Borgin leggur hjólastíga fyrir 1,8 milljarða

Leggja á ríf­lega 10 kíló­metra af hjóla- og göngu­stígum á næsta ári. Sjálf­stæð­is­menn harma að ekki hafi verið gengið lengra til að styðja við hjól­reiða­bylt­ing­una í Reykja­vík.

Borgin leggur hjólastíga fyrir 1,8 milljarða
Hefðu viljað sjá meira að gert Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks í skipu­lags- og sam­göngu­ráði Reykja­vík­ur­borgar vilja styðja enn betur við hjól­reiða­bylt­ing­una í Reykja­vík. Mynd: Shutterstock

Ráðist verður í fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu hjóla- og göngu­stíga í Reykja­vík fyrir tæp­lega 1,8 millj­arða króna á næsta ári. Samtals verða lagðir 10,3 kíló­metrar af stígum í borg­inni á næsta ári. Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins fagna vand­aðri gerð hjól­reiða­á­ætl­unar en harma metn­að­ar­leysi í fjár­fest­ingum til stíga­gerðar í nýsam­þykktri fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar.

Alls er um tólf nýfram­kvæmdir að ræða sem inni­bera bæði aðskilda og sam­eig­in­lega göngu- og hjóla­stíga víðs vegar um borg­ina. Kostn­aður við þá verður ríf­lega einn millj­arður króna og er heild­ar­lengd þeirra 6,6 kíló­metrar. Þá er einnig gert ráð fyrir að áfram­hald­andi vinna fari fram við gerð sjö stíga sem áður hafa verið kynntir, og eru fram­kvæmdir við suma þeirra hafnar.  Skipu­lags- og sam­göngu­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti heim­ild til fram­kvæmd­anna á fundi sínum 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Sjálfstæðisflokkurinn vill meira fjármagn

Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks í ráð­inu, Eyþór Arnalds, Hildur Björns­dóttir og Katrín Atla­dóttir, létu bóka að þeir fögn­uðu vand­aðri gerð við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár