258. spurningaþraut: Hvaða hvalategund liggur þarna í Dýrafjarðarfjöru?

258. spurningaþraut: Hvaða hvalategund liggur þarna í Dýrafjarðarfjöru?

Jújú, hérna er hún (þrautin frá í gær).

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndina hér að ofan mun Frið­þjófur Nansen hafa tekið á Dýra­firði laust fyrir alda­mótin 1900. Hvaða hvala­teg­und liggur þarna í för­unni?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver varð fyrsti íslenski ráð­herr­ann árið 1904?

2.   Þor­steinn Jónsson hét eitt fræg­asta skáld Íslands á ofan­verðri 20. öld og í upp­hafi þeirrar 21. Hann kenndi sig jafnan við bæ nokkurn, eins og títt var á fyrri tímum. Hver var bær­inn?

3.   Nöfn fjög­urra ríkja Banda­ríkj­anna byrja á bók­stafnum A. Hver eru þau? Hér er nauð­syn­legt að hafa þrjú rétt til að fá stig.

4.   Í svip­uðum dúr: Aðeins eitt ríki heims ber nafn er byrjar á O eða Ó. Hvaða ríki er það?

5.   Bíó­myndir um fræga tón­list­ar­menn hafa verið mjög í tísku að und­an­förnu. Nú er von á mynd um fræga jazz og blús-söng­konu sem dó aðeins 44 ára árið 1959. Hún átti ein­lægt í úti­stöðum við yfir­völd, var ofsótt vegna hör­unds­litar og drakk alltof mikið. En fáir voru hennar jafn­okar við að túlka til­finn­inga­rík lög. Diana Ross lék hana í mynd­inni Lady Sings the Blues árið 1972 en nú ætlar R&B söng­konan Andra Day að túlka hana. Þessi söng­kona hét framan af ævi Eleonora Fagan  en undir hvaða nafni varð hún fræg?

6.   Hvaða nýlátni söngv­ari var frægastur fyrir að flytja lög eins og Ferry Cross the Mersey og You'll Never Walk Alone?

7.   Í hvaða landi fellur áin Amason til sjávar?

8.   Hvað hét her­for­ing­inn sem vann orr­ust­una við Waterloo 1815?

9.   Hvað er Soyuz?

10.   Orðin draumar og drauma­tími (á ensku „dream­ing“ og „dreamtime“) hafa verið notuð um hug­mynda­heim fólks, sem var upp­runa­legir íbúar á til­teknu svæði jarðar. Umdeilt er hversu not­hæf þessi hug­tök eru, en burt­séð frá því: Hvaða svæði var hér um að ræða?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða ríki á þennan fána?

 ***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hannes Hafstein.

2.   Hamar.

3.   Alabama, Alaska, Arizona og Arkansas. Hafa þarf þrjú rétt.

4.   Oman.

5.   Billie Holiday.

6.   Gerry Marsden.

7.   Brasilíu.

8.   Wellington.

9.   Sovésk og síðan rúss­nesk geim­för.

10.   Ástralíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Hval­ur­inn á efri mynd­inni er slétt­bakur. (Hnúfu­bakur er auð­þekkj­an­legur á mun lengri bægslum.)

Fána þessum skartar Ítalía. 

***

Og hér er enn hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár