hefur hann til að mynda sinnt sjálf­boða­liða­starfi í KR-útvarp­inu frá upp­hafi árs­ins 1999 og varla að efa að fjöl­miðla­reynsla hans hefur orðið þeim sem það reka að miklu gagni. „Ég spil­aði fót­bolta með KR þar til ég varð fimmtán ára en þá fór ég á sjó­inn. Það er erfitt að spila fót­bolta úti á sjó og það var eng­inn fót­bolti á vet­urna þegar ég var í landi. Ég gat ekk­ert í körfu­bolta svo ég hætti í raun að æfa þarna.“

Umfjöllun um sjó­slys Boga þung­bærBogi var tíu sumur til sjós sem ungur maður.

Spurður hvort hann hafi verið hæfi­leik­a­ríkur knatt­spyrnu­maður vill Bogi lítið kann­ast við það. „Við skulum segja að ég hafi verið lið­tækur b-liðs maður. Ef ég hefði haldið áfram að spila hefði ég kannski átt einn eða tvo leiki með meist­ara­flokki þar sem ég hefði fengið að koma inn á. Mínir jafn­aldrar og þeir sem spil­uðu í KR þegar ég var ungur maður, þeir gátu ekki rass­gat. KR urðu Íslands­meist­arar 1968, þegar ég er 16 ára, og svo ekki fyrr en undir alda­mót. Þetta var eyði­merk­ur­ganga og KR-ingar ekk­ert sér­stakir í fót­bolta á þessum árum. En það breytir ekki því að trún­að­ur­inn við liðið er algjör.“

Sem fyrr segir stund­aði Bogi sjó­inn á sumrin en Ágúst, faðir hans, var stýri­maður og seinna skip­stjóri hjá Eimskipi þar sem Bogi réði sig til starfa eftir lands­próf. Hann var tíu sumur á sjó, öll sumur á meðan hann gekk í Mennta­skól­ann í Reykja­vík og einnig á háskóla­ár­unum þar sem Bogi stund­aði nám í sagn­fræði og íslensku. „Ég kláraði ekki námið, ég átti eftir að skrifa BA-rit­gerð þegar ég var ráð­inn inn til sjón­varps­ins. Hún er óskrifuð enn þá.“

Vökustaur í sjónvarpið

Spurður hvernig það hafi atvikast að hann var ráð­inn til Rík­is­út­varps­ins segir Bogi að góður kunn­ingi sinn úr háskólapóli­tík­inni hafi bent honum á að laust væri starf í erlendum fréttum þar. Hann hefði sótt um starfið og sér til mik­illar furðu fengið. „Það þurfti að fá stuðn­ing meiri­hluta útvarps­ráðs á þessum tíma, og hann fékk ég. Það var í raun póli­tískt ráðn­ing­ar­ferli, að því leyt­inu til að ég var í Vöku í Háskól­anum, ég var hægri­blók, Vöku­staur eins og við vorum kölluð. Ég hugsa að það hafi sann­fært meiri­hluta útvarps­ráðs um að það væri eng­inn sér­stakur rót­tæk­lingur þarna á ferð­inni og væri þokka­lega treystandi fyrir skrifum um erlend mál­efni. Svo eins og frétta­menn eiga að gera þá hætti ég allri virkri þátt­töku í póli­tík og hef ekki komið nálægt flokkspóli­tík síðan. Mér finnst ekki við hæfi að frétta- og blaða­menn séu virkir þátt­tak­endur í stjórn­málum. Þeir eiga að reyna að vera eins hlut­lægir og hlut­lausir og þeir mögu­lega geta verið.“

Bogi seg­ist telja að honum hafi tek­ist vel upp við að halda skoð­unum sínum og lífs­sýn frá starfi sínu sem frétta­maður og hafi sýnt hlut­lægni í störfum. „Auðvitað getur eng­inn verið dóm­ari í eigin sök en ég hef alla vega ekki fengið nein stór umkvört­un­ar­efni um að ég hafi verið að taka afstöðu. Við vorum tveir saman í nokkur ár á erlendri deild frétta­stofu sjón­varps­ins, Ögmundur Jónasson og ég, og við urðum mjög góðir vinir. Á þessum árum var mjög mikið álag, við vorum með Kastljós aðra hvora viku líka, og það kom fyrir að Ögmundur, í miklum hasar í hús­bygg­ingu sinni, þurfti að biðja mig um að hlaupa í skarðið fyrir sig, og öfugt. Ég man eftir að Ögmundur var ein­hvern tíma skammaður alveg rosa­lega fyrir ein­hvern texta sem ég hafði skrifað. Þá var það bara vegna þess að fólk var búið að gefa sér fyr­ir­fram að frétta­mað­ur­inn hefði ein­hverja afstöðu. Mér finnst þetta skýrt dæmi um að fólk getur búið sér til ein­hverja nið­ur­stöðu sem á ekki við nokkur rök að styðj­ast. Ég held að þetta séu nokkur með­mæli með okkur báðum.“

Þekkti alla í flugvélinni eftir Palme-morðið

Á þessum árum var frétta­mönnum sem fluttu erlendar fréttir snið­inn tals­vert þrengri stakkur en nú er, þegar kom að því að flytja fréttir. Bogi segir að erlenda frétta­deildin hafi verið mjög háð öðrum heim­ildum og hafi að mestu þurft að taka því sem að þeim var rétt frá Reuters-frétta­stof­unni og örfáum öðrum frétta­stofum úti í heimi. Þetta hafi hins vegar breyst þegar hann var ráð­inn fyrsti fast­ráðni erlendi frétta­maður Rík­is­út­varps­ins á Norð­ur­löndum, með aðsetur í Kaup­manna­höfn.

„Þangað flutti ég með fjöl­skyld­una árið 1984 til að sinna því starfi. Við höfðum enga eða litla mögu­leika til að fylgj­ast með því sem var að ger­ast á Norð­ur­lönd­unum án þess að hafa mann þar stað­settan. Blöð komu dags eða tveggja daga gömul til lands­ins, við gátum ekki heyrt útvarp, við vorum ekki með frétta­stofu­línu nema mjög stopula frá norsku frétta­stof­unni NTB. Ef við vildum flytja ein­hverjar fréttir af því sem var að ger­ast á Norð­ur­lönd­unum, og það vildum við, þá var eini mögu­leik­inn sá að hafa mann stað­settan þar. Það hefði getað verið alls­herj­ar­verk­fall í hálfan mánuð í Danmörku án þess að við hefðum vitað af því vegna þess að við vorum svo háðir Rauters og AP. Fyrir okkur skipta Norð­ur­lönd dálítið miklu máli en fyrir enskum og amer­ískum frétta­stofum eru þau bara ein­hver afgangs­stærð sem skiptir engu máli.“

„Þetta var  mikið sjokk, ekki bara fyrir Svía heldur fyrir alla Norð­ur­landa­búa, held ég“

Bogi sinnti störfum í Danmörku og á Norð­ur­lönd­unum á árunum 1984 til 1986. Hann var því starf­andi þar þegar sænski for­sæt­is­ráð­herr­ann Olof Palme var myrtur og flaug þegar til Stokk­hólms morg­un­inn eftir, 1. mars 1986. „Það er held ég eina skiptið sem ég hef farið í flug­vél þar sem ég þekkti nán­ast alla far­þeg­ana, meira og minna allt blaða­menn sem höfðu aðsetur í Kaup­manna­höfn.“

Morðið á Palme er eitt af stóru frétta­mál­unum sem Bogi minn­ist sér­stak­lega af starfsævi sinni, bæði vegna atburð­ar­ins sjálfs og svo eft­ir­leiks­ins. „Þetta var  mikið sjokk, ekki bara fyrir Svía heldur fyrir alla Norð­ur­landa­búa, held ég, að for­sæt­is­ráð­herr­ann skyldi myrtur á götu úti þegar hann var að koma úr bíó, fyrir framan kon­una sína. Og auð­vitað hefur ekki enn tek­ist að upp­lýsa þennan glæp, alla­vega sýn­ist sitt hverjum varð­andi nið­ur­stöð­una.“

Við kom­una til Stokk­hólms útveg­aði sænska sjón­varpið Boga töku­mann og þeir héldu strax út á götu til að fjalla um morðið á Palme. „Við tókum við­töl við almenn­ing og við Benedikt Gröndal heit­inn, sem þá var sendi­herra Íslands í Svíþjóð. Við gerðum síðan heill­anga frétt, ætli hún sé ekki tutt­ugu mín­útur eða svo, og sendum heim um gervi­tungl. Það var á þeim tíma fáheyrður lúxus, kost­aði dobíu, og ekki boðið upp á slíkt nema í ein­hverjum algjörum und­an­tekn­ing­ar­til­vikum. Sú ágæta frétt var raunar gerð aðgengi­leg á net­inu þegar þess var minnst að þrjá­tíu ár voru liðin frá morð­inu á Palme.“

Afturför að leggja niður stöðu fréttamanns á Norðurlöndum

Gamli tím­innHlustað var á erlendar útvarps­stöðvar á stutt­bylgj­unni þegar Bogi hóf störf.

Sem fyrr segir var Bogi fyrsti fast­ráðni frétta­maður Rík­is­út­varps­ins með aðsetur á Norð­ur­lönd­unum. Þeirri stöðu var haldið úti í rúman ára­tug áður en hún var lögð niður enda allar for­sendur þá breyttar, netið komið til sög­unnar og hægt að horfa á nor­rænt sjón­varp hér á Íslandi. Engu að síður segir Bogi að það hafi verið aft­ur­för að leggja niður stöð­una. „Auðvitað var það. Maður sem er á staðnum hefur alltaf miklu betri for­sendur til þess að flytja fréttir af því sem er að ger­ast í hans nærum­hverfi heldur en ein­hver sem er háður öðrum miðlum og frá­sögn þeirra. Við sjáum til dæmis hvað okkur finnst mik­ill fengur að því að fá öðru hvoru fréttir frá Jóni Björg­vins­syni þegar hann er að ferð­ast um, hvort sem það er í Sýrlandi eða á flótta­manna­svæðum í Grikk­landi, í Afríku, hvar sem hann er. Það er allt annað að sjá þetta með augum Íslend­ings sem er á staðnum heldur en að sjá þetta ann­ars staðar frá, jafn­vel með augum Norð­ur­landa­búa. En erlendar fréttir eru dýrar, það er dýrt að hafa fólk í útlöndum og þegar hægt er að leysa verk­efnið á ódýr­ari hátt þá er skilj­an­legt að það sé gert. Þessi staða var nú lögð niður á þeim tíma þegar ég var sjálfur frétta­stjóri svo ég verð að taka ein­hverja ábyrgð á því. Þegar að bjargir eru tak­mark­aðar þá verða menn auð­vitað að nýta krón­urnar á þann hátt sem best þjónar rekstri fjöl­mið­ils­ins.“

Breyt­ing­unum sem orðið hafa á blaða- og frétta­mennsku frá því Bogi hóf störf í fag­inu hafa því orðið miklar, raunar segir hann þær ævin­týra­legar. „Stóra breyt­ingin er til­koma nets­ins en líka sú að allur almenn­ingur gengur um með frétta­mynda­vél á sér. Nú til dags eru það fáir mynd­rænir atburðir sem ger­ast í þétt­býli sem ekki eru festir á mynd. Skýrasta dæmið er þegar Valhöll á Þing­völlum brann árið 2009. Ef sá atburður hefði gerst tíu árum fyrr hefðu ekki verið til neinar myndir af hús­inu að brenna. Frétta­stof­urnar hefðu heyrt af þessu, Stöð 2 og við hefðum henst upp í bíla, það tekur minnst 25 mín­útur að keyra á Þing­velli og þegar að mynda­töku­menn hefðu verið komnir þá hefði allt verið brunnið. En þegar atburð­ur­inn verður þá er fullt af fólki á svæð­inu sem er með sínar frétta­mynda­töku­vélar í símunum. Almenn­ingur er orð­inn hluti af frétta­öfl­un­ar­kerf­inu, það eru breyt­ing­arnar. Fólk er líka orðið miklu dug­legra að hafa sam­band við fjöl­miðla, það er líka orðið miklu auð­veld­ara en það var. Ein­angr­unin sem ríkti á Íslandi hvað varð­aði upp­lýs­ingar frá umheim­inum, hún var þannig að það er mjög erfitt að gera sér það í hug­ar­lund fyrir fólk sem ekki upp­lifði það. Myndir sem sjón­varpið fékk erlendis frá voru minnst tveggja daga gamlar. Það var sjón­varp sex daga í viku, og ekki á sumrin. Það var ein sjón­varps­stöð og ein útvarps­stöð. Dag­blöðin voru meira og minna flokks­blöð. Þannig að breyt­ing­arnar eru bylt­ing­ar­kenndar.“

Óheillaþróun í rekstri fjölmiðla

Þrátt fyrir þessar miklu breyt­ingar sem hafa breytt fjöl­miðlun og frétta­mennsku á dramat­ískan hátt segir Bogi þó að miklir ann­markar séu á fjöl­miðlaum­hverfi á Íslandi í dag. „Netið er bæði blessun og bölvun. Illu heilli hefur netið, og þetta mikla flæði upp­lýs­inga, sér­stak­lega í svona litlu sam­fé­lagi eins og Ísland er, orðið til þess að það er mjög erfitt að reka fjöl­miðla. Ég bý við þann tak­marka­lausa lúxus að vinna hjá Rík­is­út­varp­inu sem er nokkurn veg­inn tryggt með sínar tekjur en við erum eini fjöl­mið­ill­inn sem býr við svona lúxus. Allir fjöl­miðlar lands­ins berj­ast í bökkum, jafn­vel Morg­un­blaðið, sem nýtur dug­legra styrkja frá eig­endum sínum.

Þetta er hættu­leg þróun, vegna þess að sjálf­stæð fjöl­miðlun er nauð­syn­leg hverju þjóð­fé­lagi. Það hefur stundum verið talað um fjórða valdið, ég vil nú ekki gera of mikið úr hlut­verki blaða- og frétta­manna, en þeir hafa hlut­verki að gegna. Það skiptir máli að það sé ein­hver sem getur bent á það sem aflaga fer í sam­fé­lag­inu og það skiptir máli að það séu ein­hverjar stofn­anir, í þessu til­felli fjöl­miðlar, sem fólk getur snúið sér til. Að því leyti má líkja hlut­verki okkar við umboðs­mann Alþingis. Við erum ekki dóm­stóll og við höfum þannig séð ekki neinar form­legar skyldur í sam­fé­lag­inu, en við höfum samt þessa skyldu við sam­fé­lagið, að við eigum að þjóna því og við eigum að þjóna því til gagns.“

„Stjórn­mála­menn hafa verið dug­legri við að sam­þykkja styrki til stjórn­mála­flokka heldur en til fjöl­miðla“

Rætt við þjóð­höfð­ingja Í gegnum tíð­ina hefur Bogi tekið við­töl við gríð­ar­legan fjölda fólks. Hér ræðir hann við Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Svía.

Boga sýn­ist að halli á ógæfu­hlið­ina í þessum efnum, vel hæft fólk flýi fjöl­miðla og þeir sem með völdin fari virð­ist ekki gera sér grein fyrir í hversu mikið óefni stefni. „Þetta hefur verið óheilla­þróun und­an­farin ár og það verður að segj­ast eins og er að íslenskir stjórn­mála­menn, þeir hafa ekki valdið því hlut­verki sem þeir eiga að valda hvað þetta varðar. Stjórn­mála­menn hafa verið dug­legri við að sam­þykkja styrki til stjórn­mála­flokka heldur en til fjöl­miðla, þrátt fyrir hið mik­il­væga lýð­ræð­is­lega hlut­verk sem fjöl­miðlar gegna. Nú hef ég ekk­ert á móti því að stjórn­mála­flokkar, eins og önnur öfl sem vinna í hinu lýð­ræð­is­lega kerfi, séu styrktir en það er mun auð­veld­ara að koma því í gegnum þingið heldur en að koma á ein­hverju skipu­lagi þar sem fjöl­miðlar, aðrir en Rík­is­út­varpið, geta þrif­ist almenni­lega. Ég bendi mönnum á að líta til Norð­ur­land­anna, þar sem menn við­ur­kenna mik­il­vægi fjöl­miðla í verki, með styrkjum til dag­blaða til dæmis. Þetta verðum við að við­ur­kenna líka því þetta litla sam­fé­lag sem við erum, við megum ekki við því að neinn fjöl­mið­ill gefi upp önd­ina. Alltof margir hafa gert það nú þegar og alltof margir eru að berj­ast í þessu af van­efnum.

Fólk sem vinnur á fjöl­miðlum er und­an­tekn­ing­ar­lítið vel hæft til verka, bæði hvað varðar tungu­málið og hvernig það vinnur. Álagið gerir það hins vegar að verkum að það er alltof lít­ill tími til að sér­hæfa sig eða sökkva sér ofan í eitt­hvað, sem er þó algjör­lega nauð­syn­legt. Fjöl­miðlar á Íslandi geta ekki sinnt því eft­ir­lits­hlut­verki sem þeir eiga að sinna eins vel og þeir gætu gert. Ég skil til dæmis eig­in­lega ekk­ert í því að þú hafir þennan tíma til að sitja með mér hérna.“

Blæs á alla vitleysu um að heimurinn sé að fara til helvítis

Bogi vill þó alls ekki taka undir með þeim sem halda á lofti heimsósóma­stefum um að öllu fari aftur og allt hafi verið betra hér áður. „Þú heyrir því stundum haldið fram að blaða­menn hafi skrifað miklu betri texta hér áður. Þetta er bölvað bull. Ég held því fram að blaða­menn núna séu miklu betur mennt­aðir og upp­lýst­ari heldur en þeir voru áður. Þegar ég var að fara yfir umsóknir um störf á frétta­stofu sjón­varps­ins, og síðar frétta­stofu útvarps­ins þegar ég var for­stöðu­maður yfir þeim báðum, voru tugir vel hæfra umsækj­enda, sem sumir höfðu reynslu og miklu meiri menntun heldur en ég. Ég grín­að­ist stundum með það, og grín­ast enn, að hefði mín eigin umsókn verið í þessum hópi hefði mér ekki dottið hug að taka sjálfan mig í við­tal.

„Hefði mín eigin umsókn verið í þessum hópi hefði mér ekki dottið hug að taka sjálfan mig í við­tal“

Það gildir í raun um sam­fé­lagið í heild sinni. Við búum í miklu, miklu betra sam­fé­lagi núna heldur en fyrir hálfri öld. Það er svo ótal margt sem hefur breyst til batn­aðar, og raunar í heim­inum líka. Auðvitað horfum við fram á gríð­ar­leg vanda­mál, sér­stak­lega hvað varðar lofts­lags­breyt­ingar, en að svo mörgu leyti er heim­ur­inn svo miklu betri en hann var. Ég bendi fólki á að kíkja á bók Hans Rosling heit­ins, sænska lækn­is­ins sem rýndi í töl­fræð­ina og sá út úr henni það sem aðrir sáu kannski ekki. Hann benti á hvað það eru miklu færri sem deyja úr malaríu, það hefur tek­ist að útrýma sjúk­dómum, til dæmis bara núna fyrir skömmu var til­kynnt að löm­un­ar­veiki hefði verið útrýmt nema í tveimur löndum. Það tekur innan við ár að þróa bólu­efni gegn þess­ari skelfi­legu kór­óna­veiru sem hefur herjað á heim­inn.

Svo segja menn að heim­ur­inn fari versn­andi. Ég er algjör­lega ósam­mála. Ég sé það bara á kyn­slóð barn­anna minna. Hún er betur upp­lýst. Sam­skipti kynj­anna eru miklu heil­brigð­ari og eðli­legri en þau voru í minni kyn­slóð, þó ég sé ekki að útmála okkur sem ein­hverja aum­ingja. Sam­fé­lagið, og þjóð­fé­lagið, hefur batnað að lang­mestu leyti, en ekki að öllu leyti. Það er ekki full­komið, langt því frá, hvorki okkar sam­fé­lag né heim­ur­inn allur. En við erum hins vegar svo heppin að við til­heyrum rík­ustu sjö, átta pró­sentum heims­ins. Við búum við kjör sem for­feður okkar og for­mæður, ef við förum svona hund­rað ár aftur í tím­ann, hefðu ekki getað látið sig dreyma um, aldrei ímyndað sér þær fram­farir sem hafa orðið. Svo ég blæs á alla vit­leysu um að heim­ur­inn sé að fara til hel­vítis.“

Pantaði Hercules-vél frá norska flughernum

Áður hefur verið minnst á morðið á Olof Palme hér að framan sem eitt stærsta frétta­mál sem Bogi hefur sinnt. Þau eru hins vegar tölu­vert fleiri, stóru málin sem hann hefur fjallað um á rúmum fjöru­tíu árum í frétta­mennsku. Bogi var þannig starf­andi úti í Kaup­manna­höfn þegar kjarn­orku­slysið í Tjerno­byl varð 26. apríl 1986. „Það var vitað frá upp­hafi að það væru ein­hverjir skelfi­legir hlutir að ger­ast þarna. Það var fylgst mjög vel með mögu­legri geislun frá Sov­ét­ríkj­unum til Norð­ur­land­anna. Auðvitað var mönnum ekki ljóst umfang slyss­ins á þeim tíma en það var ljóst að þarna var eitt­hvað hrika­legt á ferð­inni. Ég skrif­aði um þetta slys tals­vert, enda í ágætri aðstöðu til þess, en það hefur áreið­an­lega verið gert hér heima líka því á þessum tíma vorum við komin með gervi­hnatta­sam­band og farin að fá dag­lega frétta­pakka. Það var hins vegar fjandi dýrt, ég held að við höfum upp­haf­lega fengið tíu mín­útna frétta­pakka, val­inn, frá breskri frétta­stofu.“

Hver stór­við­burð­ur­inn rak annan á árinu 1986 því í októ­ber það ár var leið­toga­fundur þeirra Reagans og Gor­bat­sjovs hald­inn í Höfða í Reykja­vík. Bogi fjall­aði þó ekki um hann heldur fékk hann annað hlut­verk. „Ég var kall­aður heim til Íslands vegna þess að ég hafði meiri reynslu af sam­skiptum við erlendar sjón­varps­stöðvar en flestir á frétta­stof­unni og þekkti kannski fleiri skamm­staf­anir en hinir, ég vissi til dæmis hvað RAI [ítalska rík­is­sjón­varpið] stóð fyrir. Þannig að ég var feng­inn til lands­ins, ekki í frétta­mennsku heldur í skipu­lagn­ing­una. Það voru svo fáar leiðir út úr land­inu á þessum tíma, til dæmis gervi­hnatta­send­ingar, og þetta þurfti að skipu­leggja allt, til að allir gætu komið sínu efni frá sér.

Kosn­inga­sjón­varp 1978Varla hafa farið fram kosn­ingar á Íslandi í fjóra ára­tugi án þess að Bogi hafi haft þar hlut­verk.

Þetta var það langstærsta sem sjón­varpið hafði tek­ist á hendur til þessa. Maður vann baki brotnu við þetta og fann þá hvað aðstöðu­mun­ur­inn var, og kannski er enn þá, fárán­legur milli okkar og stóru frétta­stof­anna. Einn dag­inn, þegar ég var enn þá úti í Kaup­manna­höfn, spar­aði ég Rík­is­út­varp­inu danskan fimm­hund­ruð­kall með því að fara í lest frá Kaup­manna­höfn til Brem­er­haven í stað­inn fyrir að taka flug til Ham­borgar og taka lest þaðan. Nokkrum dögum seinna var ég kom­inn til Íslands og að panta Hercules-vél frá norska hernum vegna leið­toga­fund­ar­ins. Þetta var svo fárán­legt.“

„Svo þegar ein­hver hringdi seinnipart dags og sagði: Hekla er byrjuð að gjósa, þá var sím­anum nán­ast skellt á og sagt: Ekki reyna þetta!“

Margt er eft­ir­minni­legt af löngum ferli og nefnir Bogi til að mynda einn dag sem er honum ofar­lega í minni, 17. jan­úar 1991. „Þá hófst fyrra Persaflóa­stríðið. Sama dag dó Ólafur V. Nor­egs­kon­ungur, sem var umtals­vert mál hjá okkur. Hann hafði oft komið til Íslands og hafði mikil tengsl hingað, auk þess sem dauði nor­ræns þjóð­höfð­ingja er nátt­úr­lega stór­at­burður hér og hefði verið fyrsta frétt undir öllum venju­legum kring­um­stæðum. Svo þegar ein­hver hringdi seinnipart dags og sagði: Hekla er byrjuð að gjósa, þá var sím­anum nán­ast skellt á og sagt: Ekki reyna þetta!

Svona dagar líða seint úr minni en það er lang­mest gaman á frétta­stof­unni þegar allt er á suðu­punkti og brjálað að gera. Að reyna að ná yfir­sýn­inni, að skipu­leggja hvernig á að dekka hlut­ina og taka þátt í því. Það er gaman þegar hlut­irnir ganga upp og tekst að koma upp­lýs­ingum á fram­færi, það er starfs­á­nægja í því. Það sem er líka gaman við að vera í þessu fagi er að oft­ast ertu að ganga að nýjum degi sem nýjum degi. Verkefni gær­dags­ins eru búin, fréttin er skrifuð, blaðið er komið út og borðið er hreint. Þetta er ekki dósa­verk­smiðja, þetta er ekki Chaplin í Nútím­anum.“

Ekki mikill spámaður

Sumar fréttir er erf­ið­ara að flytja en aðrar, líkt og Bogi lýsir í upp­hafi við­tals­ins um snjó­flóðin á Súðavík og Flateyri árið 1995. Hann segir að allar fréttir af atburðum þar sem mann­tjón hefur orðið séu sér­stak­lega erf­iðar að flytja. Fyrir hann sjálfan á það ekki síst við um sjó­slys. „Sem betur fer eru sjó­slys þar sem mann­skaði verður orðin mjög fátíð á Íslandi, en þau hafa orðið og þau taka alltaf á, sér­stak­lega vegna þess að ég var sjálfur það lengi á sjó. Ég upp­lifði sjálfur, í eina skiptið sem ég var á sjó um vetr­ar­tíma, að vera mjög nálægt skipi sem fórst með ell­efu manns. Veðrið var svo vont að við gátum ekki tekið þátt í leit eða björgun, veðrið var svo brjálað. Þarna varð ég óbeint vitni af skelfi­legum atburði. Sjóslys og fréttir af þeim hafa alltaf lagst mjög þungt á mig.

En ég hef nú meira gaman af því að hugsa um hluti eða fréttir sem eru jákvæðir og gleði­legir. Eitt sem ég hef líka haft gaman af er þegar fólk hefur beðið mig um að spá ein­hverju, um þróun mála eða slíkt. Þá svara ég því til að ég sé svo góður spá­maður að þegar Berlín­ar­múr­inn varð 25 ára 1986 stóð ég með míkra­fón fyrir framan hann og sagði: Hér hefur hann staðið, þessi múr sem hefur aðskilið austur og vestur, í ald­ar­fjórð­ung og það er ekk­ert sem bendir til ann­ars en að hann verði hér áfram eftir önnur 25 ár. Ég spái því engu síðan.“

„Það þarf að segja frá því ekki bara þegar sjó­slys verða heldur líka þegar við eign­umst alheims­feg­urð­ar­drottn­ingu“

Fréttir eru alls konar, þungar og erf­iðar en líka skrýtnar og skemmti­legar. Það skrýtn­asta sem kemur upp í huga Boga er þegar segja átti frétt af því að Linda Pét­urs­dóttir hefði verið kjörin ung­frú heimur í London árið 1988. „Þá þurfti ég að reyna að sann­færa yfir­mann CBS-frétta­stof­unnar amer­ísku í London, unga konu sem til­tölu­lega nýlega var tekin við, um að ég væri ekki að fífl­ast í henni þegar ég var að biðja um töku­mann til að fara og mynda Lindu. Konan var algjör­lega sann­færð um að það væri ein­hver á skrif­stof­unni hjá sér sem væri að fífl­ast í henni, henni fannst þetta svo „outlandish“, að það væri hringt frá Íslandi til þess að fá lán­aðan töku­mann til að taka mynd af átján ára gam­alli íslenskri feg­urð­ar­drottn­ingu. Mér tókst þó að sann­færa hana um að það væri ekki verið að fífl­ast í henni. Fréttir eru fréttir, það þarf að segja frá því ekki bara þegar sjó­slys verða heldur líka þegar við eign­umst alheims­feg­urð­ar­drottn­ingu.“

Ekki farinn að leiða hugann að starfslokum

Bogi hefur ekki látið við það sitja að birt­ast Íslend­ingum á sjón­varps­skjánum og lesa upp fréttir heldur varð hann að sjón­varps­stjörnu í þátt­unum Ráð­herr­ann sem sýndur var fyrr á þessu ári á RÚV. Þar þóttu hann og Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræðis­pró­fessor fara á kostum í kosn­inga­sjón­varpi í þátt­unum, eins og þeir raunar gera gjarnan í raun og veru. Bogi seg­ist ekki hafa átt von á því að verða stjarna í leiknu sjón­varps­efni. „Nei, ekki sér­stak­lega. Ég átti heldur ekki von á því að verða vin­sæll meðal barna, eins og virð­ist vera raunin núna. Mín skoðun er sú að menn eiga ekki að velja sér starfs­vett­vang í sjón­varpi til þess að verða frægir. Ég hef búið við það nán­ast allt mitt líf að fólk þekkir á mér and­litið og það hefur nán­ast aldrei plagað mig neitt. Það hafa stöku menn viljað gera mig ábyrgan fyrir dag­skrár­stefnu sjón­varps­ins en það er nán­ast ekki neitt. Ég hef aldrei orðið fyrir áreiti þegar ég hef verið úti á veit­inga­stöðum til að mynda. Þegar tíma­ritið Séð og heyrt var við lýði á sínum tíma og var að reyna að koma upp ein­hverjum celebkúltúr á Íslandi fannst mér það algjör­lega fárán­legt. Það er ekki hægt að vera celeb á Íslandi, ef þú ferð niður í Aust­ur­stræti á degi þar sem hægt er að vera úti og stendur þar í fimm mín­útur þá sérðu að minnsta kosti fjóra, fimm sem eru lands­frægir. Farðu í Mela­búð­ina og það sama ger­ist þar.“

„Það er lukka hvers manns að lenda í starfi sem hann hefur gaman af og það hefur verið mitt lán“

Bogi er 68 ára gam­all, verður 69 ára á árinu. Að óbreyttu á hann því aðeins eitt og hálft ár eftir í fast­ráðnu starfi í sjón­varp­inu. Hann seg­ist þó ekki vera far­inn að velta því neitt fyrir sér. „Ég hef reglu­lega minnt yfir­menn mína á að til dæmis hjá BBC hætti David Dimbleby sem fastur þátta­stjórn­andi í þætt­inum Question Time til að snúa sér að almennri frétta­mennsku og dag­skrár­gerð því hann vildi gera það áður en hann yrði átt­ræður. John Simpson hætti sem rit­stjóri erlendra frétta BBC rétt áður en hann varð 75 ára, af því það voru svo mikil ferða­lög. Þessir menn eru í fullri vinnu enn þá, og án þess að ég vilji líkja mér við þá, þá get ég líka bent á að í frétta­skýr­inga­þætt­inum 60 minutes hættir fólk ekki heldur deyr frá þætt­inum! Eins og staðan er núna þá verð ég að hætta þegar ég verð sjö­tugur. Auðvitað getur vel verið að eftir eitt og hálft ár þá finn­ist mér ágætt að hætta þessu. Þetta er eitt­hvað sem er í fram­tíð­inni og auð­vitað veit maður að fram­tíðin kemur en mér finnst þetta eitt­hvað svo langt í burtu að ég er ekk­ert far­inn að leiða hug­ann að þessu. Það er lukka hvers manns að lenda í starfi sem hann hefur gaman af og það hefur verið mitt lán.“

Á frétta­vakt­inniBogi seg­ist ekki leiða hug­ann að starfs­lokum, hann hafi svo gaman af vinn­unni.

Uppfært: Viðtalið við Boga var tekið árið 2021 og birt­ist fyrst á vef Heim­ild­ar­innar þann 9. jan­úar 2021. Í gær­kvöldi, þann 28. apríl 2025, las Bogi sinn síð­asta frétta­tíma og kvaddi þar með skjá­inn. 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár