„Við erum farin að gefa hvert öðru fullkominn óþarfa“

Jóla­há­tíðin er neyslu­há­tíð. Fyr­ir­tæki nýta sér sjálf­virka hug­ar­ferla okkar til þess að auka enn neysl­una. Ragna Bene­dikta Garð­ars­dóttir dós­ent í sál­fræði við Háskóla Íslands, hefur meðal ann­ars kynnst til­raunum til að nota áföll fólks til þess að breyta kaup­hegðun þess.

„Við þurfum að vera dug­legri að neita okkur um óþarfa,“ segir Ragna Bene­dikta Garð­ars­dóttir, dós­ent í sál­fræði við Háskóla Íslands, sem telur að neysla okkar sé farin úr bönd­unum, og það ekki síst um jólin.

Ragna lýsir því að ann­markar á huga okkar og mark­vissar til­raunir til að hafa áhrif á ákvarð­anir okkar valda því að við fyllum líf okkar og ann­arra af hlutum sem okkur vantar ekki.

Tvö kerfi hugans

„Við verðum fyrir áhrifum á fleiri en einn veg. Gróft á litið má skipta hugsun okkar og ákvarð­ana­töku upp í tvö kerfi. Kerfi eitt og kerfi tvö. Annað er djúpt hugs­andi, þar sem við förum í gegnum kosti og galla og virki­lega veltum fyrir okkur rökum áður en við tökum ákvörðun. Hitt kerfið tekur meira skyndi­á­kvarð­anir, þar sem við erum fljót­ari að stökkva á eitt­hvað og förum eftir þum­al­putta­reglum. Það kerfi eða kerfi eitt, er yfir­leitt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár